Biblíulestur 25. september – Jak 1.19–2.7
Vitið þetta, elskuð systkin. Hver maður skal vera fljótur til að heyra, seinn til að tala, seinn til reiði. Því að reiði manns ávinnur ekki það sem rétt er í augum Guðs. Leggið því af hvers konar saurugleik og alla vonsku og takið með hógværð á móti hinu gróðursetta orði er frelsað getur sálir ykkar.
Verðið gerendur orðsins og eigi aðeins heyrendur þess, ella svíkið þið sjálf ykkur. Því að hlýði einhver á orðið án þess að fara eftir því er hann líkur manni er skoðar sjálfan sig í spegli. Hann skoðar andlit sitt, fer burt og gleymir jafnskjótt hvernig það var. En sá sem skyggnist inn í hið fullkomna lögmál frelsisins og heldur sér við það og gleymir ekki því sem hann heyrir heldur framkvæmir það, verður sæll í verkum sínum.
Sá sem þykist vera guðrækinn en hefur ekki taumhald á tungu sinni blekkir sjálfan sig og guðrækni hans er fánýt. Hrein og flekklaus guðrækni fyrir Guði föður er að vitja munaðarlausra og ekkna í þrengingum þeirra og varðveita sjálfan sig óflekkaðan af heiminum.
Bræður mínir og systur, þið sem trúið á Jesú Krist, dýrðardrottin okkar, farið ekki í manngreinarálit. Nú kemur maður inn í samkundu ykkar með gullhring á hendi og í skartlegum klæðum og jafnframt kemur inn fátækur maður í óhreinum fötum. Ef öll athygli ykkar beinist að þeim sem skartklæðin ber og þið segið: „Settu þig hérna í gott sæti!“ en segið við fátæka manninn: „Stattu þarna eða settu þig á gólfið við fótskör mína,“ hafið þið þá ekki mismunað mönnum og orðið dómarar með illum hvötum?
Heyrið, elskuð systkin. Hefur Guð ekki útvalið þá sem eru fátækir í augum heimsins til þess að þeir verði auðugir í trú og erfi ríkið er hann hefur heitið þeim sem elska hann? En þið hafið óvirt hinn fátæka. Eru það þó ekki hinir ríku sem undiroka ykkur og draga ykkur fyrir dómstóla? Eru það ekki þeir sem lastmæla hinu góða nafni sem nefnt var yfir ykkur?
Biblíulestur 26. júní – Mrk 10.32–45
Þeir voru nú á leið upp til Jerúsalem. Jesús gekk á undan þeim en þeir voru skelfdir og þau sem eftir fylgdu voru hrædd. Og enn tók Jesús til sín [...]
Biblíulestur 25. júní – Mrk 10.13–31
Menn færðu börn til Jesú að hann snerti þau en lærisveinarnir átöldu þá. Þegar Jesús sá það sárnaði honum og hann mælti við þá: „Leyfið börnunum að koma til mín, [...]
Biblíulestur 24. júní – Lúk 1.57–80
Nú kom sá tími að Elísabet skyldi verða léttari og ól hún son. Og nágrannar hennar og ættmenn heyrðu hversu mikla miskunn Drottinn hafði auðsýnt henni og samfögnuðu henni. Á [...]
Biblíulestur 23. júní – Mrk 9.42–10.12
Hverjum þeim sem tælir til falls einn af þessum smælingjum sem trúa væri betra að vera varpað í hafið með mylnustein um hálsinn. Ef hönd þín tælir þig til falls [...]
Biblíulestur 22. júní – Mrk 9.30–41
Þeir héldu nú brott þaðan og fóru um Galíleu en Jesús vildi ekki að neinn vissi það því að hann var að kenna lærisveinum sínum. Hann sagði þeim: „Mannssonurinn verður [...]
Biblíulestur 21. júní – Lúk 15.11–32
Enn sagði Jesús: „Maður nokkur átti tvo sonu. Sá yngri þeirra sagði við föður sinn: Faðir, lát mig fá þann hluta eignanna sem mér ber. Og faðirinn skipti með þeim [...]