1Davíðssálmur.2Til þín, Drottinn, hef ég sál mína, Guð minn, þér treysti ég. Lát mig eigi verða til skammar, lát eigi óvini mína hlakka yfir mér.3Hver sá er á þig vonar, mun eigi heldur verða til skammar, þeir verða til skammar, er ótrúir eru að raunalausu.4Vísa mér vegu þína, Drottinn, kenn mér stigu þína.5Lát mig ganga í sannleika þínum og kenn mér, því að þú ert Guð hjálpræðis míns, allan daginn vona ég á þig.6Minnst þú miskunnar þinnar, Drottinn, og kærleiksverka, því að þau eru frá eilífð.7Minnst eigi æskusynda minna og afbrota, minnst mín eftir elsku þinni sakir gæsku þinnar, Drottinn.8Góður og réttlátur er Drottinn, þess vegna vísar hann syndurum veginn.9Hann lætur hina hrjáðu ganga eftir réttlætinu og kennir hinum þjökuðu veg sinn.10Allir vegir Drottins eru elska og trúfesti fyrir þá er gæta sáttmála hans og vitnisburða.11Sakir nafns þíns, Drottinn, fyrirgef mér sekt mína, því að hún er mikil.12Ef einhver óttast Drottin, mun hann kenna honum veg þann er hann á að velja.13Sjálfur mun hann búa við hamingju, og niðjar hans eignast landið.14Drottinn sýnir trúnað þeim er óttast hann, og sáttmála sinn gjörir hann þeim kunnan.15Augu mín mæna ætíð til Drottins, því að hann greiðir fót minn úr snörunni.16Snú þér til mín og líkna mér, því að ég er einmana og hrjáður.17Angist sturlar hjarta mitt, leið mig úr nauðum mínum.18Lít á eymd mína og armæðu og fyrirgef allar syndir mínar.19Lít á, hversu margir óvinir mínir eru, með rangsleitnishatri hata þeir mig.20Varðveit líf mitt og frelsa mig, lát mig eigi verða til skammar, því að hjá þér leita ég hælis.21Lát ráðvendni og hreinskilni gæta mín, því að á þig vona ég.22Frelsa Ísrael, ó Guð, úr öllum nauðum hans.

25.1 Til þín … Slm 86.4; 143.8
25.3 Vona á Drottinn Slm 27.14; 31.25+ ; 33.18; 52.10; 104.27; 119.43; 147.11 – verða ekki til skammar Slm 31.2+ ; Jes 49.23
25.4 Vísa mér Slm 27.11; 86.11; 119.35; 143.8; Jóh 14.4-6
25.5 Í sannleika Jóh 16.13
25.7 Minnast ekki Slm 79.8 – minnast mín Slm 106.4
25.10 Elska og trúfesti Slm 40.11-12; 57.4; 61.8, 85.11; 86.15, 115.1; 138.2, 1Mós 24.27,49; 32.10; 47.29; 2Mós 34.6; Jós 2.14; 2Sam 2.6, 15.20; Okv 3.3; 14.22; 16.6, 20.28; ath einnig Slm 26.3; 57.11; 69.14; 108.5, 117.2; Hós 4.1; Mík 7.20
25.11 Vegna nafns síns Slm 23.3+ – fyrirgef Slm 103.3
25.13 Erfa landið Slm 37.9; 1Mós 15.7,18; Jes 60.21; sbr Matt 5.5
25.14 Drottinn sýnir trúnað Jóh 15.15 – þeim sem óttast hann Slm 15.4+
25.15 Beina augunum til Drottins Slm 123.1; 141.8 – leysir úr snörunni Slm 31.5; 141.9
25.16 Snú þér Slm 86.16; 119.132
25.17 Leiða úr nauðum Slm 107.28
25.18 Eymd mín Slm 119.153 – fyrirgefa syndir Slm 32.5; 85.3
25.20 Guð er hæli Slm 34.9,23
25.21 Vernda Slm 40.12; 61.8
25.22 Guð frelsar Slm 34.23