1Eftir þetta kvaddi Drottinn til aðra, sjötíu og tvo að tölu, og sendi þá á undan sér, tvo og tvo, í hverja þá borg og stað, sem hann ætlaði sjálfur að koma til.2Og hann sagði við þá: Uppskeran er mikil, en verkamenn fáir. Biðjið því herra uppskerunnar að senda verkamenn til uppskeru sinnar.3Farið! Ég sendi yður eins og lömb meðal úlfa.4Hafið ekki pyngju, ekki mal né skó, og heilsið engum á leiðinni.5Hvar sem þér komið í hús, þá segið fyrst: Friður sé með þessu húsi.6Og sé þar friðar sonur, mun friður yðar hvíla yfir honum, ella hverfa aftur til yðar.7Verið um kyrrt í sama húsi, neytið þess, sem þar er fram boðið í mat og drykk. Verður er verkamaðurinn launa sinna. Eigi skuluð þér flytjast hús úr húsi.8Og hvar sem þér komið í borg og tekið er við yður, þá neytið þess, sem fyrir yður er sett.9Læknið þá, sem þar eru sjúkir, og segið þeim: Guðs ríki er komið í nánd við yður.10En hvar sem þér komið í borg og eigi er við yður tekið, þá farið út á strætin og segið:11Jafnvel það dust, sem loðir við fætur vora úr borg yðar, þurrkum vér af oss handa yður. Vitið samt þetta, að Guðs ríki er komið í nánd.12Ég segi yður: Bærilegra mun Sódómu á þeim degi en þeirri borg.13Vei þér, Korasín! Vei þér, Betsaída! Ef gjörst hefðu í Týrus og Sídon kraftaverkin, sem gjörðust í ykkur, hefðu þeir löngu iðrast og setið í sekk og ösku.14En Týrus og Sídon mun bærilegra í dóminum en ykkur.15Og þú Kapernaum! Verður þú hafin til himins? Nei, til heljar mun þér steypt verða.16Sá sem á yður hlýðir, hlýðir á mig, og sá sem yður hafnar, hafnar mér. En sá sem hafnar mér, hafnar þeim er sendi mig.17Nú komu þeir sjötíu og tveir aftur með fögnuði og sögðu: Herra, jafnvel illir andar eru oss undirgefnir í þínu nafni.18En hann mælti við þá: Ég sá Satan hrapa af himni sem eldingu.19Ég hef gefið yður vald að stíga á höggorma og sporðdreka og yfir öllu óvinarins veldi. Alls ekkert mun yður mein gjöra.20Gleðjist samt ekki af því, að andarnir eru yður undirgefnir, gleðjist öllu heldur af hinu, að nöfn yðar eru skráð í himnunum.21Á sömu stundu varð hann glaður í heilögum anda og sagði: Ég vegsama þig, faðir, herra himins og jarðar, að þú hefur hulið þetta spekingum og hyggindamönnum, en opinberað það smælingjum. Já, faðir, svo var þér þóknanlegt.22Allt er mér falið af föður mínum, og enginn veit, hver sonurinn er, nema faðirinn, né hver faðirinn er, nema sonurinn og sá sem sonurinn vill opinbera hann.23Og hann sneri sér að lærisveinum sínum og sagði við þá einslega: Sæl eru þau augu, sem sjá það sem þér sjáið.24Því að ég segi yður: Margir spámenn og konungar vildu sjá það sem þér sjáið, en sáu það ekki, og heyra það sem þér heyrið, en heyrðu það ekki.25Lögvitringur nokkur sté fram, vildi freista hans og mælti: Meistari, hvað á ég að gjöra til þess að öðlast eilíft líf?26Jesús sagði við hann: Hvað er ritað í lögmálinu? Hvernig lest þú?27Hann svaraði: Elska skalt þú Drottin, Guð þinn, af öllu hjarta þínu, allri sálu þinni, öllum mætti þínum og öllum huga þínum, og náunga þinn eins og sjálfan þig.28Jesús sagði við hann: Þú svaraðir rétt. Gjör þú þetta, og þú munt lifa.29En hann vildi réttlæta sjálfan sig og sagði við Jesú: Hver er þá náungi minn?30Því svaraði Jesús svo: Maður nokkur fór frá Jerúsalem ofan til Jeríkó og féll í hendur ræningjum. Þeir flettu hann klæðum og börðu hann, hurfu brott síðan og létu hann eftir dauðvona.31Svo vildi til, að prestur nokkur fór ofan sama veg og sá manninn, en sveigði fram hjá.32Eins kom og levíti þar að, sá hann og sveigði fram hjá.33En Samverji nokkur, er var á ferð, kom að honum, og er hann sá hann, kenndi hann í brjósti um hann,34gekk til hans, batt um sár hans og hellti í þau viðsmjöri og víni. Og hann setti hann á sinn eigin eyk, flutti hann til gistihúss og lét sér annt um hann.35Daginn eftir tók hann upp tvo denara, fékk gestgjafanum og mælti: Lát þér annt um hann og það sem þú kostar meiru til, skal ég borga þér, þegar ég kem aftur.36Hver þessara þriggja sýnist þér hafa reynst náungi þeim manni, sem féll í hendur ræningjum?37Hann mælti: Sá sem miskunnarverkið gjörði á honum. Jesús sagði þá við hann: Far þú og gjör hið sama.38Á ferð þeirra kom Jesús í þorp nokkurt, og kona að nafni Marta bauð honum heim.39Hún átti systur, er María hét, og settist hún við fætur Drottins og hlýddi á orð hans.40En Marta lagði allan hug á að veita sem mesta þjónustu. Og hún gekk til hans og mælti: Herra, hirðir þú eigi um það, að systir mín lætur mig eina um að þjóna gestum? Seg þú henni að hjálpa mér.41En Drottinn svaraði henni: Marta, Marta, þú ert áhyggjufull og mæðist í mörgu,42en eitt er nauðsynlegt. María valdi góða hlutskiptið. Það verður ekki frá henni tekið.

