1Helgigönguljóð Ég hef augu mín til fjallanna: Hvaðan kemur mér hjálp?2Hjálp mín kemur frá Drottni, skapara himins og jarðar.3Hann mun eigi láta fót þinn skriðna, vörður þinn blundar ekki.4Nei, hann blundar ekki og sefur ekki, hann, vörður Ísraels.5Drottinn er vörður þinn, Drottinn skýlir þér, hann er þér til hægri handar.6Um daga mun sólarhitinn eigi vinna þér mein, né heldur tunglið um nætur.7Drottinn mun vernda þig fyrir öllu illu, hann mun vernda sál þína.8Drottinn mun varðveita útgöngu þína og inngöngu héðan í frá og að eilífu.

121.1 Ég hef augu mín Slm 123.1 – til fjallanna Slm 48.2; 133.3 – hjálp Slm 3.5; 20.3
121.2 Skapari himins og jarðar Slm 115.15; 124.8; 134.3; 136.5; 146.6; 1Mós 1.1; 2Mós 20.11; Jes 42.5; Okv 3.19; Post 14.15; Opb 14.7
121.3 Varðveitir fót þinn Slm 66.9; 1Sam 2.9; Okv 3.23 – Drottinn, vörður Slm 127.1; Jes 27.3
121.4 Drottinn sefur ekki 1Kon 8.52; 18.27
121.5 Skýlir þér Slm 91.1; Jes 25.4; Lúk 1.35 – til hægri handar Slm 16.8+
121.6 Sólarhitinn Jes 49.10; SSal 18.3; Opb 7.16
121.7 Frá öllu illu Slm 41.3; 97.10; 1Mós 28.15; 1Þess 5.23; 1Tím 4.18
121.8 Útgöngu og inngöngu 5Mós 28.6 – að eilífu Slm 125.2; 131.3