Biblíulestur 24. september – Jak 1.1–18
Jakob, þjónn Guðs og Drottins Jesú Krists, heilsar þeim tólf kynkvíslum í dreifingunni.
Kæri söfnuður, álítið það mesta fagnaðarefni er þið ratið í ýmiss konar raunir. Þið vitið að trúfesti ykkar vekur þolgæði en þolgæðið á að birtast í því sem þið gerið, til þess að þið séuð fullkomin og alger og ykkur sé í engu ábótavant.
Ef einhvern mann í ykkar hópi brestur visku, þá biðji hann Guð sem gefur öllum örlátlega og átölulaust og honum mun gefast. En hann biðji í trú án þess að efast. Sá sem efast er líkur sjávaröldu er rís og hrekst fyrir vindi. Sá maður má eigi ætla að hann fái nokkuð hjá Drottni. Hann er tvílyndur og reikull í öllu atferli sínu.
Sá sem er lágt settur hrósi sér af upphefð sinni, auðmaðurinn af allsleysi sínu því að hann mun líða undir lok eins og blóm á engi. Sólin kemur upp með steikjandi hita og svíður grasið og blóm þess fellur og fegurð þess verður að engu. Þannig mun og auðugur maður visna upp á vegum sínum.
Sæll er sá maður sem stenst freistingu og reynist hæfur. Guð mun veita honum kórónu lífsins sem hann hefur heitið þeim er elska hann. Enginn má segja er hann verður fyrir freistingu: „Guð freistar mín.“ Hið illa getur eigi freistað Guðs og sjálfur freistar hann einskis manns. Það er eigin girnd sem freistar sérhvers manns og dregur hann og tælir. Þegar girndin síðan er orðin þunguð elur hún synd og þegar syndin er orðin fullþroskuð leiðir hún til dauða.
Villist ekki, elskuð systkin. Sérhver góð gjöf og sérhver fullkomin gáfa er ofan að, frá föður ljósanna. Hjá honum er engin umbreyting né flöktandi skuggar. Hann er ávallt hinn sami. Hann ákvað að láta orð sannleikans vekja okkur til lífs til þess að við skyldum vera frumgróði sköpunar hans.
Biblíulestur 20. júní – Slm 119.113–128
Ég hata tvílráða menn en lögmál þitt elska ég. Þú ert skjól mitt og skjöldur, ég vona á orð þitt. Víkið frá mér, illgjörðamenn, að ég megi halda boð Guðs [...]
Biblíulestur 19. júní – Mrk 9.14–29
Þegar þeir komu til lærisveinanna sáu þeir mannfjölda mikinn kringum þá og fræðimenn að þrátta við þá. En um leið og fólkið sá hann sló þegar felmtri á menn og [...]
Biblíulestur 18. júní – Mrk 9.2–13
Eftir sex daga tekur Jesús með sér þá Pétur, Jakob og Jóhannes og fer með þá upp á hátt fjall að þeir væru einir saman. Þar ummyndaðist hann fyrir augum [...]
Biblíulestur 17. júní – Matt 7.7–12
Biðjið og yður mun gefast, leitið og þér munuð finna, knýið á og fyrir yður mun upp lokið verða. Því að hver sá öðlast sem biður, sá finnur sem leitar, [...]
Biblíulestur 16. júní – Mrk 8.27–9.1
Jesús fór nú ásamt lærisveinum sínum til þorpanna hjá Sesareu Filippí. Á leiðinni spurði hann lærisveina sína: „Hvern segja menn mig vera?“ Þeir svöruðu honum: „Jóhannes skírara, aðrir Elía og [...]
Biblíulestur 15. júní – Heb 13.17–25
Hlýðið leiðtogum ykkar og verið þeim eftirlát. Þeir vaka yfir sálum ykkar og eiga að lúka reikning fyrir þær. Verið þeim eftirlát til þess að þeir geti gert það með [...]