1Þegar þessum látum linnti, sendi Páll eftir lærisveinunum, uppörvaði þá og kvaddi síðan og lagði af stað til Makedóníu.2Hann fór nú um þau héruð og uppörvaði menn með mörgum orðum. Síðan hélt hann til Grikklands.3Dvaldist hann þar þrjá mánuði. Þá bjóst hann til að sigla til Sýrlands, en þar eð Gyðingar brugguðu honum launráð, tók hann til bragðs að hverfa aftur um Makedóníu.4Í för með honum voru þeir Sópater Pýrrusson frá Beroju, Aristarkus og Sekúndus frá Þessaloníku, Gajus frá Derbe, Tímóteus og Asíumennirnir Týkíkus og Trófímus.5Þeir fóru á undan og biðu vor í Tróas.6En vér sigldum eftir daga ósýrðu brauðanna frá Filippí og komum til þeirra í Tróas á fimmta degi. Þar stóðum vér við í sjö daga.7Fyrsta dag vikunnar, er vér vorum saman komnir til að brjóta brauðið, talaði Páll til þeirra. Hann var á förum daginn eftir. Entist ræða hans allt til miðnættis.8Mörg ljós voru í loftstofunni, þar sem vér vorum saman komnir.9Ungmenni eitt, Evtýkus að nafni, sat í glugganum. Seig á hann svefnhöfgi, er Páll ræddi svo lengi, og féll hann sofandi ofan af þriðja lofti. Hann var liðinn, þegar hann var tekinn upp.10Páll gekk ofan, varpaði sér yfir hann, tók utan um hann og sagði: Verið stilltir, það er líf með honum.11Fór hann síðan upp, braut brauðið og neytti og talaði enn lengi, allt fram í dögun. Að svo búnu hélt hann brott.12En þeir fóru með sveininn lifandi og hugguðust mikillega.13Vér fórum á undan til skips og sigldum til Assus. Þar ætluðum vér að taka Pál. Svo hafði hann fyrir lagt, því hann vildi fara landveg.14Þegar hann hafði hitt oss í Assus, tókum vér hann á skip og héldum til Mitýlene.15Þaðan sigldum vér daginn eftir og komumst til móts við Kíos. Á öðrum degi fórum vér til Samos og komum næsta dag til Míletus.16En Páll hafði sett sér að sigla fram hjá Efesus, svo að hann tefðist ekki í Asíu. Hann hraðaði ferð sinni, ef verða mætti, að hann kæmist til Jerúsalem á hvítasunnudag.17Frá Míletus sendi hann til Efesus og boðaði til sín öldunga safnaðarins.18Þegar þeir komu til hans, sagði hann við þá: Þér vitið, hvernig ég hef hagað mér hjá yður alla tíð frá þeim degi, er ég kom fyrst til Asíu.19Ég þjónaði Drottni í allri auðmýkt, með tárum og í raunum, sem að mér hafa steðjað af launráðum Gyðinga.20Þér vitið, að ég dró ekkert undan, sem yður mátti að gagni verða, heldur boðaði yður það og kenndi opinberlega og í heimahúsum21og vitnaði bæði fyrir Gyðingum og Grikkjum um afturhvarf til Guðs og trú á Drottin vorn Jesú.22Og nú er ég á leið til Jerúsalem, knúinn af andanum. Ekki veit ég, hvað þar mætir mér,23nema að heilagur andi birtir mér í hverri borg, að fjötrar og þrengingar bíði mín.24En mér er líf mitt einskis virði, fái ég aðeins að fullna skeið mitt og þá þjónustu, sem Drottinn Jesús fól mér: Að bera vitni fagnaðarerindinu um Guðs náð.25Nú veit ég, að þér munuð ekki framar sjá mig, engir þér, sem ég hef komið til og boðað ríkið.26Þess vegna vitna ég fyrir yður nú í dag, að ekki er mig um að saka, þótt einhver glatist,27því að ég hef boðað yður allt Guðs ráð og ekkert dregið undan.28Hafið gát á sjálfum yður og allri hjörðinni, sem heilagur andi fól yður til umsjónar. Verið hirðar Guðs kirkju, sem hann hefur unnið sér með sínu eigin blóði.29Ég veit, að skæðir vargar munu koma inn á yður, þegar ég er farinn, og eigi þyrma hjörðinni.30Og úr hópi sjálfra yðar munu koma fram menn, sem flytja rangsnúna kenningu til að tæla lærisveinana á eftir sér.31Vakið því og verið þess minnugir, að ég áminnti stöðugt sérhvern yðar með tárum dag og nótt í þrjú ár.32Og nú fel ég yður Guði og orði náðar hans, sem máttugt er að uppbyggja yður og gefa yður arfleifð með öllum þeim, sem helgaðir eru.33Eigi girntist ég silfur né gull né klæði nokkurs manns.34Sjálfir vitið þér, að þessar hendur unnu fyrir öllu því, er ég þurfti með og þeir, er með mér voru.35Í öllu sýndi ég yður, að með því að vinna þannig ber oss að annast óstyrka og minnast orða Drottins Jesú, að hann sjálfur sagði: Sælla er að gefa en þiggja.36Þegar hann hafði þetta mælt, féll hann á kné og baðst fyrir ásamt þeim öllum.37Allir tóku að gráta sáran, féllu um háls Páli og kysstu hann.38Mest varð þeim um þau orð hans, að þeir mundu aldrei framar sjá hann. Síðan fylgdu þeir honum til skips.

