Daglegur lestur2025-11-23T00:01:48+00:00

Biblíulestur 23. maí – Jóh 7.37–39

Síðasta daginn, hátíðardaginn mikla, stóð Jesús þar og kallaði: „Ef nokkurn þyrstir þá komi hann til mín og drekki. Frá hjarta þess sem trúir á mig munu renna lækir lifandi vatns, eins og ritningin segir.“ Þarna átti hann við andann er þau skyldu hljóta sem á hann trúa. Því enn var andinn ekki gefinn þar eð Jesús var ekki enn dýrlegur orðinn.

Biblíulestur 1. júní – Slm 75.1–11

Vér þökkum þér, Guð, vér þökkum. Vér áköllum nafn þitt og segjum frá undraverkum þínum. „Þegar mér þykir tími til kominn dæmi ég af réttvísi. Þótt jörðin skjálfi ásamt öllum [...]

Biblíulestur 31. maí – 1Mós 3.14–24

Þá sagði Drottinn Guð við höggorminn: Af því að þú gerðir þetta skaltu vera bölvaður meðal alls fénaðarins og meðal allra dýra merkurinnar. Á kviði þínum skaltu skríða og mold [...]

Fara efst