1Til söngstjórans, eftir Jedútún. Davíðssálmur.2Ég sagði: Ég vil gefa gætur að vegum mínum, að ég drýgi eigi synd með tungunni, ég vil leggja haft á munn minn, meðan hinn illgjarni er í nánd við mig.3Ég var hljóður og þagði, en kvöl mín ýfðist.4Hjartað brann í brjósti mér, við andvörp mín logaði eldurinn upp, ég sagði:5Lát mig, Drottinn, sjá afdrif mín og hvað mér er útmælt af dögum, lát mig sjá, hversu skammær ég er.6Sjá, örfáar þverhendur hefir þú gjört daga mína, og ævi mín er sem ekkert fyrir þér. Andgustur einn eru allir menn. Sela7Sem tómur skuggi gengur maðurinn um, gjörir háreysti um hégómann einan, hann safnar í hrúgur, en veit eigi hver þær hlýtur.8Hvers vona ég þá, Drottinn? Von mín er öll á þér.9Frelsa mig frá öllum syndum mínum, lát mig eigi verða heimskingjum að spotti.10Ég þegi, ég opna eigi munninn, því að þú hefir talað.11Lát plágu þína víkja frá mér, ég verð að engu fyrir krafti handar þinnar.12Þá er þú beitir hirtingu við manninn fyrir misgjörð hans, lætur þú yndisleik hans eyðast, sem mölur væri. Andgustur einn eru allir menn. Sela13Heyr bæn mína, Drottinn, og hlýð á kvein mitt, ver eigi hljóður við tárum mínum, því að ég er aðkomandi hjá þér, útlendingur eins og allir feður mínir.14Lít af mér, svo að hýrna megi yfir mér, áður en ég fer burt og er eigi til framar.

39.1 Jebútún Slm 62.1; 77.1
39.2 Með orðum Job 2.10
39.3 Hljóður, steinþagði Slm 32.3; 38.14
39.5 Útmælt af dögum Slm 89.48; 90.9-10; Job 7.6-21; 14.1-5; sbr Jes 40.7; Préd 6.2
39.6 Andgustur Slm 62.10; 144.4
39.8 Hvers vona ég? Job 17.13-16
39.12 Eins og mölur Job 13.28
39.13 Útlendingur Slm 119.19; 1Mós 23.4; 3Mós 25.23; 1Kro 29.15; Heb 11.13; 1Pét 2.11
39.14 Líttu af mér Job 7.19,21; 10.20-22; 14.6