Biblíulestur 4. apríl – Matt 27.62–66
Næsta dag, hvíldardaginn, gengu æðstu prestarnir og farísearnir saman fyrir Pílatus og sögðu: „Herra, við minnumst þess að svikari þessi sagði í lifanda lífi: Eftir þrjá daga rís ég upp. Bjóð því að grafarinnar sé vandlega gætt allt til þriðja dags, ella gætu lærisveinar hans komið og stolið honum og sagt fólkinu: Hann er risinn frá dauðum. Þá verða síðari svikin verri hinum fyrri.“
Pílatus sagði við þá: „Hér hafið þið varðmenn, farið og búið svo tryggilega um sem best þið kunnið.“
Þeir fóru og gengu tryggilega frá gröfinni og innsigluðu steininn með aðstoð varðmannanna.
Biblíulestur 4. september – Opb 21.9–27
Nú kom einn af englunum sjö, sem héldu á skálunum sjö, sem fullar voru af síðustu plágunum sjö, og talaði við mig og sagði: „Kom hingað og ég mun sýna [...]
Biblíulestur 3. september – Matt 5.43–48
Þér hafið heyrt að sagt var: Þú skalt elska náunga þinn og hata óvin þinn. En ég segi yður: Elskið óvini yðar og biðjið fyrir þeim sem ofsækja yður. Þannig [...]
Biblíulestur 3. september – Matt 22.1–14
Þá tók Jesús enn að segja þeim dæmisögu: „Líkt er um himnaríki og konung einn sem gerði brúðkaup sonar síns. Hann sendi þjóna sína að kalla boðsgestina til brúðkaupsins en [...]
Biblíulestur 2.9.2023 – Slm 58.1–12
Þér voldugu, talið þér í sannleika það sem rétt er? Dæmið þér mennina af sanngirni? Nei, allir aðhafist þér ranglæti á jörðu, hendur yðar deila út ofbeldi. Guðlausir menn villast [...]
Biblíulestur 2. september – Matt 15.21–28
Þaðan hélt Jesús til byggða Týrusar og Sídonar. Þá kom kona nokkur kanversk úr þeim héruðum og kallaði: „Miskunna þú mér, Drottinn, sonur Davíðs! Dóttir mín er mjög kvalin af [...]
Biblíulestur 1. september – 1Þess 4.13–5.11
4. kafli Ekki vil ég, systkin, láta ykkur vera ókunnugt um þau sem sofnuð eru, til þess að þið séuð ekki hrygg eins og hin sem ekki eiga von. Því [...]