Daglegur lestur2025-11-23T00:01:48+00:00

Biblíulestur 24. maí – Jóh 14.15–21

Ef þér elskið mig munuð þér halda boðorð mín. Ég mun biðja föðurinn og hann mun gefa yður annan hjálpara sem verður hjá yður að eilífu, anda sannleikans. Heimurinn getur ekki tekið á móti honum því hann sér hann ekki né þekkir. Þér þekkið hann því hann er hjá yður og verður í yður. Ekki mun ég skilja yður eftir munaðarlaus. Ég kem til yðar. Innan skamms mun heimurinn ekki sjá mig framar. Þér munuð sjá mig því ég lifi og þér munuð lifa. Á þeim degi munuð þér skilja að ég er í föður mínum og þér í mér og ég í yður. Sá sem hefur boðorð mín og heldur þau er sá sem elskar mig. En þann sem elskar mig mun faðir minn elska og ég mun elska hann og birta honum hver ég er.“

Biblíulestur 7. júní – 2Mós 16.1–12

Því næst lögðu þeir af stað frá Elím. Allur söfnuður Ísraelsmanna kom inn í Síneyðimörkina, sem er milli Elím og Sínaí, á fimmtánda degi annars mánaðarins eftir brottför þeirra úr [...]

Biblíulestur 3. júní – Job 1.6–22

Dag nokkurn bar svo til að synir Guðs komu og gengu fyrir Drottin og var Satan á meðal þeirra. Drottinn spurði Satan: „Hvaðan kemur þú?“ Satan svaraði Drottni og sagði: [...]

Fara efst