1Ég fel yður á hendur Föbe, systur vora, sem er þjónn safnaðarins í Kenkreu.2Veitið henni viðtöku í Drottni eins og heilögum hæfir og liðsinnið henni í hverju því, sem hún þarf yðar við, því að hún hefur verið bjargvættur margra og mín sjálfs.3Heilsið Prisku og Akvílasi, samverkamönnum mínum í Kristi Jesú.4Þau hafa stofnað lífi sínu í hættu fyrir mig, og fyrir það votta ég þeim ekki einn þakkir, heldur og allir söfnuðir meðal heiðingjanna.5Heilsið einnig söfnuðinum, sem kemur saman í húsi þeirra. Heilsið Epænetusi, mínum elskaða, sem er frumgróði Asíu Kristi til handa.6Heilsið Maríu, sem mikið hefur erfiðað fyrir yður.7Heilsið Andróníkusi og Júníasi, ættmönnum mínum og sambandingjum. Þeir skara fram úr meðal postulanna og hafa á undan mér gengið Kristi á hönd.8Heilsið Amplíatusi, mínum elskaða í Drottni.9Heilsið Úrbanusi, samverkamanni vorum í Kristi, og Stakkýsi, mínum elskaða.10Heilsið Apellesi, sem hefur reynst hæfur í þjónustu Krists. Heilsið heimilismönnum Aristóbúls.11Heilsið Heródíon, ættingja mínum. Heilsið þeim á heimili Narkissusar, sem tilheyra Drottni.12Heilsið Trýfænu og Trýfósu, sem hafa lagt hart á sig fyrir Drottin. Heilsið Persis, hinni elskuðu, sem mikið hefur starfað fyrir Drottin.13Heilsið Rúfusi, hinum útvalda í Drottni, og móður hans, sem er mér einnig móðir.14Heilsið Asýnkritusi, Flegon, Hermes, Patróbasi, Hermasi og bræðrunum, sem hjá þeim eru.15Heilsið Fílólógusi og Júlíu, Nerevs og systur hans og Ólympasi og öllum heilögum, sem með þeim eru.16Heilsið hver öðrum með heilögum kossi. Allir söfnuðir Krists senda yður kveðju.17Ég áminni yður um, bræður, að hafa gát á þeim, er vekja sundurþykkju og tæla frá þeirri kenningu, sem þér hafið numið. Sneiðið hjá þeim.18Því að slíkir menn þjóna ekki Drottni vorum Kristi, heldur eigin maga, og með blíðmælum og fagurgala blekkja þeir hjörtu hrekklausra manna.19Hlýðni yðar er alkunn orðin. Því gleðst ég yfir yður og ég vil, að þér séuð vitrir í því, sem gott er, en einfaldir í því, sem illt er.20Guð friðarins mun bráðlega sundurmola Satan undir fótum yðar. Náðin Drottins vors Jesú Krist sé með yður.21Tímóteus, samverkamaður minn, Lúkíus, Jason og Sósípater, ættmenn mínir, biðja að heilsa yður.22Ég, Tertíus, sem hef ritað bréfið, bið að heilsa yður í Drottni.23„Gajus, sem ljær mér og öllum söfnuðinum hús, biður að heilsa yður; Erastus, gjaldkeri borgarinnar, og bróðir Kvartus biðja að heilsa yður.“24(b)25Honum, sem megnar að styrkja yður með fagnaðarerindinu, sem ég boða, og í prédikuninni um Jesú Krist samkvæmt opinberun þess leyndardóms, sem frá eilífum tíðum hefur verið dulinn,26en nú er opinberaður og fyrir spámannlegar ritningar, eftir skipun hins eilífa Guðs, kunngjörður öllum þjóðum til að vekja hlýðni við trúna,27honum einum, alvitrum Guði, sé fyrir Jesú Krist dýrð um aldir alda. Amen.

(b) Sum handrit bæta við 24 versi: „Náðin Drottins vors Jesú Krists sé með yður öllum. Amen.“
16.3 Priska og Akvílas Post 18.2-3,18,26; 2Tím 4.19; 1Kor 16.19
16.5 Söfnuðurinn í húsi þeirra 1Kor 16.19; Kól 4.15; Fílm 2 – frumgróði 1Kor 16.15
16.7 Postular 2Kor 8.23
16.13 Rúfus Mrk 15.21
16.16 Heilsa með kossi 1Kor 16.20; 2Kor 13.12; 1Þess 5.26; 1Pét 5.14; Post 20.37; Lúk 7.45; Matt 26.48-49 og hlst.
16.17 Hafa gát á Matt 7.15-20; Tít 3.10 – kenningin, sem þið hafið numið Róm 6.17 – sneiða hjá villukennendum 2Jóh 7-10
16.18 Þjóna eigin maga Fil 3.19 – blekkja með fagurgala Kól 2.4; Tít 1.10-14; 2Pét 2.3
16.19 Hlýðni ykkar er alkunn Róm 1.8 – vitur, fákunnandi 1Kor 14.20; Jer 4.22; Matt 10.16
16.20 Guð friðarins Róm 15.33; Fil 4.9 – sundurmola Satan 1Mós 3.15
16.21 Tímóteus Post 16.1-3+ – Lúkíus Post 13.1 – Jason Post 17.5 – Sósípater Post 20.4
16.22 Ég sem hef ritað bréfið 1Kor 16.21; Gal 6.11; Kól 4.18; 2Þess 3.17
16.23 Gajus 1Kor 1.14; Post 19.29 – Erastus Post 19.22; 2Tím 4.20
16.25 Hefur máttinn Ef 3.20; Júd 24-25 – leyndardómur 1Kor 2.7; Kól 1.26; 2.2-3
16.26 Nú opinber Ef 1.9; 3.5-9 – og kunngjörður öllum þjóðum Opb 10.7 – að þær trúi 2Kor 10.5; Róm 1.5 Alvitur Guð Róm 11.33-36; 1Kor 1.24-25; Opb 7.12 – einum Guði sé dýrð Gal 1.5; Ef 3.21; Fil 4.20; 1Tím 1.17; 2Tím 4.18; Júd 25; Opb 1.6