Biblíulestur 15. júní – Heb 13.17–25
Hlýðið leiðtogum ykkar og verið þeim eftirlát. Þeir vaka yfir sálum ykkar og eiga að lúka reikning fyrir þær. Verið þeim eftirlát til þess að þeir geti gert það með gleði, ekki andvarpandi. Það væri ykkur til ógagns.
Biðjið fyrir mér því að ég er þess fullviss að ég hef góða samvisku og vil í öllum greinum breyta vel. Ég bið ykkur enn rækilegar um að gera þetta til þess að ég verði brátt aftur sendur til ykkar.
Guð friðarins, sem leiddi Drottin vorn, Jesú, hinn mikla hirði sauðanna, upp frá dauðum með blóði eilífs sáttmála, styrki yður í öllu góðu í hlýðni við vilja sinn. Láti hann allt það verða í oss sem honum er þóknanlegt fyrir Jesú Krist. Honum sé dýrð um aldir alda. Amen.
Ég hef ritað ykkur fáein hvatningarorð, ég bið ykkur, systkin, að taka þeim vel.
Þið skuluð vita að bróðir okkar Tímóteus hefur verið látinn laus og ásamt honum mun ég heimsækja ykkur, komi hann bráðum.
Berið kveðju öllum leiðtogum ykkar og öllum heilögum. Mennirnir frá Ítalíu senda ykkur kveðju.
Náð sé með yður öllum.
Biblíulestur 23. október – Lúk 21.5–19
Einhverjir höfðu orð á að helgidómurinn væri prýddur fögrum steinum og heitgjöfum. Þá sagði Jesús: „Þeir dagar koma að allt sem hér blasir við verður lagt í rúst, ekki steinn [...]
Biblíulestur 22. október – Lúk 12.1–12
Fólk hafði nú flykkst að í tugum þúsunda svo að nærri tróð hver annan undir. Jesús tók þá að tala, fyrst til lærisveina sinna: „Varist súrdeig farísea sem er hræsnin. [...]
Biblíulestur 21. október – Jes 51.9–16
Vakna þú, vakna, íklæð þig styrk, þú armur Drottins, vakna þú eins og í árdaga, á tímum löngu genginna kynslóða. Varst það ekki þú sem hjóst Rahab og lagðir drekann [...]
Biblíulestur 20. október – Lúk 18.1–8
Þá sagði Jesús þeim dæmisögu um það hvernig þeir skyldu stöðugt biðja og eigi þreytast: „Í borg einni var dómari sem hvorki óttaðist Guð né skeytti um nokkurn mann. Í [...]
Biblíulestur 19. október – Slm 84.1–13
Hversu yndislegir eru bústaðir þínir, Drottinn hersveitanna. Sálu mína langaði til, já, hún þráði forgarða Drottins, nú fagnar hjarta mitt og hold fyrir hinum lifanda Guði. Jafnvel fuglinn hefur fundið [...]
Biblíulestur 18. október – 1Tím 6.3–10
Ef einhver fer með villukenningar og fylgir ekki hinum heilnæmu orðum Drottins vors Jesú Krists og því sem trú okkar kennir, þá hefur hann ofmetnast og veit ekki neitt. Hann [...]