1Til söngstjórans. Ljóð. Sálmur. Fagnið fyrir Guði, gjörvallt jarðríki,2syngið um hans dýrlega nafn, gjörið lofstír hans vegsamlegan.3Mælið til Guðs: Hversu óttaleg eru verk þín, sakir mikilleiks máttar þíns hræsna óvinir þínir fyrir þér.4Öll jörðin lúti þér og lofsyngi þér, lofsyngi nafni þínu. Sela5Komið og sjáið verkin Guðs, sem er óttalegur í breytni sinni gagnvart mönnunum.6Hann breytti hafinu í þurrlendi, þeir fóru fótgangandi yfir ána. Þá glöddumst vér yfir honum.7Hann ríkir um eilífð sakir veldis síns, augu hans gefa gætur að þjóðunum, uppreistarmenn mega eigi láta á sér bæra. Sela8Þér lýðir, lofið Guð vorn og látið hljóma lofsöng um hann.9Hann veitti sálum vorum lífið og lét oss eigi verða valta á fótum.10Því að þú hefir rannsakað oss, ó Guð, hreinsað oss, eins og silfur er hreinsað.11Þú hefir varpað oss í fangelsi, lagt byrði á lendar vorar.12Þú hefir látið menn ganga yfir höfuð vor, vér höfum farið gegnum eld og vatn, en nú hefir þú leitt oss út á víðan vang.13Ég kem í hús þitt með brennifórnir, efni heit mín við þig,14þau er varir mínar hétu og munnur minn nefndi, þá er ég var í nauðum staddur.15Ég færi þér brennifórn af feitum dýrum, ásamt fórnarilm af hrútum, ég fórna nautum og höfrum. Sela16Komið, hlýðið til, allir þér er óttist Guð, að ég megi segja frá, hvað hann hefir gjört fyrir mig.17Til hans hrópaði ég með munni mínum, en lofgjörð lá undir tungu minni.18Ef ég hygg á illt í hjarta mínu, þá heyrir Drottinn ekki.19En Guð hefir heyrt, gefið gaum að bænarópi mínu.20Lofaður sé Guð, er eigi vísaði bæn minni á bug né tók miskunn sína frá mér.

66.1 Öll jörðin fagni Slm 98.4+
66.2 Hans dýrlega nafn Slm 29.2; 96.8; 115.1
66.3 Óvinir þínir hræsna Slm 18.45; 5Mós 33.29
66.4 Öll jörðin lýtur þér Jes 49.23; Esk 46.3
66.5 Komið og sjáið Slm 46.9
66.6 Haf, þurrlendi Slm 74.15; 114.3,5; 2Mós 14.16; Jós 3.13; Jes 44.27; 50.2
66.7 Augu hans … Slm 14.2; 33.13; 2Kro 16.9; Job 28.24
66.8 Lofið Guð vorn Slm 22.28-29; 117.1; 145.21
66.9 Varði fæturna falli Slm 55.23; 121.3
66.10 Reyna, hreinsa Slm 26.2; Jes 48.10; Jer 9.6; Sak 13.9; 1Pét 1.7
66.13 Efna heit sín Slm 76.12+
66.15 Alfórn Slm 51.21
66.16 Óttast Guð Slm 15.4+ – segja frá Slm 9.2+
66.18 Hafa illt í huga sbr Jes 1.16 – hefði Drottinn ekki hlustað Jóh 9.31
66.19 Guð heyrir bænir Slm 65.3+
66.20 Lofaður sé Guð Slm 28.6+