1Þá sá ég dýr stíga upp af hafinu. Það hafði tíu horn og sjö höfuð, og á hornum þess voru tíu ennisdjásn og á höfðum þess voru guðlöstunar nöfn.2Dýrið, sem ég sá, var líkt pardusdýri, fætur þess voru sem bjarnarfætur og munnur þess eins og ljónsmunnur. Drekinn gaf því mátt sinn og hásæti sitt og vald mikið.3Eitt af höfðum þess virtist sært til ólífis, en banasár þess varð heilt. Öll jörðin fylgdi dýrinu með undrun,4og þeir tilbáðu drekann, af því að hann hafði gefið dýrinu vald sitt. Og þeir tilbáðu dýrið og sögðu: Hver jafnast við dýrið og hver getur barist við það?5Og því var gefinn munnur, er talaði stóryrði og guðlastanir, og lofað að fara því fram í fjörutíu og tvo mánuði.6Og það lauk upp munni sínum til lastmæla gegn Guði, til að lastmæla nafni hans og tjaldbúð hans og þeim, sem á himni búa.7Og því var leyft að heyja stríð við hina heilögu og sigra þá, og því var gefið vald yfir sérhverri kynkvísl og lýð, tungu og þjóð.8Og allir þeir, sem á jörðunni búa, munu tilbiðja það, hver og einn sá er eigi á nafn sitt ritað frá grundvöllun veraldar í lífsins bók lambsins, sem slátrað var.9Sá sem hefur eyra, hann heyri.10Sá sem ætlaður er til herleiðingar verður herleiddur. Sá sem sverði er ætlaður verður deyddur með sverði. Hér reynir á þolgæði og trú hinna heilögu.11Og ég sá annað dýr stíga upp af jörðinni og það hafði tvö horn lík lambshornum, en það talaði eins og dreki.12Það fer með allt vald fyrra dýrsins fyrir augsýn þess og það lætur jörðina og þá, sem á henni búa, tilbiðja fyrra dýrið, sem varð heilt af banasári sínu.13Og það gjörir tákn mikil, svo að það lætur jafnvel eld falla af himni ofan á jörðina fyrir augum mannanna.14Og það leiðir afvega þá, sem á jörðunni búa, með táknunum, sem því er lofað að gjöra í augsýn dýrsins. Það segir þeim, sem á jörðunni búa, að þeir skuli gjöra líkneski af dýrinu, sem sárið fékk undan sverðinu, en lifnaði við.15Og því var leyft að gefa líkneski dýrsins anda, til þess að líkneski dýrsins gæti einnig talað og komið því til leiðar, að allir yrðu þeir deyddir, sem ekki vildu tilbiðja líkneski dýrsins.16Og það lætur alla, smáa og stóra, auðuga og fátæka og frjálsa og ófrjálsa, setja merki á hægri hönd sér eða á enni sín17og kemur því til leiðar, að enginn geti keypt eða selt, nema hann hafi merkið, nafn dýrsins, eða tölu nafns þess.18Hér reynir á speki. Sá sem skilning hefur reikni tölu dýrsins, því að tala manns er það, og tala hans er sex hundruð sextíu og sex.

13.1 Dýr stígur upp úr hafinu Opb 11.7+
13.2 Dýrið Dan 7.4-6; Opb 17.3,7-12
13.5 Gífuryrði Dan 7.8,11,20,25; 11.27 – 42 mánuðir Opb 11.2+
13.7 Stríð við hina heilögu Opb 11.7+
13.8 Dýrið tilbeðið Opb 13.12; 14.9-11; 16.2; 19.20; 20.4 – lífsbók Opb 3.5+ – lambið, sem slátrað var Opb 5.6+
13.10 Ánauð, sverð Jer 15.2; 43.11 – þolgæði Opb 14.12
13.11 Með horn eins og lamb Matt 7.15; Opb 16.13; 19.20; 20.10
13.13-14 Leiðir afvega 5Mós 13.2-4; Matt 24.24; 2Þess 2.3,9 – eldur fellur til jarðar 1Kon 18.24-39
13.15 Þeir sem tilbiðja líkneski dýrsins Dan 3.5-7,15
13.16 Merki dýrsins Opb 14.9,11; 16.2; 19.20; 20.4
13.18 Hafa skilning Opb 17.9