1Hlustið, þér himnar, því að nú mun ég mæla, og jörðin hlýði á mál munns míns!2Kenning mín streymi sem regn, ræða mín drjúpi sem dögg, eins og gróðrarskúrir á grængresið og sem þungaregn á jurtirnar. Verk Guðs eru fullkomin3Ég vil kunngjöra nafn Drottins: Gefið Guði vorum dýrðina!4Bjargið fullkomin eru verk hans, því að allir vegir hans eru réttlæti. Trúfastur Guð og tállaus, réttlátur og réttvís er hann.5Synir hans eru spilltir orðnir, blettur er á þeim, rangsnúin og rammspillt kynslóð.6Ætlið þér að launa Drottni þannig, þú heimska og óvitra þjóð? Er hann ekki faðir þinn, sá er skóp þig, sá er gjörði þig og myndaði?7Minnstu fyrri tíða, hyggið að árum liðinna alda! Spyr föður þinn, að hann megi fræða þig, gamalmenni þín, að þau megi segja þér frá! Guð annast lýð sinn8Þá er hinn hæsti skipti óðulum meðal þjóðanna, þá er hann greindi í sundur mannanna börn, þá skipaði hann löndum þjóðflokkanna eftir tölu Ísraels sona.9Því að hlutskipti Drottins er lýður hans, Jakob úthlutuð arfleifð hans.10Hann fann hann í eyðimerkurlandi og í óbyggðum, innan um öskrið á öræfunum. Hann verndaði hann, hugði að honum, hann varðveitti hann sem sjáaldur auga síns.11Eins og örn, sem vekur upp hreiður sitt og svífur yfir ungum sínum, svo útbreiddi hann vængi sína, tók hann upp og bar hann á flugfjöðrum sínum.12Drottinn einn leiddi hann, og enginn annar guð var með honum.13Hann lét hann fram bruna á hæðum landsins og lét hann njóta ávaxtar akursins. Hann lét hann sjúga hunang úr klettunum og olífuolíu úr tinnusteinunum.14Hann ól hann á kúarjóma og sauðamjólk, ásamt feitu kjöti af dilkum og hrútum. Hann gaf honum Basan-uxa og kjarnhafra, ásamt nýrnafeiti hveitisins. Þrúgnablóð drakkst þú sem kostavín. Fráfall Guðs lýðs15En Jesjúrún varð feitur og sparkaði aftur undan sér, feitur varðst þú, digur og sællegur! Þá hafnaði hann Guði, skapara sínum, og fyrirleit bjarg hjálpræðis síns.16Þeir vöktu vandlæti hans með útlendum guðum, egndu hann til reiði með andstyggðum.17Þeir færðu fórnir vættum, sem ekki eru Guð, guðum, sem þeir höfðu eigi þekkt, nýjum guðum, nýlega upp komnum, er feður yðar höfðu engan beyg af.18Um bjargið, sem þig hafði getið, hirtir þú ekki og gleymdir þeim Guði, sem þig hafði alið. Dómurinn19Drottinn sá það og hafnaði þeim af gremju við sonu sína og dætur.20Og hann sagði: Ég vil byrgja auglit mitt fyrir þeim, ég ætla að sjá, hver afdrif þeirra verða. Því að þeir eru rangsnúin kynslóð, börn, sem engin tryggð er í.21Þeir hafa vakið vandlæti mitt með því, sem ekki er Guð, egnt mig til reiði með hinum fánýtu goðum sínum. Nú mun ég vekja vandlæti þeirra með því, sem ekki er þjóð, egna þá til reiði með heiðnum lýð.22Því að eldur kviknaði í nösum mér, og hann logar lengst niður í undirheima, eyðir jörðina og ávöxtu hennar og kveikir í undirstöðum fjallanna.23Ég vil hrúga yfir þá margs konar böli, eyða á þá öllum örvum mínum.24Þótt þeir séu megraðir af hungri og tærðir af sýki og eitraðri sótt, þá mun ég hleypa tönnum villidýranna á þá, ásamt eitri þeirra, er í duftinu skríða.25Sverðið mun eyða þeim úti fyrir, en hræðslan í húsum inni, bæði yngismönnum og meyjum, brjóstmylkingum og gráhærðum öldungum. Eintal Guðs26Ég mundi segja: Ég vil blása þeim