1En Sál blés enn ógnum og manndrápum gegn lærisveinum Drottins. Gekk hann til æðsta prestsins2og beiddist bréfa af honum til samkundanna í Damaskus, að hann mætti flytja í böndum til Jerúsalem þá, er hann kynni að finna og væru þessa vegar, hvort heldur karla eða konur.3En þegar hann var á ferð sinni kominn í nánd við Damaskus, leiftraði skyndilega um hann ljós af himni.4Hann féll til jarðar og heyrði rödd segja við sig: Sál, Sál, hví ofsækir þú mig?5En hann sagði: Hver ert þú, herra? Þá var svarað: Ég er Jesús, sem þú ofsækir.6En statt upp og gakk inn í borgina, og þér mun verða sagt, hvað þú átt að gjöra.7Förunautar hans stóðu orðlausir. Þeir heyrðu að vísu raustina, en sáu engan.8Sál reis á fætur, en þegar hann lauk upp augunum, sá hann ekkert. Þeir leiddu hann við hönd sér inn í Damaskus.9Þrjá daga var hann sjónlaus og át hvorki né drakk.10Í Damaskus var lærisveinn nokkur, sem hét Ananías. Við hann sagði Drottinn í sýn: Ananías. Hann svaraði: Hér er ég, Drottinn.11Drottinn sagði við hann: Far þegar í stræti það, sem kallað er Hið beina, og í húsi Júdasar skaltu spyrja eftir manni frá Tarsus, er heitir Sál. Hann er að biðja.12Og hann hefur í sýn séð mann, Ananías að nafni, koma inn og leggja hendur yfir sig, til þess að hann fái aftur sjón.13Ananías svaraði: Drottinn, heyrt hef ég marga segja frá manni þessum, hve mikið illt hann hefur gjört þínum heilögu í Jerúsalem.14Og hér fer hann með vald frá æðstu prestunum að færa í bönd alla þá, sem ákalla nafn þitt.15Drottinn sagði við hann: Far þú, því að þennan mann hef ég valið mér að verkfæri til þess að bera nafn mitt fram fyrir heiðingja, konunga og börn Ísraels,16og ég mun sýna honum, hversu mikið hann verður að þola vegna nafns míns.17Þá fór Ananías af stað, gekk inn í húsið og lagði hendur yfir hann og mælti: Sál, bróðir, Drottinn hefur sent mig, Jesús, sá er birtist þér á leið þinni hingað. Þú átt að fá aftur sjón þína og fyllast heilögum anda.18Jafnskjótt var sem hreistur félli af augum hans, hann fékk aftur sjónina og lét þegar skírast.19Síðan neytti hann matar og styrktist. Sál var nokkra daga hjá lærisveinunum í Damaskus20og tók þegar að prédika í samkunduhúsunum, að Jesús væri sonur Guðs.21Allir þeir, sem heyrðu það, undruðust stórum og sögðu: Er þetta ekki maðurinn, sem í Jerúsalem hugðist eyða þeim, er ákölluðu þetta nafn? Kom hann ekki hingað til að fara með þá í böndum til æðstu prestanna?22En Sál efldist æ meir og gjörði þá Gyðinga, sem bjuggu í Damaskus, rökþrota, er hann sannaði, að Jesús væri Kristur.23Að allmörgum dögum liðnum réðu Gyðingar með sér að taka hann af lífi.24En Sál fékk vitneskju um ráðagjörð þeirra. Þeir gættu borgarhliðanna nótt og dag til að ná lífi hans.25En lærisveinarnir tóku hann um nótt og komu honum út fyrir borgarmúrinn með því að láta hann síga ofan í körfu.26Þá er hann kom til Jerúsalem, reyndi hann að samlaga sig lærisveinunum, en þeir hræddust hann allir og trúðu ekki, að hann væri lærisveinn.27En Barnabas tók hann að sér, fór með hann til postulanna og skýrði þeim frá, hvernig hann hefði séð Drottin á veginum, hvað hann hefði sagt við hann og hversu einarðlega hann hefði talað í Jesú nafni í Damaskus.28Dvaldist hann nú með þeim í Jerúsalem, gekk þar út og inn og talaði einarðlega í nafni Drottins.29Hann talaði og háði kappræður við grískumælandi Gyðinga, en