1Brúðguminn Ég kom í garð minn, systir mín, brúður, ég tíndi myrru mína og balsam. Ég át hunangsköku mína og hunangsseim, ég drakk vín mitt og mjólk. Kór Etið, vinir, drekkið, gjörist ástdrukknir.2Brúðurin Ég sef, en hjarta mitt vakir, heyr, unnusti minn drepur á dyr! Ljúk upp fyrir mér, systir mín, vina mín, dúfan mín, ljúfan mín! Því að höfuð mitt er alvott af dögg, hárlokkar mínir af dropum næturinnar.3Ég er komin úr kyrtlinum, hvernig ætti ég að fara í hann aftur? Ég hefi laugað fæturna, hvernig ætti ég að óhreinka þá aftur?4Unnusti minn rétti höndina inn um gluggann, og hjarta mitt svall honum á móti.5Ég reis á fætur til þess að ljúka upp fyrir unnusta mínum, og myrra draup af höndum mínum og fljótandi myrra af fingrum mínum á handfang slárinnar.6Ég lauk upp fyrir unnusta mínum, en unnusti minn var farinn, horfinn. Ég stóð á öndinni meðan hann talaði. Ég leitaði hans, en fann hann ekki, ég kallaði á hann, en hann svaraði ekki.7Verðirnir sem ganga um borgina, hittu mig, þeir slógu mig, þeir særðu mig, verðir múranna sviptu slæðunum af mér.8Ég særi yður, Jerúsalemdætur: Þegar þér finnið unnusta minn, hvað ætlið þér þá að segja honum? Að ég sé sjúk af ást!9Kór Hvað hefir unnusti þinn fram yfir aðra unnusta, þú hin fegursta meðal kvenna? Hvað hefir unnusti þinn fram yfir aðra unnusta, úr því þú særir oss svo?10Brúðurin Unnusti minn er mjallahvítur og rauður, hann ber af tíu þúsundum.11Höfuð hans er skíragull, hinir hrynjandi hárlokkar hans hrafnsvartir,12augu hans eins og dúfur við vatnslæki, baðandi sig í mjólk, sett í umgjörð,13kinnar hans eins og balsambeð, er í vaxa kryddjurtir. Varir hans eru liljur, drjúpandi af fljótandi myrru.14Hendur hans eru gullkefli, sett krýsolítsteinum, kviður hans listaverk af fílabeini, lagt safírum.15Fótleggir hans eru marmarasúlur, sem hvíla á undirstöðum úr skíragulli, ásýndar er hann sem Líbanon, frábær eins og sedrustré.16Gómur hans er sætleikur, og allur er hann yndislegur. Þetta er unnusti minn og þetta er vinur minn, þér Jerúsalemdætur.

5.1 Ilmur Ljl 1.12+ – vín Ljl 1.2+
5.5 Ilmur Ljl 1.12+
5.6 Ég leita hans Ljl 3.1-2
5.7 Verðirnir Ljl 3.3
5.8 Sjúk af ást Ljl 2.5
5.10-16 Elskhugi minn sbr Ljl 4.1-14+
5.10 Bjartur og rjóður sbr 1Sam 16.12 – ber af 2Sam 18.3
5.12 Dúfur Ljl 1.15+
5.13 Kinnar Ljl 1.10 – ilmur Ljl 1.12+
5.15 Súlur sbr Slm 144.12; Sír 26.18