1Bræður og feður, hlustið á það, sem ég ætla að flytja yður mér til varnar.2En er þeir heyrðu hann ávarpa sig á hebresku, urðu þeir enn hljóðari. Hann heldur áfram:3Ég er Gyðingur, fæddur í Tarsus í Kilikíu, en alinn upp í þessari borg. Við fætur Gamalíels hlaut ég fyllstu uppfræðslu í lögmáli feðra vorra. Guðs stríðsmaður vildi ég vera ekki síður en þér allir í dag.4Ég ofsótti þá, sem voru þessa vegar, og sparði ekki líf þeirra, færði í fjötra og hneppti í fangelsi karla og konur.5Æðsti presturinn og allt öldungaráðið geta borið mér vitni um þetta. Hjá þeim fékk ég bréf til bræðranna í Damaskus og fór þangað til að flytja einnig þá, er þar voru, í böndum til Jerúsalem, að þeim yrði refsað.6En á leiðinni, er ég nálgaðist Damaskus, bar svo við um hádegisbil, að ljós mikið af himni leiftraði skyndilega um mig.7Ég féll til jarðar og heyrði raust, er sagði við mig: Sál, Sál, hví ofsækir þú mig?8Ég svaraði: Hver ert þú, herra? Og hann sagði við mig: Ég er Jesús frá Nasaret, sem þú ofsækir.9Þeir, sem með mér voru, sáu ljósið, en raust þess, er við mig talaði, heyrðu þeir ekki.10Þá sagði ég: Hvað á ég að gjöra, herra? En Drottinn sagði við mig: Rís upp og far til Damaskus. Þar mun þér verða sagt allt, sem þér er ætlað að gjöra.11En með því að ég var blindaður af ljóma þessa ljóss, urðu förunautar mínir að leiða mig, og þannig komst ég til Damaskus.12En Ananías nokkur, maður guðrækinn eftir lögmálinu og í góðum metum hjá öllum Gyðingum, er þar bjuggu,13kom til mín, nam staðar hjá mér og sagði: Sál, bróðir, fá þú aftur sjón þína! Á sömu stundu fékk ég sjónina og sá hann.14En hann sagði: Guð feðra vorra hefur útvalið þig til að þekkja vilja sinn, að sjá hinn réttláta og heyra raustina af munni hans.15Því að þú skalt honum vottur vera hjá öllum mönnum um það, sem þú hefur séð og heyrt.16Hvað dvelur þig nú? Rís upp, ákalla nafn hans og lát skírast og laugast af syndum þínum.17En þegar ég var kominn aftur til Jerúsalem og baðst fyrir í helgidóminum, varð ég frá mér numinn18og sá hann, og hann sagði við mig: Flýt þér og far sem skjótast burt úr Jerúsalem, því að þeir munu ekki veita viðtöku vitnisburði þínum um mig.19Ég sagði: Drottinn, þeir vita, að ég hef verið að hneppa í fangelsi þá, sem trúðu á þig, og láta húðstrýkja þá í samkunduhúsunum.20Og þegar úthellt var blóði Stefáns, vottar þíns, stóð ég sjálfur þar hjá og lét mér vel líka og varðveitti klæði þeirra, sem tóku hann af lífi.21Hann sagði við mig: Far þú, því að ég mun senda þig til heiðingja langt í burtu.22Allt að þessu orði hlýddu þeir á hann, en nú hófu þeir upp raust sína og hrópuðu: Burt með slíkan mann af jörðinni! Eigi hæfir, að hann lifi!23Nú sem þeir æptu og vingsuðu klæðum sínum og þyrluðu ryki í loft upp,24skipaði hersveitarforinginn að fara með hann inn í kastalann og hýða hann og kúga hann með því til sagna, svo að hann kæmist að því, fyrir hverja sök þeir gjörðu slík óp að honum.25En þá er þeir strengdu hann undir höggin, sagði Páll við hundraðshöfðingjann, er hjá stóð: Leyfist yður að húðstrýkja rómverskan mann og það án dóms og laga?26Þegar hundraðshöfðinginn heyrði þetta, fór hann til hersveitarforingjans, skýrði honum frá og sagði: Hvað ert þú að gjöra? Maður þessi er rómverskur.27Hersveitarforinginn kom þá og sagði við Pál: Seg mér, ert þú rómverskur borgari? Páll sagði: Já.28Hersveitarforinginn sagði: Fyrir ærið fé keypti ég þennan þegnrétt. En Páll sagði: Ég er meira að segja með honum fæddur.29Þeir, sem áttu að kúga hann til sagna, viku nú jafnskjótt frá honum. Og hersveitarforinginn varð hræddur, er hann varð þess vís, að það var rómverskur maður, sem hann hafði látið binda.30Daginn eftir vildi hann ganga úr skugga um, fyrir hvað Gyðingar kærðu hann, lét leysa hann og bauð, að æðstu prestarnir og allt ráðið kæmi saman. Síðan kom hann ofan með Pál og leiddi hann fram fyrir þá.

22.1 Hlustið á Post 7.2
22.3 Gyðingur, fæddur í Tarsus Post 21.39 – Gamalíel Post 5.34 – stríðsmaður Róm 10.2
22.4 Ég ofsótti Post 8.3; 9.1-2; 22.19; 26.9-11 – vegurinn Post 9.2+
22.6-21 Köllun Páls Post 9.3-19; 26.12-18
22.15 Vottur Post 1.8+
22.16 Lát skírast Post 1.5+ – ákalla nafn hans Jl 3.5; Post 2.21; 9.14; Róm 10.13; sbr Post 3.16+
22.18 Far burt því að … Post 9.24-30
22.19 Þeir vita … Post 8.3; 22.4-5; 26.9-11; 1Kor 15.9; Gal 1.13,23; Fíl 3.6; 1Tím 1.13
22.20 Viðstaddur líflát Stefáns Post 7.58; 8.1 – vottur þinn Post 1.8+
22.21 Sendur til heiðingja Post 9.15; 13.46-47; 22.15; 26.17-18; Gal 1.15-16; 2.7-9; Kól 1.25; sbr postuli Post 14.4+ ; 1Kor 9.1; Gal 1.17
22.22 Burt með hann Post 21.36
22.25 Rómverskur borgari Post 16.37; 23.27
22.29 Hermennirnir fyllast ótta sbr Post 16.38