1Þess vegna ber oss að gefa því enn betur gaum, er vér höfum heyrt, svo að eigi berumst vér afleiðis.2Því að hafi orðið af englum talað reynst stöðugt og hvert afbrot og óhlýðni hlotið réttlátt endurgjald,3hvernig fáum vér þá undan komist, ef vér vanrækjum slíkt hjálpræði sem Drottinn flutti fyrst og var staðfest fyrir oss af þeim, er heyrðu?4Guð bar jafnframt vitni með þeim með táknum og undrum og margs konar kraftaverkum og gjöfum heilags anda, sem hann útbýtti að vild sinni.5Því ekki lagði hann undir engla hinn komandi heim, sem vér tölum um.6Einhvers staðar er vitnað: Hvað er maður, að þú minnist hans? Eða mannssonur, að þú vitjir hans?7Skamma stund gjörðir þú hann englunum lægri. Þú hefur krýnt hann vegsemd og heiðri. Og þú hefur skipað hann yfir verk handa þinna.8Allt hefur þú lagt undir fætur hans.Með því að leggja allt undir hann, þá hefur hann ekkert það eftir skilið, er ekki sé undir hann lagt. Ennþá sjáum vér ekki, að allir hlutir séu undir hann lagðir.9En vér sjáum, að Jesús, sem skamma stund var gjörður englunum lægri, er krýndur vegsemd og heiðri vegna dauðans sem hann þoldi. Af Guðs náð skyldi hann deyja fyrir alla.10Allt er til vegna Guðs og fyrir Guð. Því varð hann, er hann leiðir marga syni til dýrðar, að fullkomna með þjáningum þann, er leiðir þá til hjálpræðis.11Því að sá sem helgar og þeir sem helgaðir verða eru allir frá einum komnir. Þess vegna telur hann sér eigi vanvirðu að kalla þá bræður,12er hann segir: Ég mun kunnugt gjöra nafn þitt bræðrum mínum, ég mun syngja þér lof mitt í söfnuðinum.13Og aftur: Ég mun treysta á hann.Og enn fremur: Sjá, hér er ég og börnin, er Guð gaf mér.14Þar sem nú börnin eru af holdi og blóði, þá hefur hann og sjálfur fengið hlutdeild í mannlegu eðli á sama hátt, til þess að hann með dauða sínum gæti að engu gjört þann, sem hefur mátt dauðans, það er að segja djöfulinn,15og frelsað alla þá, sem af ótta við dauðann voru undir þrælkun seldir alla sína ævi.16Því að víst er um það, að ekki tekur hann að sér englana, en hann tekur að sér afsprengi Abrahams.17Því var það, að hann í öllum greinum átti að verða líkur bræðrum sínum, svo að hann yrði miskunnsamur og trúr æðsti prestur í þjónustu fyrir Guði, til þess að friðþægja fyrir syndir lýðsins.18Sjálfur hefur hann þjáðst og hans verið freistað. Þess vegna er hann fær um að hjálpa þeim, er verða fyrir freistingu.

2.2 Refsins Heb 10.29; 12.25
2.4 Bar vitni með táknum og undrum Mrk 16.17-18,20; Post 5.12; Róm 15.19; 2Kor 12.12
2.6-8 Slm 8.5-7 – allt er lagt undir Krist 1Kor 15.27; Ef 1.22; Fil 3.21
2.9 Lægja, krýna vegsemd Fil 2.8-9
2.10 Fullkomna með þjáningum Lúk 13.32; Heb 5.9; 7.28
2.11 Systkin Matt 25.40; Mrk 3.35; Jóh 20.17
2.12 Slm 22.23
2.13a 2Sam 22.3; Jes 8.17
2.13b Jes 8.18
2.14 Varð sjálfur maður Róm 8.3; Fil 2.7; Heb 2.17 – verk djöfulsins SSal 2.24; 1Jóh 3.8
2.17 Kristur æðsti prestur Heb 3.1; 4.14; 5.1; 6.20; 7.26; 8.1; 9.11