1Davíðssálmur. Drottinn, ég ákalla þig, skunda þú til mín, ljá eyra raust minni, er ég ákalla þig.2Bæn mín sé fram borin sem reykelsisfórn fyrir auglit þitt, upplyfting handa minna sem kvöldfórn.3Set þú, Drottinn, vörð fyrir munn minn, gæslu fyrir dyr vara minna.4Lát eigi hjarta mitt hneigjast að neinu illu, að því að fremja óguðleg verk með illvirkjum, og lát mig eigi eta krásir þeirra.5Þótt réttlátur maður slái mig og trúaður hirti mig, mun ég ekki þiggja sæmd af illum mönnum. Bæn mín stendur gegn illsku þeirra.6Þegar höfðingjum þeirra verður hrundið niður af kletti, munu menn skilja, að orð mín voru sönn.7Eins og menn höggva við og kljúfa á jörðu, svo skal beinum þeirra tvístrað við gin Heljar.8Til þín, Drottinn, mæna augu mín, hjá þér leita ég hælis, sel þú eigi fram líf mitt.9Varðveit mig fyrir gildru þeirra, er sitja um mig, og fyrir snörum illvirkjanna.10Hinir óguðlegu falli í sitt eigið net, en ég sleppi heill á húfi.

141.1 Ákalla Drottin Slm 3.5+ – skunda Slm 31.3+ – ljá eyra Slm 71.2+
141.2 Upplyfting handa Slm 28.2+
141.8 Leita hælis Slm 7.2+
141.9 Gildra Slm 9.16+
141.10 Í eigin gildru Slm 7.16+