Biblíulestur 22. júlí – Jer 5.14–31
Þess vegna segir Drottinn, Guð hersveitanna:
Af því að þeir hafa talað
geri ég orð mín að eldi í munni þér
og þetta fólk að eldiviðnum
sem hann gleypir.
Hyggið að, Ísraelsmenn.
Ég leiði gegn yður þjóð úr fjarlægu landi,
segir Drottinn.
Sú þjóð er ósigrandi,
þetta er eldforn þjóð.
Tungu þessarar þjóðar kannt þú ekki
og skilur ekki hvað hún segir.
Örvamælir hennar er sem opin gröf,
allir eru þeir hetjur.
Þeir gleypa kornuppskeru þína og brauð,
þeir gleypa syni þína og dætur,
rífa í sig sauðfé þitt og naut,
vínvið þinn og fíkjutré,
þeir höggva niður með sverði
hinar víggirtu borgir sem þú treystir á.
En á þeim dögum, segir Drottinn, mun ég ekki gereyða yður. Ef menn spyrja: „Hvers vegna hefur Drottinn, Guð vor, gert oss allt þetta?“ skalt þú svara þeim: „Á sama hátt og þér yfirgáfuð mig og þjónuðuð framandi guðum í landi yðar verðið þér að þjóna útlendingum í landi sem ekki er yðar.“
Kunngjörið meðal Jakobs niðja,
boðið í Júda og segið:
Hlýddu á, heimska og skilningslausa þjóð,
sem hefur augu en sérð ekki,
eyru en heyrir ekki:
Óttist þér mig eigi? segir Drottinn,
skjálfið þér eigi fyrir augliti mínu?
Ég setti hafinu skorður með fjörusandinum,
varanleg mörk sem það fer eigi yfir.
Þótt öldurnar æði fær það engu áorkað,
þótt þær drynji kemst það eigi yfir þau.
Þessi þjóð er þverúðarfull og þrjósk í hjarta.
Þeir hafa vikið af leið og horfið burt.
Þeir hugsuðu eigi með sér:
„Óttumst Drottin, Guð vorn,
sem gefur regn, haustregn og vorregn, á réttum tíma,
tryggir oss ákveðna uppskerutíð.“
Afbrot yðar hafa fært þetta allt úr skorðum,
syndir yðar hafa svipt yður blessuninni.
Illmenni er að finna meðal þjóðar minnar.
Þau leynast eins og veiðimenn sem læðast,
setja upp gildrur
og veiða menn.
Eins og fuglabúr full af fuglum
eru hús þeirra full af svikum.
Þess vegna eru þau voldug og rík,
feit og sælleg.
Þau styðja málstað illmenna,
kveða eigi upp rétta dóma
í þágu munaðarleysingja
svo að þeim farnist vel
og reka eigi réttar fátæklinga.
Ætti ég ekki að refsa þeim fyrir það? segir Drottinn,
ætti ég ekki að hefna mín á annarri eins þjóð og þessari?
Óttalegt og hræðilegt er það sem við ber í landinu.
Spámennirnir boða lygi,
prestarnir kenna að eigin geðþótta
og þjóð minni fellur það vel.
En hvað ætlið þér að gera
þegar kemur að skuldadögunum?
Biblíulestur 22. janúar – Opb 2.1–11
Engli safnaðarins í Efesus skalt þú rita: Þetta segir sá sem heldur á stjörnunum sjö í hægri hendi sér, sá sem gengur á milli gullstiknanna sjö: Ég þekki verkin þín [...]
Biblíulestur 21. janúar – Opb 1.12–20
Ég sneri mér við til að sjá hvers raust það væri sem við mig talaði. Og er ég sneri mér við sá ég sjö gullljósastikur og milli ljósastikanna einhvern, líkan [...]
Biblíulestur 20. janúar – Opb 1.1–11
Opinberun Jesú Krists sem Guð gaf honum til að sýna þjónum sínum það sem verða á innan skamms. Jesús Kristur sendi engil sinn og lét hann kynna það Jóhannesi, þjóni [...]
Biblíulestur 19. janúar – Esk 3.16–27
Að sjö dögum liðnum kom orð Drottins til mín: „Mannssonur, ég hef gert þig að verði Ísraelsmanna. Þegar þú heyrir orð af munni mínum átt þú að vara þá við [...]
Biblíulestur 18. janúar – Lúk 19.1–10
Jesús kom til Jeríkó og gekk gegnum borgina. En þar var maður er Sakkeus hét. Hann var yfirtollheimtumaður og auðugur. Langaði hann að sjá hver Jesús væri en tókst það [...]
Biblíulestur 17. janúar – Slm 113.1–9
Hallelúja. Lofið Drottin, þér þjónar hans, lofið nafn Drottins. Nafn Drottins sé blessað héðan í frá og að eilífu. Frá sólarupprás til sólarlags sé nafn Drottins vegsamað. Drottinn er hafinn [...]