1Vitið þér ekki, bræður, ég er hér að tala til þeirra, sem lögmál þekkja, að lögmálið drottnar yfir manninum svo lengi sem hann lifir.2Gift kona er að lögum bundin manni sínum, meðan hann lifir. En deyi maðurinn, er hún leyst undan lögmálinu, sem bindur hana við manninn.3Því mun hún hórkona teljast, ef hún, að manninum lifandi, verður annars manns. En deyi maðurinn er hún laus undan lögmálinu, svo að hún er ekki hórkona, þótt hún verði annars manns.4Eins er um yður, bræður mínir. Þér eruð dánir lögmálinu fyrir líkama Krists, til þess að verða öðrum gefnir, honum sem var upp vakinn frá dauðum, svo að vér mættum bera Guði ávöxt.5Þegar vér lifðum að holdsins hætti, störfuðu ástríður syndanna, sem lögmálið hafði vakið, í limum vorum, svo að vér bærum dauðanum ávöxt.6En nú erum vér leystir undan lögmálinu, þar sem vér erum dánir því, sem áður hélt oss bundnum, og þjónum í nýjung anda, en ekki í fyrnsku bókstafs.7Hvað eigum vér þá að segja? Er lögmálið synd? Fjarri fer því. En satt er það: Ég þekkti ekki syndina nema fyrir lögmálið. Ég hefði ekki vitað um girndina, hefði ekki lögmálið sagt: Þú skalt ekki girnast.8En syndin sætti lagi og vakti í mér alls kyns girnd með boðorðinu. Án lögmáls er syndin dauð.9Ég lifði einu sinni án lögmáls, en er boðorðið kom lifnaði syndin við,10en ég dó. Og boðorðið, sem átti að verða til lífs, það reyndist mér vera til dauða.11Því að syndin sætti lagi, dró mig á tálar með boðorðinu og deyddi mig með því.12Þannig er þá lögmálið heilagt og boðorðið heilagt, réttlátt og gott.13Varð þá hið góða mér til dauða? Fjarri fer því! Nei, það var syndin. Til þess að hún birtist sem synd, olli hún mér dauða með því, sem gott er. Þannig skyldi syndin verða yfir sig syndug fyrir boðorðið.14Vér vitum, að lögmálið er andlegt, en ég er holdlegur, seldur undir syndina.15Því að ég veit ekki, hvað ég aðhefst. Það sem ég vil, það gjöri ég ekki, en það sem ég hata, það gjöri ég.16En ef ég nú gjöri einmitt það, sem ég vil ekki, þá er ég samþykkur lögmálinu, að það sé gott.17En nú er það ekki framar ég sjálfur, sem gjöri þetta, heldur syndin, sem í mér býr.18Ég veit, að ekki býr neitt gott í mér, það er, í holdi mínu. Að vilja veitist mér auðvelt, en ekki að framkvæma hið góða.19Hið góða, sem ég vil, gjöri ég ekki, en hið vonda, sem ég vil ekki, það gjöri ég.20En ef ég gjöri það, sem ég vil ekki, þá er það ekki lengur ég sjálfur, sem framkvæmi það, heldur syndin, sem í mér býr.21Þannig reynist mér það þá regla fyrir mig, sem vil gjöra hið góða, að hið illa er mér tamast.22Innra með mér hef ég mætur á lögmáli Guðs,23en ég sé annað lögmál í limum mínum, sem berst á móti lögmáli hugar míns og hertekur mig undir lögmál syndarinnar í limum mínum.24Ég aumur maður! Hver mun frelsa mig frá þessum dauðans líkama?25Ég þakka Guði fyrir Jesú Krist, Drottin vorn. Svo þjóna ég þá sjálfur lögmáli Guðs með huga mínum, en lögmáli syndarinnar með holdinu.

7.4 Lausn undan lögmálinu Gal 2.19; 3.13 – dáin syndinni Róm 6.5-6; 2Kor 5.15
7.5 Eðli Róm 7-8
7.6 Andi og bókstafur Róm 2.29+
7.7 Lögmálið opinberar syndina Róm 3.20; 4.15 – girnd Jak 1.14-15 – tíunda boðorðið 2Mós 20.17; 5Mós 5.21
7.10 Til lífs 3Mós 18.5; 5Mós 4.1; 5.33; Esk 20.11
7.11 Syndin tældi 1Mós 3.13; 2Kor 11.3; Heb 3.13
7.14 Maðurinn er jarðneskt hold Slm 51.7; Jóh 3.6
7.22 Í hjarta mínu Ef 3.16
7.23 Hold og andi berjast Gal 5.16-23,25
7.24 Hver frelsar … ? Slm 22.1-12; 107.6,13,19,28
7.25 Kristur náðargjöf Guðs Róm 5.21; 6.23; 1Kor 15.57