Biblíulestur 19. október – Jer 31.27–37
Þeir dagar koma, segir Drottinn, að ég mun fjölga bæði mönnum og dýrum í Ísrael og Júda. Ég vakti yfir þeim til að uppræta, rífa, brjóta, eyða og valda skaða; eins mun ég vaka yfir þeim til að byggja og gróðursetja, segir Drottinn.
Á þeim dögum verður ekki lengur sagt: „Feðurnir átu súr vínber og tennur barna þeirra urðu sljóar.“ Nei, sérhver mun deyja vegna eigin sektar; hver sá sem etur súr vínber fær sljóar tennur.
Þeir dagar koma, segir Drottinn, þegar ég geri nýjan sáttmála við Ísraelsmenn og Júdamenn. Hann verður ekki eins og sáttmálinn sem ég gerði við feður þeirra þegar ég tók í hönd þeim og leiddi þá út úr Egyptalandi. Þeir rufu þann sáttmála við mig þótt ég væri herra þeirra, segir Drottinn. Þannig er sáttmálinn sem ég mun gera við Ísraelsmenn þegar þessir dagar eru liðnir, segir Drottinn: Ég legg lögmál mitt þeim í brjóst og rita það á hjörtu þeirra. Ég verð Guð þeirra og þeir verða lýður minn. Enginn mun framar þurfa að kenna landa sínum og bróður og segja: Þekkið Drottin. Allir munu þekkja mig, bæði stórir og smáir, segir Drottinn. Ég mun fyrirgefa þeim sekt þeirra og minnist ekki framar syndar þeirra.
Svo segir Drottinn,
sem setti sólina til að lýsa um daga
og tungl og stjörnur til að lýsa um nætur,
sem æsir hafið svo að öldurnar gnýja,
Drottinn hersveitanna er nafn hans:
Raskist þessi skipan fyrir augliti mínu
hætta niðjar Ísraels að vera þjóð fyrir augliti mínu
fyrir fullt og allt, segir Drottinn.
Svo segir Drottinn:
Ef himinninn yfir oss yrði mældur
og undirstöður jarðar hið neðra rannsakaðar
mundi ég hafna öllum niðjum Ísraels
vegna alls þess sem þeir hafa gert,
segir Drottinn.
Biblíulestur 9. ágúst – Matt 11.16–24
Við hvað á ég að líkja þessari kynslóð? Lík er hún börnum sem á torgum sitja og kallast á: Vér lékum fyrir yður á flautu og ekki vilduð þér dansa. [...]
Biblíulestur 8. ágúst – Slm 122
Ég varð glaður er menn sögðu við mig: „Göngum í hús Drottins.“ Fætur vorir standa í hliðum þínum, Jerúsalem. Jerúsalem, þú rammgerða borg, þéttbyggð og traust, þangað sem ættbálkarnir halda, [...]
Biblíulestur 7. ágúst – Mrk 13.24–37
En á þeim dögum, eftir þrenging þessa, mun sólin sortna og tunglið hætta að skína. Stjörnurnar munu hrapa af himni og festingin riðlast. Þá munu menn sjá Mannssoninn koma í [...]
Biblíulestur 6. ágúst – Mrk 13.1–23
Þegar Jesús gekk út úr helgidóminum segir einn lærisveina hans við hann: „Meistari, sjáðu, hvílíkir steinar, hvílíkar byggingar!“ Jesús svaraði honum: „Sérðu þessar miklu byggingar? Hér verður ekki steinn yfir [...]
Biblíulestur 5. ágúst – Jer 10.10–25
En Drottinn er hinn sanni Guð, hann er lifandi Guð og eilífur konungur. Jörðin skelfur fyrir heift hans og þjóðirnar standast ekki reiði hans. Um þá skuluð þér segja: Guðum, [...]
Biblíulestur 4. ágúst – Jer 9.21–10.9
Segðu: Svo segir Drottinn: Lík manna liggja á jörðinni eins og mykja á velli, eins og kornknippi aftan við sláttumann og enginn tínir þau saman. Svo segir Drottinn: Hinn vitri [...]