Biblíulestur 9. september – Jer 20.7–18
Þú blekktir mig, Drottinn, og ég lét blekkjast,
þú tókst mig tökum og barst hærri hlut.
Ég verð sífellt að athlægi,
allir hæða mig.
Í hvert skipti sem ég tala verð ég að hrópa
og verð að kalla: „Ofbeldi og kúgun.“
Því að orð Drottins varð mér til skammar
og skapraunar allan daginn.
Ef ég sagði: „Ég vil ekki hugsa um hann lengur
og ekki tala í hans nafni,“
fannst mér eldur loga í hjarta mér,
brenna í beinum mínum.
Ég örmagnaðist við áreynsluna,
hún varð mér um megn.
Ég hef heyrt baktal fjöldans:
„Skelfing hvarvetna.
Kærið hann, vér skulum kæra hann.“
Allir nánir vinir mínir bíða þess að ég hrasi:
„Ef til vill lætur hann blekkjast
svo að vér getum yfirbugað hann
og hefnt vor á honum.“
En Drottinn stendur með mér eins og voldug hetja,
þess vegna hrasa þeir sem ofsækja mig og sigra ekki.
Þeir gera sjálfum sér hneisu því að þeir erfiða án árangurs,
baka sér ævarandi smán sem aldrei gleymist.
Drottinn hersveitanna, þú sem prófar hinn réttláta,
þú sem sérð nýrun og hjartað,
láttu mig sjá hefnd þína á þeim.
Þér fel ég málstað minn.
Lofsyngið Drottni, vegsamið Drottin
því að hann frelsar líf hins snauða
úr greipum illvirkjanna.
Bölvaður sé dagurinn þegar ég fæddist.
Dagurinn, sem móðir mín ól mig,
sé ekki blessaður.
Bölvaður sé maðurinn
sem færði föður mínum gleðitíðindin:
„Þér er fæddur sonur,“
og gladdi hann með því stórlega.
Fyrir þessum manni fari eins og borgunum
sem Drottinn eyddi vægðarlaust:
Hann heyri neyðaróp að morgni
og heróp um hádegi
því að hann eyddi mér ekki í móðurkviði
svo að móðir mín yrði mér gröf
og móðurlíf hennar ævinlega þungað.
Hvers vegna þurfti ég að koma úr skauti móður minnar
til þess að sjá mæðu og andstreymi
og enda ævidaga mína í smán?
Biblíulestur 17. mars – Hlj 2.11–17
Augu mín daprast af gráti, ég ólga hið innra og galli mínu er úthellt á jörðina sökum tortímingar dótturinnar, þjóðar minnar, börn og brjóstmylkingar hníga magnþrota niður á strætum borgarinnar. [...]
Biblíulestur 16. mars – Hlj 2.1–10
Hvílíkum sorta hefur Drottinn í reiði sinni hulið dótturina Síon. Frá himni varpaði hann til jarðar vegsemd Ísraels og minntist ekki fótskarar sinnar á degi reiði sinnar. Vægðarlaust eyddi Drottinn [...]
Biblíulestur 15. mars – Jóh 6.47–51
Sannlega, sannlega segi ég yður: Sá sem trúir hefur eilíft líf. Ég er brauð lífsins. Feður ykkar átu manna í eyðimörkinni en þeir dóu. Þetta er brauðið sem niður stígur [...]
Biblíulestur 14. mars – Slm 118.1–14
Þakkið Drottni því að hann er góður, því að miskunn hans varir að eilífu. Það mæli Ísrael því að miskunn hans varir að eilífu. Það mæli Arons ætt því að [...]
Biblíulestur 13. mars – Hlj 1.12–22
Skiptir þetta engu yður sem fram hjá farið? Skyggnist um og sjáið, finnst sú kvöl sem jafnast á við þá sem á mig var lögð, mig sem Drottinn þjakaði á [...]
Biblíulestur 12. mars – Hlj 1.1–11
Ó, hversu einmana er nú borgin sem áður var svo mannmörg, orðin eins og ekkja, sú er voldug var meðal þjóðanna, drottningin meðal héraðanna orðin kvaðarkona. Hún grætur sáran um [...]