1Til söngstjórans. Með strengjaleik. Asafs-sálmur. Ljóð.2Guð er augljós orðinn í Júda, í Ísrael er nafn hans mikið.3Skáli hans er í Salem og bústaður hans á Síon.4Þar braut hann sundur leiftur bogans, skjöld og sverð og hervopn. Sela5Þú birtist dýrlegur, ógurlegri en hin öldnu fjöll.6Hinir harðsvíruðu urðu öðrum að herfangi, þeir sofnuðu svefni sínum, og hendurnar brugðust öllum hetjunum.7Fyrir ógnun þinni, Jakobs Guð, hnigu bæði vagnar og hestar í dá.8Þú ert ógurlegur, og hver fær staðist fyrir þér, er þú reiðist?9Frá himnum gjörðir þú dóm þinn heyrinkunnan, jörðin skelfdist og kyrrðist,10þegar Guð reis upp til dóms til þess að hjálpa öllum hrjáðum á jörðu. Sela11Því að reiði mannsins verður að lofa þig, leifum reiðinnar gyrðir þú þig.12Vinnið heit og efnið þau við Drottin, Guð yðar, allir þeir sem eru umhverfis hann, skulu færa gjafir hinum óttalega,13honum sem lægir ofstopa höfðingjanna, sem ógurlegur er konungum jarðarinnar.

76.1 Asaf Slm 50.1+
76.2 Guð er kunnur Slm 48.4 – nafn hans mikið Slm 48.2; 99.3: Jós 7.9; 1Sam 12.22; 1Kon 8.42; Jer 10.6; 44.26; Esk 36.23; Mal 1.11; 2Kro 6.32
76.3 Tjaldbúð 2Sam 6.17; 7.2; sbr Slm 132.5 – Salem 1Mós 14.18; Heb 7.1
76.4 Vopn brotin sundur Slm 46.10; sbr 48.4-8; Hós 2.20
76.6 Deyddir í svefni 2Kon 19.35
76.7 Vagnar og hestar 2Mós 14.25
76.9 Guð, dómari jarðarinnar Slm 94.2+
76.10 Hjálpa hrjáðum Slm 12.6; 34.7; Jes 11.4; Jer 20.13; sbr Slm 72.2,4,12; 82.3
76.12 Efna heit sín Slm 22.26; 56.13; 65.2; 66.13; Préd 5.3-4