1Ljóð. Kóraíta-sálmur. Til söngstjórans. Syngist með Makalat-lagi. Hemans-maskíl Esraíta.2Drottinn, Guð minn, ég kalla um daga, um nætur hrópa ég frammi fyrir þér.3Lát bæn mína koma fyrir þig, hneig eyra að hrópi mínu,4því að sál mín er mett orðin af böli, og líf mitt nálægist Hel.5Ég er talinn með þeim, sem gengnir eru til grafar, ég er sem magnþrota maður.6Mér er fenginn bústaður með framliðnum, eins og vegnum mönnum, er liggja í gröfinni, er þú minnist eigi framar, því að þeir eru hrifnir burt úr hendi þinni.7Þú hefir lagt mig í gryfju undirheima, í myrkrið niðri í djúpinu.8Reiði þín hvílir á mér, og alla boða þína hefir þú látið skella á mér. Sela9Þú hefir fjarlægt frá mér kunningja mína, gjört mig að andstyggð í augum þeirra. Ég er byrgður inni og kemst ekki út,10augu mín eru döpruð af eymd. Ég ákalla þig, Drottinn, dag hvern, breiði út hendurnar í móti þér.11Gjörir þú furðuverk vegna framliðinna, eða munu hinir dauðu rísa upp til þess að lofa þig? Sela12Er sagt frá miskunn þinni í gröfinni, frá trúfesti þinni í undirdjúpunum?13Eru furðuverk þín kunngjörð í myrkrinu eða réttlæti þitt í landi gleymskunnar?14En ég hrópa til þín, Drottinn, og á morgnana kemur bæn mín fyrir þig.15Hví útskúfar þú, Drottinn, sálu minni, hylur auglit þitt fyrir mér?16Ég er hrjáður og aðþrengdur frá æsku, ég ber skelfingar þínar og er ráðþrota.17Reiðiblossar þínir ganga yfir mig, ógnir þínar eyða mér.18Þær umkringja mig eins og vötn allan liðlangan daginn, lykja um mig allar saman.19Þú hefir fjarlægt frá mér ástvini og félaga og gjört myrkrið að kunningja mínum.

88.1 Kóraítar Slm 42.1 – Heman 1Kro 6.18; sbr 1Kon 5.11; 1Kro 2.6 – Esraítar Slm 89.1
88.2 Um daga, um nætur Slm 22.3 – kalla á Drottinn sbr Slm 3.5+
88.3 Bæn mín Slm 102.2- hneig eyra Slm 71.2
88.5 Gengnir til grafar Slm 22.30+
88.7 Í dýpstu gröf Slm 18.5-6
88.8 Boðar Slm 42.8
88.9 Vinum viðurstyggð Slm 31.12+
88.10 Lyfir höndunum Slm 77.3; 143.6
88.11 Lofa þig? Slm 6.6; Jes 38.18 – skuggarnir Jes 26.14
88.12 Í Helju Job 26.6; 28.22; Okv 15.11; Opb 9.11
88.14 Hrópa til Drottins Slm 88.2 – að morgni Slm 59.17; 143.8
88.19 Gert vini fráhverfa Slm 88.9; 31.12+