Biblíulestur 7. júní – Matt 8.23–27
Nú fór Jesús í bátinn og lærisveinar hans fylgdu honum. Þá gerði svo mikið veður á vatninu að bylgjurnar gengu yfir bátinn. En Jesús svaf. Þeir fara til, vekja hann og segja: „Drottinn, bjarga okkur, við förumst.“
Hann sagði við þá: „Hví eruð þið hræddir, þið trúlitlir?“ Síðan reis hann upp, hastaði á vindinn og vatnið og varð stillilogn.
Mennirnir undruðust og sögðu: „Hvílíkur maður er þetta? Jafnvel vindar og vatn hlýða honum.“
Biblíulestur 5. september – Job 29.1–17
Job hélt áfram ræðu sinni og sagði: Ég vildi að ég væri eins og áður fyrr þegar Guð verndaði mig, þegar hann lét lampa sinn lýsa yfir höfði mér og [...]
Biblíulestur 4. september – Opb 21.9–27
Nú kom einn af englunum sjö, sem héldu á skálunum sjö, sem fullar voru af síðustu plágunum sjö, og talaði við mig og sagði: „Kom hingað og ég mun sýna [...]
Biblíulestur 3. september – Matt 22.1–14
Þá tók Jesús enn að segja þeim dæmisögu: „Líkt er um himnaríki og konung einn sem gerði brúðkaup sonar síns. Hann sendi þjóna sína að kalla boðsgestina til brúðkaupsins en [...]
Biblíulestur 2. september – Matt 15.21–28
Þaðan hélt Jesús til byggða Týrusar og Sídonar. Þá kom kona nokkur kanversk úr þeim héruðum og kallaði: „Miskunna þú mér, Drottinn, sonur Davíðs! Dóttir mín er mjög kvalin af [...]
Biblíulestur 1. september – Mrk 1.29–35
Úr samkundunni fóru þeir rakleitt í hús Símonar og Andrésar og með þeim Jakob og Jóhannes. Tengdamóðir Símonar lá með sótthita og sögðu þeir Jesú þegar frá henni. Hann gekk [...]
Biblíulestur 31. ágúst – Slm 79.1–13
Guð, heiðingjar hafa ruðst inn í erfðaland þitt, þeir hafa saurgað þitt heilaga musteri, lagt Jerúsalem í rúst. Þeir hafa gefið fuglum himinsins lík þjóna þinna að æti og dýrum [...]