Biblíulestur – Hvítasunnudagur 8. júní – Jóh 14.23–31a
Jesús svaraði: „Sá sem elskar mig varðveitir mitt orð og faðir minn mun elska hann. Til hans munum við koma og gera okkur bústað hjá honum. Sá sem elskar mig ekki varðveitir ekki mín orð. Orðið, sem þér heyrið, er ekki mitt heldur föðurins sem sendi mig.
Þetta hef ég talað til yðar meðan ég var hjá yður. En hjálparinn, andinn heilagi, sem faðirinn mun senda í mínu nafni mun kenna yður allt og minna yður á allt það sem ég hef sagt yður. Frið læt ég yður eftir, minn frið gef ég yður. Ekki gef ég yður eins og heimurinn gefur. Hjarta yðar skelfist ekki né hræðist. Þér heyrðuð að ég sagði við yður: Ég fer burt og kem til yðar. Ef þér elskuðuð mig yrðuð þér glöð af því að ég fer til föðurins því faðirinn er mér meiri. Nú hef ég sagt yður það áður en það verður svo að þér trúið þegar það gerist. Ég mun ekki framar tala margt við yður því höfðingi heimsins kemur. Í mér á hann ekkert. En heimurinn á að sjá að ég elska föðurinn og geri eins og faðirinn hefur boðið mér.
Biblíulestur 20. ágúst – Mt 26.57-68
Fyrir ráðinu 57 Þeir sem tóku Jesú höndum færðu hann til Kaífasar æðsta prests en þar voru saman komnir fræðimennirnir og öldungarnir. 58 Pétur fylgdi honum álengdar, allt að garði [...]
Biblíulestur 19. ágúst – Mrk 7.31-37
Allt gerir hann vel 31 Síðan hélt Jesús úr Týrusarbyggðum, um Sídon og yfir Dekapólisbyggðir miðjar til Galíleuvatns. 32 Þá færa menn til hans daufan og málhaltan mann og biðja [...]
Biblíulestur 18. ágúst – Slm 47.1-10
1 Til söngstjórans. Kóraítasálmur. 2Klappið saman lófum, allar þjóðir, fagnið fyrir Guði með gleðiópi 3því að Drottinn, Hinn hæsti, er ógurlegur, voldugur konungur yfir allri jörðinni. 4Hann leggur undir oss [...]
Biblíulestur 17. ágúst – Mt 26.47-56
Tekinn höndum 47 Meðan Jesús var enn að tala kom Júdas, einn þeirra tólf, og með honum mikill flokkur frá æðstu prestunum og öldungunum og höfðu þeir sverð og barefli. [...]
Biblíulestur 16. ágúst – Mt 26.30-46
30 Þegar þeir höfðu sungið lofsönginn fóru þeir til Olíufjallsins. Afneitun sögð fyrir 31 Þá segir Jesús við þá: „Á þessari nóttu munuð þið allir hafna mér því að ritað [...]
Biblíulestur 15. ágúst – Mt 26.17-29
Búið til páskamáltíðar 17 Á fyrsta degi ósýrðu brauðanna komu lærisveinarnir til Jesú og sögðu: „Hvar vilt þú að við búum þér páskamáltíðina?“ 18 Hann mælti: „Farið til ákveðins manns [...]