Biblíulestur 6. júní – Slm 119.81–96
Sál mín tærist af þrá eftir hjálp þinni,
ég bíð eftir orði þínu,
augu mín daprast af þrá eftir orði þínu:
Hvenær munt þú hugga mig?
Ég er orðinn eins og skorpinn vínbelgur
en lögum þínum hef ég eigi gleymt.
Hve margir eru dagar þjóns þíns?
Hvenær kveður þú upp dóm yfir ofsækjendum mínum?
Hrokafullir grófu mér grafir,
þeir hlýða ekki lögum þínum.
Öll boð þín eru áreiðanleg,
menn ofsækja mig með lygum,
veit mér lið!
Við lá að þeir afmáðu mig af jörðinni
en ég vék ekki frá fyrirmælum þínum.
Lát mig lífi halda sakir miskunnar þinnar,
að ég megi varðveita reglurnar af munni þínum.
Orð þitt, Drottinn, varir að eilífu,
það stendur stöðugt á himnum.
Frá kyni til kyns varir trúfesti þín,
þú hefur grundvallað jörðina og hún stendur.
Eftir ákvæðum þínum stendur hún enn í dag
því að allt lýtur þér.
Væru lög þín ekki gleði mín
hefði ég farist í eymd minni.
Ég skal aldrei gleyma fyrirmælum þínum
því að með þeim hefur þú látið mig lífi halda.
Þinn er ég, bjarga mér
því að ég leita fyrirmæla þinna.
Óguðlegir sitja fyrir mér
en ég gef gaum að reglum þínum.
Ég hef séð takmörk á allri fullkomnun
en boð þín eiga sér engin takmörk.
Biblíulestur 30. ágúst – Mík 4.1–8
En sjá, þeir dagar koma að musterisfjall Drottins stendur óbifanlegt, hæst allra fjalla, og gnæfir yfir hæðirnar. Þangað munu þjóðirnar flykkjast og segja: „Komum. Göngum upp á fjall Drottins, til [...]
Biblíulestur 29. ágúst – Jes 66.18–24
Ég mun sjálfur koma til að stefna saman öllum þjóðum og tungum og þær munu koma og sjá dýrð mína. Ég mun setja upp tákn á meðal þeirra og senda [...]
Biblíulestur 28. ágúst – 1Jóh 2.1–11
Börnin mín! Þetta skrifa ég ykkur til þess að þið skulið ekki syndga. En ef einhver syndgar, þá höfum við málsvara hjá föðurnum, Jesú Krist, hinn réttláta. Hann er friðþæging [...]
Biblíulestur 27. ágúst – Heb 8.1–13
Höfuðinntak þess sem sagt hefur verið er þetta: Við höfum þann æðsta prest er settist til hægri handar við hásæti hátignarinnar á himnum. Hann þjónar sem prestur í helgidóminum, hinni [...]
Biblíulestur 26. ágúst – Post 2.25–41
því að Davíð segir um hann: Ávallt hafði ég Drottin fyrir augum mér. Hann er mér til hægri handar svo að mér sé borgið. Fyrir því gladdist hjarta mitt og [...]
Biblíulestur 25. ágúst – Jóh 9.24–41
Nú kölluðu þeir í annað sinn á manninn, sem blindur hafði verið, og sögðu við hann: „Gef þú Guði dýrðina. Við vitum að þessi maður er syndari.“ Hann svaraði: „Ekki [...]