1Og tákn mikið birtist á himni: Kona klædd sólinni og tunglið var undir fótum hennar, og á höfði hennar var kóróna af tólf stjörnum.2Hún var þunguð, og hljóðaði í jóðsótt með hörðum hríðum.3Annað tákn birtist á himni: Mikill dreki rauður, er hafði sjö höfuð og tíu horn og á höfðunum sjö ennisdjásn.4Með halanum dró hann þriðja hlutann af stjörnum himinsins og varpaði þeim ofan á jörðina. Drekinn stóð frammi fyrir konunni, sem komin var að því að fæða, til þess að gleypa barn hennar, þá er hún hefði fætt.5Hún fæddi son, sveinbarn, sem stjórna mun öllum þjóðum með járnsprota. Og barn hennar var hrifið til Guðs, til hásætis hans.6En konan flýði út á eyðimörkina, þar sem Guð hefur búið henni stað og þar sem séð verður fyrir þörfum hennar í eitt þúsund og tvö hundruð og sextíu daga.7Þá hófst stríð á himni: Míkael og englar hans fóru að berjast við drekann. Drekinn barðist og englar hans,8en þeir fengu eigi staðist og eigi héldust þeir heldur lengur við á himni.9Og drekanum mikla var varpað niður, hinum gamla höggormi, sem heitir djöfull og Satan, honum sem afvegaleiðir alla heimsbyggðina, honum var varpað niður á jörðina, og englum hans var varpað niður með honum.10Og ég heyrði mikla rödd á himni segja: Nú er komið hjálpræðið og mátturinn og ríki Guðs vors, og veldi hans Smurða. Því að niður hefur verið varpað kæranda bræðra vorra, honum sem þá kærir fyrir Guði vorum dag og nótt.11Og þeir hafa sigrað hann fyrir blóð lambsins og fyrir orð vitnisburðar síns, og eigi var þeim lífið svo kært, að þeim ægði dauði.12Fagnið því himnar og þér sem í þeim búið. Vei sé jörðunni og hafinu, því að djöfullinn er stiginn niður til yðar í miklum móð, því að hann veit, að hann hefur nauman tíma.13Og er drekinn sá að honum var varpað niður á jörðina, ofsótti hann konuna, sem alið hafði sveinbarnið.14Og konunni voru gefnir vængirnir tveir af erninum mikla, til þess að hún skyldi fljúga á eyðimörkina til síns staðar, þar sem séð verður fyrir þörfum hennar þrjú og hálft ár, fjarri augsýn höggormsins.15Og höggormurinn spjó vatni úr munni sér á eftir konunni, eins og flóði, til þess að hún bærist burt af straumnum.16En jörðin kom konunni til hjálpar, og jörðin opnaði munn sinn og svalg vatnsflóðið, sem drekinn spjó úr munni sér.17Þá reiddist drekinn konunni og fór burt til þess að heyja stríð við aðra afkomendur hennar, þá er varðveita boð Guðs og hafa vitnisburð Jesú.18Og hann nam staðar á sandinum við sjóinn.

12.1 Klædd sólinni Slm 104.2; Ljl 6.10
12.2 Með hörðum hríðum Jes 66.7-8; Mík 4.9-10
12.3 Dreki Dan 7.7
12.4 Stjörnum varpað til jarðar Dan 8.10
12.5 Hún fæddi son Jes 7.14; 66.7 – járnsproti Slm 2.9; sbr Opb 2.27; 19.15
12.6 1260 dagar Opb 11.2+
12.7 Míkael Dan 10.13,21; 12.1; Júd 9
12.9 Hinn gamli höggormur 1Mós 3.1-5,15; Opb 20.2 – Satan varpað til jarðar Opb 8.10+ ; Lúk 10.18; Jóh 12.31
12.10 Ákærði Job 1.9-11; 2.4-5; Sak 3.1-2
12.12 Fagnið því himnar Jes 44.23; 49.13; Jer 51.48; Slm 96.11; Opb 18.20
12.14 Vængirnir af erninum 2Mós 19.4; 5Mós 32.11; Jes 40.31 – þrjú og hálft ár Opb 11.2+
12.17 Við afkomendur hennar 1Mós 3.15; sbr Dan 7.21; Opb 11.7 – vitnisburður Jesú Opb 1.2+