Biblíulestur 11. ágúst – Mrk 14.12–31
Á fyrsta degi ósýrðu brauðanna, þegar menn slátruðu páskalambinu, sögðu lærisveinar hans við Jesú: „Hvert vilt þú að við förum og búum þér páskamáltíðina?“
Þá sendi Jesús tvo lærisveina sína og sagði við þá: „Farið inn í borgina og ykkur mun mæta maður sem ber vatnsker. Fylgið honum og þar sem hann fer inn skuluð þið segja við húsráðandann: Meistarinn spyr: Hvar er herbergið þar sem ég get neytt páskamáltíðarinnar með lærisveinum mínum? Hann mun þá sýna ykkur loftsal mikinn, búinn hægindum og til reiðu. Búið þar til máltíðar fyrir okkur.“
Lærisveinarnir fóru, komu inn í borgina og fundu allt eins og hann hafði sagt og bjuggu til páskamáltíðar.
Um kvöldið kom hann með þeim tólf. Þegar þeir sátu að borði og mötuðust sagði Jesús: „Sannlega segi ég ykkur: Einn af ykkur mun svíkja mig, einn sem með mér etur.“
Þeir urðu hryggir við og sögðu við hann, einn af öðrum: „Er það ég?“
Hann svaraði þeim: „Það er einn þeirra tólf. Hann dýfir brauðinu í fatið með mér. Mannssonurinn fer að sönnu héðan svo sem um hann er ritað en vei þeim manni sem því veldur að Mannssonurinn verður framseldur. Betra væri þeim manni að hafa aldrei fæðst.“
Þá er þeir mötuðust tók Jesús brauð, þakkaði Guði, braut það, gaf þeim og sagði: „Takið, þetta er líkami minn.“
Og Jesús tók kaleik, gerði þakkir og gaf þeim og þeir drukku af honum allir. Og hann sagði við þá: „Þetta er blóð mitt, blóð sáttmálans, úthellt fyrir marga. Sannlega segi ég ykkur: Héðan í frá mun ég eigi drekka af ávexti vínviðarins til þess dags er ég drekk hann nýjan í Guðs ríki.“
Þegar þeir höfðu sungið lofsönginn fóru þeir til Olíufjallsins. Og Jesús sagði við þá: „Þið munuð allir hafna mér því að ritað er:
Ég mun slá hirðinn
og sauðirnir munu tvístrast.
En eftir að ég er upp risinn mun ég fara á undan ykkur til Galíleu.“
Þá sagði Pétur: „Þótt allir hafni þér geri ég það aldrei.“
Jesús sagði við hann: „Sannlega segi ég þér: Nú í nótt, áður en hani galar tvisvar, muntu afneita mér þrisvar.“
En Pétur kvað enn fastar að: „Þó að ég ætti að deyja með þér þá mun ég aldrei afneita þér.“
Eins töluðu þeir allir.
Biblíulestur – 19. september – 2Kor 7.1–16
Þar eð við því höfum þessi fyrirheit, elskuð börn mín, þá hreinsum okkur af allri saurgun á líkama og sál og fullkomnum helgun okkar í guðsótta. Rýmið fyrir mér í [...]
Biblíulestur – 18. september – 2Kor 6.1–18
Sem samverkamaður Krists hvet ég ykkur einnig að þið látið ekki náð Guðs, sem þið hafið þegið, verða til einskis. Hann segir: Á hagkvæmri tíð bænheyrði ég þig, og á [...]
Biblíulestur – 17. september – 2Kor 5.11–21
Með því að ég nú veit hvað það er að óttast Drottin leitast ég við að sannfæra menn. En Guð gjörþekkir mig, ég vona að þið gerið það einnig í [...]
Biblíulestur – 16. september – 2Kor 5.1–10
Við vitum að þótt jarðnesk tjaldbúð okkar verði rifin niður þá höfum við hús frá Guði, eilíft hús á himnum sem eigi er með höndum gert. Á meðan andvörpum við [...]
Biblíulestur – 15. september – 2Kor 4.1–18
Guð hefur sýnt mér miskunn og falið mér þessa þjónustu. Þess vegna læt ég ekki hugfallast. Ég hafna allri skammarlegri launung, ég beiti ekki klækjum né falsa Guðs orð heldur [...]
Biblíulestur – 14. september – Lúk 10.23–37
Og Jesús sneri sér að lærisveinum sínum og sagði einslega við þá: „Sæl eru þau augu sem sjá það sem þér sjáið. Því að ég segi yður: Margir spámenn og [...]