1Davíðssálmur. Ver eigi of bráður vegna illvirkjanna, öfunda eigi þá er ranglæti fremja,2því að þeir fölna skjótt sem grasið, visna sem grænar jurtir.3Treyst Drottni og gjör gott, bú þú í landinu og iðka ráðvendni,4þá munt þú gleðjast yfir Drottni, og hann mun veita þér það sem hjarta þitt girnist.5Fel Drottni vegu þína og treyst honum, hann mun vel fyrir sjá.6Hann mun láta réttlæti þitt renna upp sem ljós og rétt þinn sem hábjartan dag.7Ver hljóður fyrir Drottni og vona á hann. Ver eigi of bráður vegna þeirra er vel gengur, vegna þess manns er svik fremur.8Lát af reiði og slepp heiftinni, ver eigi of bráður, það leiðir til ills eins.9Illvirkjarnir verða afmáðir, en þeir er vona á Drottin, fá landið til eignar.10Innan stundar eru engir guðlausir til framar, þegar þú gefur gætur að stað þeirra, eru þeir horfnir.11En hinir hógværu fá landið til eignar, gleðjast yfir ríkulegri gæfu.12Óguðlegur maður býr yfir illu gegn réttlátum, nístir tönnum gegn honum.13Drottinn hlær að honum, því að hann sér að dagur hans kemur.14Óguðlegir bregða sverðinu og benda boga sína til þess að fella hinn hrjáða og snauða, til þess að brytja niður hina ráðvöndu.15En sverð þeirra lendir í þeirra eigin hjörtum, og bogar þeirra munu brotnir verða.16Betri er lítil eign réttláts manns en auðlegð margra illgjarnra,17því að armleggur illgjarnra verður brotinn, en réttláta styður Drottinn.18Drottinn þekkir daga ráðvandra, og arfleifð þeirra varir að eilífu.19Á vondum tímum verða þeir eigi til skammar, á hallæristímum hljóta þeir saðning.20En óguðlegir farast, og óvinir Drottins eru sem skraut vallarins: þeir hverfa sem reykur hverfa þeir.21Guðlaus maður tekur lán og borgar eigi, en hinn réttláti er mildur og örlátur.22Því að þeir sem Drottinn blessar, fá landið til eignar, en hinum bannfærðu verður útrýmt.23Frá Drottni kemur skrefum mannsins festa, þegar hann hefir þóknun á breytni hans.24Þótt hann falli, þá liggur hann ekki flatur, því að Drottinn heldur í hönd hans.25Ungur var ég og gamall er ég orðinn, en aldrei sá ég réttlátan mann yfirgefinn né niðja hans biðja sér matar.26Ætíð er hann mildur og lánar, og niðjar hans verða öðrum til blessunar.27Forðastu illt og gjörðu gott, þá munt þú búa kyrr um aldur,28því að Drottinn hefir mætur á réttlæti og yfirgefur ekki sína trúuðu. Þeir verða eilíflega varðveittir, en niðjar óguðlegra upprætast.29Hinir réttlátu fá landið til eignar og búa í því um aldur.30Munnur réttláts manns mælir speki og tunga hans talar það sem rétt er.31Lögmál Guðs hans er í hjarta hans, eigi skriðnar honum fótur.32Hinn guðlausi skimar eftir hinum réttláta og situr um að drepa hann,33en Drottinn ofurselur hann honum ekki og lætur hann ekki ganga sekan frá dómi.34Vona á Drottin og gef gætur að vegi hans, þá mun hann hefja þig upp, að þú erfir landið, og þú skalt horfa á, þegar illvirkjum verður útrýmt.35Ég sá hinn óguðlega í ofstopa sínum og þenja sig út sem grænt tré á gróðrarstöðvum sínum,36og ég gekk fram hjá, og sjá, hann var þar ekki framar, ég leitaði hans, en hann fannst ekki.37Gef gætur að hinum ráðvanda og lít á hinn hreinskilna, því að friðsamir menn eiga framtíð fyrir höndum,38en afbrotamönnum verður útrýmt öllum samt, framtíðarvon óguðlegra bregst.39Hjálp réttlátra kemur frá Drottni, hann er hæli þeirra á neyðartímum.40Drottinn liðsinnir þeim og bjargar þeim, bjargar þeim undan hinum óguðlega og hjálpar þeim, af því að þeir leituðu hælis hjá honum.

37.1 Eigi bráður Okv 24.19; sbr 23.17
37.2 Skjótt eins og grasið Slm 90.6+
37.3 Treysta Drottni Slm 9.11+ ; 55.24+
37.4 Gleði í Drottni Jes 58.14 – sem hjarta þitt þráir Slm 20.5; 21.3; 78.29; Okv 10.24
37.5 Fela Drottni Slm 22.9
37.6 Sem hábjartan dag Jes 58.10
37.7 Ver hljóður Slm 4.5; 62.6; Jes 30.15 – er vel gengur Slm 1.3; 10.5; Jer 12.1
37.8 Lát af reiði Ef 4.31; Kól 3.8; Jak 1.20
37.9 Fá landið til eignar Slm 37.11,22,29,34; 25.13; Jes 57.13; 60.21; Esk 11.17; sbr Matt 5.5
37.10 Horfinn Slm 103.16+
37.12 Gnístir tönnum Slm 35.16; 112.10
37.13 Drottinn hlær Slm 2.4+
37.14 Sverð og bogar óguðlegra Slm 7.13; 11.2
37.15 Rista eigin hjörtum Slm 7.17+ – bogar þeirra brotnir Slm 46.10
37.16 Lítil eign Okv 15.16; 16.8
37.17 Drottinn styður réttláta Slm 41.4,13; 55.23; sbr Slm 145.14; 146.9; 147.6; Jes 42.1
37.18 Drottinn hefur gætur á Slm 1.6; 31.8
37.19 Á vondum tímum Slm 27.5; 41.2; 49.6; 94.13
37.21 Örlátur Slm 112.9; Okv 21.26; sbr Matt 5.42; 10.8; Post 3.6; 20.35; Róm 12.8; Ef 4.28
37.22 Blessar … bannfærir Matt 25.34,41
37.23 Stýrir skrefum Okv 20.24
37.24 Heldur í hönd hans sbr Slm 37.17; 3.6; 119.116
37.26 Lána Slm 112.5 – til blessunar 1Mós 22.18; 26.4; 28.14; sbr 12.3; 18.18
37.27 Forðast illt, gera gott Slm 34.15
37.31 Lögmálið hjartfólgið 5Mós 6.6; Jer 31.33 – skriðnar eigi fótur Slm 26.1
37.33 Ofurselur hann ekki Slm 37.28; 9.11; 94.14; 5Mós 4.31; Jes 41.17
37.35 Ofstopi Slm 73.3-12; Job 20.6-7; Esk 31.10-12
37.36 Hvergi að finna Slm 37.10
37.37 Framtíð Okv 23.18
37.39 Hjálp réttlátra Slm 3.9; 57.4; 144.10; Jes 45.17; Jer 3.23; Post 4.12 – hæli Slm 27.1+ – á neyðartímum Slm 77.3+
37.40 Leituðu hælis Slm 7.2+