Biblíulestur 13. júní – Slm 119.97–112
Hve mjög elska ég lögmál þitt,
allan daginn íhuga ég það.
Boð þín hafa gert mig vitrari en óvini mína
því að þau hef ég ætíð hjá mér.
Ég er hyggnari en allir kennarar mínir
því að ég íhuga reglur þínar.
Ég er skynsamari en öldungar
því að ég held fyrirmæli þín.
Ég forða fæti mínum frá hverjum vondum vegi
því að ég fylgi orði þínu.
Ég vík eigi frá reglum þínum
því að þú hefur kennt mér.
Hve sæt eru fyrirheit þín gómi mínum,
hunangi betri munni mínum.
Af fyrirmælum þínum er ég skynsamur orðinn,
þess vegna hata ég sérhvern lygaveg.
Þitt orð er lampi fóta minna
og ljós á vegum mínum.
Ég hef svarið og haldið það
að varðveita þín réttlátu ákvæði.
Ég er mjög beygður, Drottinn,
lát mig lífi halda eftir orði þínu.
Drottinn, tak með velþóknun við gjöfum munns míns
og kenn mér ákvæði þín.
Líf mitt er ætíð í hættu
en ég hef ekki gleymt lögmáli þínu.
Óguðlegir hafa lagt snöru fyrir mig
en ég hef ekki villst frá fyrirmælum þínum.
Fyrirmæli þín eru hlutskipti mitt um aldur
því að þau gleðja hjarta mitt.
Ég hef hneigt hjarta mitt að því að hlýða boðum þínum
um aldur og allt til enda.
Biblíulestur 11. október – 5Mós 5.1–15
Móse kallaði allan Ísrael saman og sagði: Heyr þú, Ísrael, lögin og ákvæðin sem ég boða ykkur nú í dag. Lærið þau, haldið þau af kostgæfni. Drottinn, Guð okkar, gerði [...]
Biblíulestur 10. október – Kól 1.24–2.5
Nú er ég glaður í þjáningum mínum ykkar vegna og uppfylli með þjáningum líkama míns það sem enn vantar á þjáningar Krists til heilla fyrir líkama hans, kirkjuna. Hennar þjónn [...]
Biblíulestur 9. október – Jóh 15.9–25
Ég hef elskað yður eins og faðirinn hefur elskað mig. Verið stöðug í elsku minni. Ef þér haldið boðorð mín verðið þér stöðug í elsku minni, eins og ég hef [...]
Biblíulestur 8. október – Matt 18.15–20
Ef bróðir þinn syndgar [gegn þér] skaltu fara og tala um fyrir honum og sé það ykkar einna í milli. Láti hann sér segjast hefur þú endurheimt bróður þinn. En [...]
Biblíulestur 7. október – 2Kon 2.1–14
Þegar Drottinn hugðist hefja Elía til himins í stormviðri voru þeir Elía og Elísa á leið frá Gilgal. Elía sagði við Elísa: „Bíð hér því að Drottinn hefur sent mig [...]
Biblíulestur 6. október – Jóh 1.35–51
Daginn eftir var Jóhannes þar aftur staddur og tveir lærisveinar hans. Hann sér Jesú á gangi og segir: „Sjá, Guðs lamb.“ Lærisveinar hans tveir heyrðu orð hans og fóru á [...]