Biblíulestur 23. mars – Hlj 3.42–66
Vér höfum syndgað og verið óhlýðnir,
þú hefur ekki fyrirgefið,
þú sveipaðir þig reiði, ofsóttir oss
og deyddir vægðarlaust.
Þú sveipaðir þig skýi
svo að engin bæn kemst í gegn.
Þú gerðir oss að skarni og sorpi
á meðal þjóðanna.
Allir óvinir vorir
glenntu upp ginið.
Geigur og gildra urðu hlutskipti vort,
eyðing og tortíming.
Táralækir streyma af augum mér
því að þjóð minni er tortímt.
Hvíldarlaust fljóta augu mín í tárum
án þess að hlé verði á,
uns Drottinn lítur niður af himnum
og horfir á.
Það sem auga mitt lítur kvelur mig
vegna allra dætra borgar minnar.
Þeir sem voru óvinir mínir án tilefnis
hafa elt mig eins og fugl.
Þeir reyndu að granda mér í gryfju
og köstuðu steinum á mig.
Vatn flóði yfir höfuð mitt,
ég hugsaði: „Það er úti um mig.“
Ég ákallaði nafn þitt, Drottinn,
úr djúpi gryfjunnar.
Þú heyrðir hróp mitt: „Byrg ekki eyra þitt
fyrir ákalli mínu um hjálp.“
Þú nálgaðist mig þegar ég hrópaði til þín,
sagðir: „Óttast ekki!“
Þú varðir, Drottinn, málstað minn,
leystir líf mitt.
Þú hefur, Drottinn, séð óréttinn sem ég er beittur,
rétt þú hlut minn.
Þú hefur séð hefndarþorsta þeirra,
allt ráðabrugg þeirra gegn mér,
þú hefur heyrt háðsyrði þeirra, Drottinn,
allt ráðabrugg þeirra gegn mér,
sífellt hljóðskraf andstæðinga minna
og ráðagerðir þeirra gegn mér.
Sjá þú, hvort sem þeir sitja eða standa
kveða þeir háðkvæði um mig.
Endurgjald þeim, Drottinn,
eins og þeir hafa til unnið.
Legg hulu yfir hjarta þeirra,
bölvan þín komi yfir þá.
Ofsæktu þá í reiði og afmá þá
undan himni Drottins.
Biblíulestur 27. júní – Matt 15.21–28
Þaðan hélt Jesús til byggða Týrusar og Sídonar. Þá kom kona nokkur kanversk úr þeim héruðum og kallaði: „Miskunna þú mér, Drottinn, sonur Davíðs! Dóttir mín er mjög kvalin af [...]
Biblíulestur 26. júní – Mík 4.1–8
En sjá, þeir dagar koma að musterisfjall Drottins stendur óbifanlegt, hæst allra fjalla, og gnæfir yfir hæðirnar. Þangað munu þjóðirnar flykkjast og segja: „Komum. Göngum upp á fjall Drottins, til [...]
Biblíulestur 25. júní – Lúk 15.11–32
Enn sagði Jesús: „Maður nokkur átti tvo sonu. Sá yngri þeirra sagði við föður sinn: Faðir, lát mig fá þann hluta eignanna sem mér ber. Og faðirinn skipti með þeim [...]
Biblíulestur 24. júní – Lúk 1.57–66
Nú kom sá tími að Elísabet skyldi verða léttari og ól hún son. Og nágrannar hennar og ættmenn heyrðu hversu mikla miskunn Drottinn hafði auðsýnt henni og samfögnuðu henni. Á [...]
Biblíulestur 23. júní – Jes 66.18–24
Ég mun sjálfur koma til að stefna saman öllum þjóðum og tungum og þær munu koma og sjá dýrð mína. Ég mun setja upp tákn á meðal þeirra og senda [...]
Biblíulestur 22.6.2023 – 1Jóh 2.1–11
Börnin mín! Þetta skrifa ég ykkur til þess að þið skulið ekki syndga. En ef einhver syndgar, þá höfum við málsvara hjá föðurnum, Jesú Krist, hinn réttláta. Hann er friðþæging [...]