1Í hvílu minni um nótt leitaði ég hans sem sál mín elskar, ég leitaði hans, en fann hann ekki.2Ég skal fara á fætur og ganga um borgina, um strætin og torgin. Ég skal leita hans, sem sál mín elskar! Ég leitaði hans, en fann hann ekki.3Verðirnir, sem ganga um borgina, hittu mig. Hafið þér séð þann sem sál mín elskar?4Óðara en ég var frá þeim gengin, fann ég þann sem sál mín elskar. Ég þreif í hann og sleppi honum ekki, fyrr en ég hefi leitt hann í hús móður minnar og í herbergi hennar er mig ól.5Ég særi yður, Jerúsalemdætur, við skógargeiturnar eða við hindirnar í haganum: Vekið ekki, vekið ekki elskuna, fyrr en hún sjálf vill.6Hvað er það, sem kemur úr heiðinni eins og reykjarsúlur, angandi af myrru og reykelsi, af alls konar kaupmannskryddi?7Það er burðarrekkja Salómons, sextíu kappar kringum hana af köppum Ísraels.8Allir með sverð í hendi, vanir hernaði, hver og einn með sverð við lend vegna næturóttans.9Burðarstól lét Salómon konungur gjöra sér úr viði frá Líbanon.10Stólpa hans lét hann gjöra af silfri, bakið úr gulli, sætið úr purpuradúk, lagt hægindum að innan af elsku Jerúsalemdætra.11Gangið út, Síonardætur, og horfið á Salómon konung, á sveiginn sem móðir hans hefir krýnt hann á brúðkaupsdegi hans og á gleðidegi hjarta hans.

3.1 Ég leita hans Ljl 5.6; Jes 65.1; Jer 29.13; Hós 2.9; 5.6; Okv 1.28; sbr Matt 7.7
3.3 Verðirnir Ljl 5.7
3.4 Sleppti honum ekki 1Mós 2.24 – móðir stúlkunnar Ljl 6.9; 8.2 – unga mannsins Ljl 3.11; 8.5
3.6 Hvað er það? Ljl 6.10; 8.5 – myrra og reykelsi sbr Ljl 1.12+ – kaupmannakrydd 1Kon 10.15; Esk 27.13-24; Nah 3.16
3.7 Salómon Ljl 3.9,11; 8.11-12
3.8 Ógnir næturinnar Slm 91.5; Tób 3.7-8; 6.14
3.11 Kóróna Jes 61.10; 62.3 – brúðkaup og gleði Jes 62.5