Biblíulestur 10. ágúst – Mrk 14.1–11
Nú voru tveir dagar til páska og hátíðar ósýrðu brauðanna. Og æðstu prestarnir og fræðimennirnir leituðu fyrir sér hvernig þeir gætu handsamað Jesú með svikum og tekið hann af lífi. En þeir sögðu: „Ekki á hátíðinni, þá gæti orðið uppþot meðal fólksins.“
Jesús var í Betaníu, í húsi Símonar líkþráa, og sat að borði. Þá kom þar kona og hafði alabastursbuðk með ómenguðum, dýrum nardussmyrslum. Hún braut buðkinn og hellti yfir höfuð honum. En þar voru nokkrir er gramdist þetta og þeir sögðu sín á milli: „Til hvers er þessi sóun á smyrslum? Þessi smyrsl hefði mátt selja fyrir meira en þrjú hundruð denara og gefa fátækum.“ Og þeir atyrtu hana.
En Jesús sagði: „Látið hana í friði! Hvað eruð þið að angra hana? Gott verk gerði hún mér. Fátæka hafið þið jafnan hjá ykkur og getið gert þeim gott nær þið viljið en mig hafið þið ekki ávallt. Hún gerði það sem í hennar valdi stóð. Hún hefur fyrir fram smurt líkama minn til greftrunar. Sannlega segi ég ykkur: Hvar sem fagnaðarerindið verður flutt, um heim allan, mun og getið verða þess sem hún gerði og hennar minnst.“
Júdas Ískaríot, einn þeirra tólf, fór þá til æðstu prestanna að framselja þeim hann. Þegar þeir heyrðu það urðu þeir glaðir við og hétu honum fé fyrir. En hann leitaði færis að framselja hann.
Biblíulestur – 13. september – Slm 106 1.1–12
Hallelúja. Þakkið Drottni því að hann er góður, því að miskunn hans varir að eilífu. Hver getur sagt frá máttarverkum Drottins, kunngjört allan lofstír hans? Sælir eru þeir sem gæta [...]
Biblíulestur – 12. september – 2Kor 3.1–18
Er ég nú aftur tekinn að mæla með sjálfum mér? Eða mundi ég þurfa, eins og sumir, meðmælabréf til ykkar eða frá ykkur? Þið eruð meðmælabréf mitt, ritað á hjarta [...]
Biblíulestur – 11. september – 2Kor 2.1–17
En það ásetti ég mér að koma ekki aftur til ykkar með hryggð. Ef ég hryggi ykkur, hver er þá sá sem gleður mig? Sá sem ég er að hryggja? [...]
Biblíulestur – 10. september – 2Kor 1.12–24
Ég hrósa mér af því að ég veit með sjálfum mér að líf mitt í heiminum, og sérstaklega hjá ykkur, hefur stjórnast af hreinskilni og einlægni sem kemur frá Guði, [...]
Biblíulestur – 9. september – 2Kor 1.1–11
Páll, að Guðs vilja postuli Krists Jesú, og Tímóteus, bróðir okkar, heilsa söfnuði Guðs, sem er í Korintu, ásamt öllum heilögum, í gervallri Akkeu. Náð sé með yður og friður [...]
Biblíulestur – 8. september – 5Mós 19.14–21
Þú skalt ekki færa úr stað landamerki nágranna þíns sem forfeðurnir hafa sett í erfðalandi þínu sem kemur í hlut þinn í landinu sem Drottinn, Guð þinn, fær þér til [...]