Daglegur lestur2025-11-23T00:01:48+00:00

Biblíulestur 20. október – Jer 31.38–32.8

Þeir dagar koma, segir Drottinn, að borg Drottins verður endurreist frá turni Hananels að Hornhliðinu. Mælisnúran mun liggja beint að Garebhæð og sveigja síðan til Góa. Allur dalurinn með líkunum og fórnaröskunni og hlíðarnar að Kídronlæk austur að horninu við Hrossahliðið verða helgaðar Drottni. Ekkert verður nokkru sinni framar upprætt þar eða rifið niður.

Orðið sem kom til Jeremía frá Drottni á tíunda stjórnarári Sedekía Júdakonungs en það var átjánda stjórnarár Nebúkadresars. Her konungsins í Babýlon sat þá um Jerúsalem og Jeremía spámaður var í haldi í garði varðliðsins við höll Júdakonungs. Sedekía Júdakonungur hafði hann þar í haldi og sagði: „Hvers vegna hefur þú flutt þennan boðskap: Svo segir Drottinn: Ég sel þessa borg í hendur konunginum í Babýlon sem mun vinna hana. Sedekía Júdakonungur mun ekki ganga Kaldeum úr greipum heldur verður hann seldur konunginum í Babýlon í hendur. Hann mun standa frammi fyrir honum og tala við hann augliti til auglitis. Hann mun flytja Sedekía til Babýlonar og þar verður hann þar til ég vitja hans, segir Drottinn. Ef þér berjist við Kaldea hafið þér ekki erindi sem erfiði?“
Jeremía sagði: Orð Drottins kom til mín: Hanameel, sonur Sallúms, föðurbróður þíns, mun koma til þín og segja: Kauptu akur minn sem er í Anatót því að þér ber að kaupa hann samkvæmt innlausnarskyldunni. Hanameel, sonur föðurbróður míns, kom síðan til mín í garð varðliðsins eins og Drottinn hafði sagt. Hann sagði við mig: „Kauptu akur minn í Anatót í landi Benjamíns. Þar sem þú hefur innlausnarskylduna samkvæmt eignarréttinum skaltu kaupa hann.“

Biblíulestur 14. ágúst – Mrk 15.1–20

Þegar að morgni gerðu æðstu prestarnir samþykkt með öldungunum, fræðimönnunum og öllu ráðinu. Þeir létu binda Jesú og færa brott og framseldu hann Pílatusi. Pílatus spurði hann: „Ert þú konungur [...]

Biblíulestur 13. ágúst – Mrk 14.53–72

Nú færðu þeir Jesú til æðsta prestsins. Þar komu saman allir æðstu prestarnir, öldungarnir og fræðimennirnir. Pétur fylgdi honum álengdar, allt inn í garð æðsta prestsins. Þar sat hann hjá [...]

Biblíulestur 11. ágúst – Mrk 14.12–31

Á fyrsta degi ósýrðu brauðanna, þegar menn slátruðu páskalambinu, sögðu lærisveinar hans við Jesú: „Hvert vilt þú að við förum og búum þér páskamáltíðina?“ Þá sendi Jesús tvo lærisveina sína [...]

Biblíulestur 10. ágúst – Mrk 14.1–11

Nú voru tveir dagar til páska og hátíðar ósýrðu brauðanna. Og æðstu prestarnir og fræðimennirnir leituðu fyrir sér hvernig þeir gætu handsamað Jesú með svikum og tekið hann af lífi. [...]

Fara efst