10.1 Sendi tvo og tvo Lúk 9.1 og hlst.
10.2 Uppskeran mikil Matt 9.37-38; sbr Jóh 4.35 – uppskera og dómur Jes 33.11; 41.15-16; Am 9.9; Matt 3.12+ ; Lúk 3.17+
10.4-11 Fyrirmæli Lúk 9.3-5 og hlst.
10.4 Heilsið engum 2Kon 4.29
10.5 Friður Lúk 1.79+ – með þessu húsi 1Sam 25.6
10.7 Verið um kyrrt Lúk 9.4 – verður launa sinna Matt 10.10; 1Kor 9.6-18; 2Kor 11.7-11; 1Tím 5.18
10.8 Sem sett er fyrir yður 1Kor 10.27
10.9 Guðs ríki í nánd Matt 3.2; 4.17; 12.28; Mrk 1.15; Lúk 10.11; 11.20; 17.21; 19.11; 21.31
10.11 Dustið Lúk 9.5 og hlst.; Post 13.51; 18.6
10.12 Sódóma Matt 10.15+ – bærilegra Matt 11.24
10.13-16 Hlst. Matt 11.20-24
10.13 Vei Matt 11.21+ ; Lúk 6.24+ – Betsaída Matt 11.21+ – Týrus og Sídon Jes 23; Esk 26-28; Jl 4.4-8; Am 1.9-10; Sak 9.2-4; Matt 11.21+
10.15 Til heljar Jes 14.13,15 – Kapernaúm Matt 4.13+
10.16 Sem á yður hlýðir … Matt 10.40; 18.5 og hlst.; Jóh 5.23; 13.20; 15.23 – sá sem sendi mig Jóh 12.44
10.18 Hrapar af himni Jóh 12.31; Opb 12.8-9; sbr Jes 14.12; Mrk 1.13+
10.19 Stíga á höggorma 1Mós 3.15; Slm 91.13; sbr Mrk 16.18 – óvinurinn Matt 13.39 – ekkert mein gera Mrk 16.18
10.20 Andarnir undirgefnir Matt 7.22 – skráð í himnunum Opb 3.5+
10.21-24 Hlst. Matt 11.25-27; 13.16-17
10.21 Opinberað smælingjum 1Kor 1.26-28
10.22 Allt … Matt 28.18; Jóh 3.35; 13.3; 17.2; Fil 2.9 – faðirinn og sonurinn Jóh 10.15
10.23 Sæl Matt 5.3+
10.24 Spámenn vildu sjá … 1Pét 1.10
10.25 Lögvitringur Lúk 7.30+ – Jesú freistað Matt 16.1; 19.3; 22.35; Mrk 10.2; Lúk 11.16 – hvað á ég að gera? Lúk 3.10; 18.18 og hlst.; Post 2.37; 16.30; 22.10
10.27 Elska skalt þú Drottin 5Mós 6.5; 10.12; Jós 22.5; Matt 22.37; Mrk 12.30 – náungi 3Mós 19.18; Matt 5.43; 19.19 og hlst.; 22.39 og hlst.; Róm 13.9; Gal 5.14; Jak 2.8
10.28 Og þú munt lifa 3Mós 18.5; Róm 10.5; Gal 3.12
10.33 Samverji Lúk 9.52+
10.37 Gera Matt 7.21+
10.38-39 Marta og María Jóh 11.1; 12.2-3
10.42 Eitt er nauðsynlegt Lúk 12.31; sbr Post 6.2