20.1 Lærisveinarnir Post 6.1+ -Makedónía Post 16.10; 18.5; 19.21-22; Róm 15.26; 2Kor 1.16; 2.13; 7.5; 8.1; 9.2; 11.9; Fil 4.15; 1Þess 1.7; 4.10; 1Tím 1.3
20.2 Söfnuðirnir Post 1.15
20.4 Sópater (Sósípater) Róm 16.21 – Aristarkus Post 19.29+ – Tímóteus Post 21.29; 2Tím 4.20
20.5 Við (sagt frá í fyrstu persónu fleirtölu) Post 16.10+
20.6 Dagar ósýrðu brauðanna Post 12.3 – Tróas Post 16.8+
20.7 Fyrsti dagur vikunnar Lúk 24.1+ ; sbr 1Kor 16.2 – til að brjóta brauðið Lúk 24.30; Post 2.42,46; 1Kor 11.17-25; sbr Post 27.35
20.8 Loftstofa Lúk 22.12; Post 1.13
20.10 Líf með honum sbr Post 9.41
20.17 Öldungar Post 11.30+ – söfnuðurinn í Efesus sbr Post 18.21
20.18 Páll í Asíu Post 18.21
20.19 Launráð Gyðinga Post 20.3
20.20 Dró ekkert undan Post 20.27
20.21 Afturhvarf Post 3.19+ – og trú Post 3.16+ ; 10.43+
20.22 Knúinn Post 21.11; sbr Post 1.8+ – á leið til Jerúsalem Post 19.21
20.23 Heilagur andi varar Pál við Post 21.4,11 – þrengingar í vændum Post 9.16
20.24 Líf mitt einskis virði Post 21.13 – fullna skeið mitt Fil 3.13-14; 2Tím 4.7
20.25 Guðs ríki Post 1.3+
20.26 Þótt einhver glatist Post 18.6
20.28 Hirðar og hjörð Lúk 12.32+; Heb 13.20; 1Pét 2.25; 5.3-4 – til umsjónar, biskupar Fil 1.1; 1Tím 3.2; Tít 1.7; sbr 1Pét 2.25; 5.2 – gætið 1Pét 5.2; sbr Ef 4.11 – kirkja Post 5.11+ – Guðs 1Kor 1.2; 2Kor 1.1 …; 1Þess 2.14; 2Þess 1.4 – sem hann hefur aflað sér Slm 74.2; Ef 1.14
20.29 Skæðir vargar Matt 7.15; Jóh 10.12
20.30 Úr ykkar hópi 1Jóh 2.19
20.31 Hvetja dag og nótt Post 19.10; 1Þess 2.11-12
20.32 Styrkt 1Kor 3.5-17; 1Pét 2.4-10 – hluteild í ríki … 5Mós 33.3-4; SSal 5.5; Post 26.18; Ef 1.14,18; 5.5; Kól 3.24; Heb 9.15; 1Pét 1.4; sbr Post 9.13+
20.33 Girntist ekki fé 1Sam 12.3; 1Kor 9.11-12
20.34 Vann fyrir sér Post 18.3+ – Páll fær hjálp 2Kor 11.9; Fil 4.15-19
20.35 Orð Drottins 1Kor 7.10,12,25; 11.23 – sælla er Matt 10.8
20.36 Baðst fyrir Post 21.5-6
20.37 Páll kvaddur Post 21.5-6
20.38 Aldrei framar sjá hann Post 20.25