burt, afmá minning þeirra meðal mannanna!27ef ég óttaðist ekki, að mér mundi gremjast við óvinina, að mótstöðumenn þeirra mundu leggja það út á annan veg, að þeir mundu segja: Hönd vor var á lofti, og það var ekki Drottinn, sem gjörði allt þetta!28Því að þeir eru ráðþrota þjóð, og hjá þeim eru engin hyggindi.29Ef þeir væru vitrir, þá mundu þeir sjá þetta, hyggja að, hver afdrif þeirra munu verða.30Hvernig gæti einn maður elt þúsund og tveir rekið tíu þúsundir á flótta, ef bjarg þeirra hefði ekki selt þá, ef Drottinn hefði ekki ofurselt þá?31Því að bjarg þeirra er ekki eins og vort bjarg um það geta óvinir vorir dæmt.32Því að vínviður þeirra er af vínviði Sódómu, af akurlöndum Gómorru. Vínber þeirra eru eitruð vínber, þrúgur þeirra beiskar.33Vín þeirra er höggormsólyfjan og banvænt nöðrueitur.34Er þetta ekki geymt hjá mér, innsiglað í forðabúrum mínum?35Mín er hefndin og mitt að endurgjalda, þá er þeir gjörast valtir á fótum. Því að glötunardagur þeirra er nálægur, og það ber óðfluga að, er fyrir þeim liggur. Guð líknar36Drottinn mun rétta hluta þjóðar sinnar og aumkast yfir þjóna sína, þá er hann sér, að öll hjálp er úti og enginn er framar til, þræll né frelsingi.37Þá mun hann segja: Hvar eru nú guðir þeirra, bjargið, er þeir leituðu hælis hjá,38sem átu feiti fórna þeirra og drukku vín dreypifórna þeirra? Rísi þeir nú upp og hjálpi yður, veri þeir yður nú hlíf! Ég einn er Guð39Sjáið nú, að ég, ég er hann, og að enginn guð er til nema ég! Ég deyði og ég lífga, ég særi og ég græði, og enginn getur frelsað af minni hendi.40Því að ég lyfti hendi minni til himins og segi: Svo sannarlega sem ég lifi eilíflega,41þegar ég hefi hvesst mitt blikandi sverð, og ég legg hönd á dóminn, þá mun ég efna hefnd við mótstöðumenn mína og endurgjalda þeim, er hata mig!42Ég vil gjöra örvar mínar drukknar af blóði, og sverð mitt skal hold eta af blóði veginna manna og hertekinna, af höfði fyrirliða óvinanna.43Vegsamið, þjóðir, lýð hans! því að hann hefnir blóðs þjóna sinna. Hann efnir hefnd við mótstöðumenn sína og friðþægir fyrir land síns lýðs.44Móse kom og flutti lýðnum öll orð þessa kvæðis í heyranda hljóði, hann og Hósea Núnsson.45Og er Móse hafði lokið að mæla öll þessi orð til alls Ísraels,46sagði hann við þá: Hugfestið öll þau orð, sem ég flyt yður í dag, til þess að þér getið brýnt þau fyrir börnum yðar, svo að þau gæti þess að halda öll orð þessa lögmáls.47Því að það er ekkert hégómamál fyrir yður, heldur er það líf yðar, og fyrir þetta orð munuð þér lifa langa ævi í landinu, sem þér haldið nú inn í yfir Jórdan til þess að taka það til eignar.48Þann hinn sama dag talaði Drottinn við Móse og sagði:49Far þú þarna upp á Abarímfjall, upp á Nebófjall, sem er í Móabslandi gegnt Jeríkó, og lít yfir Kanaanland, sem ég gef Ísraelsmönnum til eignar.50Og þú skalt deyja á fjallinu, er þú fer upp á, og safnast til þíns fólks, eins og Aron bróðir þinn dó á Hórfjalli og safnaðist til síns fólks,51af því að þið sýnduð mér ótrúmennsku mitt á meðal Ísraelsmanna hjá Meríbavötnum við Kades í Síneyðimörk, af því að þið helguðuð mig ekki meðal Ísraelsmanna.52Því að handan yfir skalt þú fá að líta landið, en inn í landið, sem ég gef Ísraelsmönnum, skalt þú ekki komast.