þeir leituðust við að ráða hann af dögum.30Þegar bræðurnir urðu þessa vísir, fóru þeir með hann til Sesareu og sendu hann áfram til Tarsus.31Nú hafði kirkjan frið um alla Júdeu, Galíleu og Samaríu. Hún byggðist upp og gekk fram í ótta Drottins og óx við styrkingu heilags anda.32Svo bar við, er Pétur var að ferðast um og vitja allra, að hann kom og til hinna heilögu, sem áttu heima í Lýddu.33Þar fann hann mann nokkurn, Eneas að nafni, er í átta ár hafði legið rúmfastur. Hann var lami.34Pétur sagði við hann: Eneas, Jesús Kristur læknar þig, statt upp og bú um þig. Jafnskjótt stóð hann upp.35Allir þeir, sem áttu heima í Lýddu og Saron, sáu hann, og þeir sneru sér til Drottins.36Í Joppe var lærisveinn, kona að nafni Tabíþa, á grísku Dorkas. Hún var mjög góðgerðasöm og örlát við snauða.37En á þeim dögum tók hún sótt og andaðist. Var hún lauguð og lögð í loftstofu.38Nú er Lýdda í grennd við Joppe, og höfðu lærisveinarnir heyrt, að Pétur væri þar. Sendu þeir tvo menn til hans og báðu hann: Kom án tafar til vor.39Pétur brá við og fór með þeim. Þegar þangað kom, fóru þeir með hann upp í loftstofuna, og allar ekkjurnar komu til hans grátandi og sýndu honum kyrtla og yfirhafnir, sem Dorkas hafði gjört, meðan hún var hjá þeim.40En Pétur lét alla fara út, féll á kné og baðst fyrir. Síðan sneri hann sér að líkinu og sagði: Tabíþa, rís upp. En hún opnaði augun, sá Pétur og settist upp.41Og hann rétti henni höndina og reisti hana á fætur, kallaði síðan á hina heilögu og ekkjurnar og leiddi hana fram lifandi.42Þetta varð hljóðbært um alla Joppe, og margir tóku trú á Drottin.43Var Pétur um kyrrt í Joppe allmarga daga hjá Símoni nokkrum sútara.

9.1 Köllun Páls Post 22.4-21; 26.9-18 – Sál ofsækir söfnuðinn Post 8.3+ – lærisveinarnir Post 6.1+
9.2 Í böndum Post 9.14 – þessa vegar Jes 30.21; Slm 27.11; Okv 15.10; Matt 21.32; 22.16; Post 16.17; 18.25-26; 19.9,23; 22.4; 24.14,22
9.5 Hinn upprisni birtist Sál 1Kor 15.8 – ég er Lúk 21.8; 22.70; 24.39; Jóh 6.20,35
9.7 Heyrðu, en sáu engan SSal 18.1; Post 22.9
9.8 Sá ekkert Post 13.11; 22.11
9.11 Frá Tarsus Post 9.30; 21.39
9.12 Leggja hendur yfir Post 6.6+ – fá aftur sjónina Mrk 8.23-25
9.13 Hve mikið illt Post 8.3+ – hinir heilögu (hinir kristnu) Post 9.32,41; 26.10,18; Róm 1.7+ ; 1Kor 1.2; 6.1-2; 14.34 sbr Post 20.32
9.14 Færa í bönd Post 9.1-2,21; 26.10 – þeir sem ákalla nafn þitt Jl 3.5; Post 9.21; 22.16; 1Kor 1.2; 2Tím 2.22
9.15 Bera nafn mitt Post 3.16+ ; Lúk 21.12-19 – fram fyrir heiðingja, konunga … Róm 1.5; Post 26.1; 27.24
9.16 Þola vegna nafnsins 2Kor 11.23-28
9.17 Leggja hendur yfir Post 6.6+
9.20 Sonur Guðs Matt 14.33+ ; Mrk 1.1+ ; Post 8.37; 13.33; Gal 1.16; 1Þess 1.10
9.21 Reyndi að útrýma Post 8.3+ – nafn Jesú Post 3.16+
9.22 Jesús er Kristur Post 17.3; 18.5,28; sbr 5.42
9.23 Samsæri gegn Sál Post 23.12
9.24 Fékk vitneskju Post 23.16
9.25 Lærisveinar Post 14.20; sbr 6.1+ – í körfu 2Kor 11.33
9.27 Barnabas Post 4.36+ – kynnti fyrir postulunum Gal 1.18-24 – hefði séð Drottin 1Kor 9.1; 15.8 – sagt við hann Post 9.4; 22.7; 26.14 – prédikaði í Damaskus Post 9.20 – einarðlega Post 4.13+
9.30 Til Tarsus Post 11.25; 22.3; sbr Gal 1.21
9.31 Kirkjan Post 5.11+ sbr Post 2.41+
9.32 Hinir heilögu Post 9.13+
9.36 Örlát Tob 4.7-11; Matt 6.1-4; Lúk 11.41; Post 10.2; sbr 2.44-45
9.40 Rís upp Mrk 5.40-41
9.41 Hinir heilögu Post 9.13+