32.1 Himinn og jörð sem vitni 5Mós 4.26+
32.2 Lífgefandi orð Jes 55.10; Hós 6.3; Job 29.23; Sír 15.3; sbr Slm 72.6
32.3 Nafn Drottins 2Mós 34.5
32.4 Bjarg Slm 28.1+ – vegir Guðs Slm 145.17; Opb 15.3 – trúfastur Guð Jes 25.1; Hlj 3.23 – réttlátur Guð Slm 33.4; Róm 9.14
32.5 Spilltir synir Jes 1.2-4; Hós 1.2; 2.4 –svikul kynslóð 5Mós 1.35; 32.20; Matt 17.17 og hlst.; Post 2.40; Fil 2.15
32.6 Guð, faðir Ísraels 5Mós 1.31+ ; Jóh 8.41 – Guð, skapari Ísraels Jes 43.1
32.7 Fyrri tíðir 5Mós 4.32 – börnin frædd 2Mós 10.2+
32.8 Guð skiptir þjóðunum 1Mós 10; Post 17.26
32.9 Ísrael , erfðahluti Drottins 5Mós 7.6+; Sak 2.16; Sír 17.17
32.10 Auðninni Jer 2.2,6; Hós 13.5; sbr Esk 16.6 – sjáaldur augans Slm 17.8
32.12 Guð einn leiddi 1Mós 24.27; 2Mós 13.21; 15.13; Slm 80.2
32.13 Hunang Slm 81.17 – olía Job 29.6
32.15 Jesjúrún 5Mós 33.5,26; Jes 44.2 – feitur 5Mós 31.20
32.16 Vandlátur Guð 5Mós 32.21; sbr 5Mós 4.24 – egna Guð til reiði 5Mós 4
32.17 Illir andar Slm 106.37; 1Kor 10.20; Opb 9.20 – engir guðir eru 2Kon 19.18; Jer 2.11; 16.20; Hós 8.6
32.18 Gleyma Guði 5Mós 4.9+
32.21 Afbrýði, heift 1Kor 10.22
32.23 Böl 5Mós 28.15-68 – örvar Drottins 5Mós 32.42; Esk 5.16; Slm 38.3; Job 6.4
32.24 Tærandi hungur 5Mós 28.48,53-57 – vígtennt dýr 3Mós 26.22; Esk 14.15,21 – hungursneyð, villidýr, sverð 3Mós 26.22-28; Esk 5.17
32.25 Ungmenni, gamalmenni 5Mós 28.50
32.26 Afmá minning 5Mós 9.14+ ; Slm 34.17
32.27 Háð þjóðanna 5Mós 9.28+ – hönd okkar Jes 10.13-14 – vanmáttur Drottins 2Kon 18.35
32.30 Einn eltir þúsund Jes 30.17 – Guð ofurselur Dóm 2.14; 1Sam 12.9; 2Kro 24.24 – seldir Jes 50.1; 52.3; Slm 44.13
32.32 Vínviður Jes 5.2-4; Jer 2.21 – spilling Sódómu og Gómorru 1Mós 18.20-21; Jer 23.14
32.35 Mín er hefndin Róm 12.19; Heb 10.30; sbr Slm 94.1 – valtir á fótum Slm 38.17-18
32.36 Drottinn réttir hlut Slm 135.14
32.37 Hvar eru guðir þeirra? Dóm 10.14; Jer 2.28; sbr 1Kon 18.27
32.38 Guðir sem eta og drekka Slm 50.12-13; VDan 2.1-22
32.39 Drottinn er einn Guð 5Mós 4.35; Jes 43.11; Hós 13.4; Sír 3.5 – frelsari Hós 13.4; Post 4.12
32.40 Sverja 2Mós 6.8+ ; Opb 10.5-6
32.41 Sverð Guðs Hab 3.11 – endurgjalda 5Mós 7.10
32.42 Örvar 5Mós 32.23+
32.43 Guð hefnir þjóna sinna Opb 6.10; 19.2 – Guð fyrirgefur 5Mós 21.8
32.45 Allur Ísrael 5Mós 1.1+
32.46 Gæta þess að halda 5Mós 5.1+ – ákvæði laganna 5Mós 27.3+
32.47 Taka landið til eignar 5Mós 1.21+ – líf ykkar 5Mós 4.26+
32.50-52 Drottinn reiðist Móse 5Mós 1.37+
32.50 Þú átt að deyja 4Mós 27.12-14 – dauði Arons 4Mós 20.24-28 – safnast til síns fólks 1Mós 25.8,17; 35.29; 49.33; sbr 4Mós 20.24
32.51 Meríbavötn 2Mós 17.7+ ; 4Mós 20.1-13
32.52 Fyrirheitna landið 5Mós 3.27