1Og Job hélt áfram að flytja ræðu sína og mælti:2Svo sannarlega sem Guð lifir, sá er svipt hefir mig rétti mínum, og hinn Almáttki, er hryggt hefir sálu mína:3meðan lífsönd er í mér og andi Guðs í nösum mínum,4skulu varir mínar ekki tala ranglæti og tunga mín ekki mæla svik.5Fjarri sé mér að játa, að þér hafið rétt að mæla. Þar til er ég gef upp andann, læt ég ekki taka frá mér sakleysi mitt.6Ég held fast í réttlæti mitt og sleppi því ekki, hjarta mitt átelur mig ekki fyrir neinn daga minna.7Fyrir óvini mínum fari eins og hinum óguðlega og fyrir mótstöðumanni mínum eins og hinum rangláta.8Því að hvaða von hefir guðlaus maður, þegar skorið er á þráðinn, þá er Guð hrífur burt líf hans?9Ætli Guð heyri óp hans, þá er neyð kemur yfir hann?10Eða getur hann haft yndi af hinum Almáttka, hrópað til Guðs, hvenær sem vera skal?11Ég vil fræða yður um hönd Guðs, eigi leyna því, er hinn Almáttki hefir í hyggju.12Sjá, þér hafið allir séð það sjálfir, hví farið þér þá með slíka heimsku?13Þetta er hlutskipti óguðlegs manns hjá Guði, arfleifð ofbeldismanns, sú er hann fær frá hinum Almáttka:14Eignist hann mörg börn, þá er það handa sverðinu, og afkvæmi hans mettast eigi af brauði.15Þeir af fólki hans er af komast, verða jarðaðir af drepsóttinni, og ekkjur þeirra halda engan harmagrát.16Þegar hann hrúgar saman silfri eins og sandi og hleður saman klæðum sem leir,17þá hleður hann þeim saman, en hinn réttláti klæðist þeim, og silfrinu deilir hinn saklausi.18Hann hefir byggt hús sitt eins og köngulló og svo sem skála, er varðmaður reisir sér.19Ríkur leggst hann til hvíldar hann gjörir það eigi oftar, hann lýkur upp augunum, og þá er allt farið.20Skelfingar ná honum eins og vatnaflaumur, um nótt hrífur stormurinn hann burt.21Austanvindurinn hefur hann á loft, svo að hann þýtur áfram, og feykir honum burt af stað hans.22Vægðarlaust sendir hann skeyti sín á hann, fyrir hendi hans flýr hann í skyndi23þá skella menn saman lófum yfir honum og blístra hann burt frá bústað hans.

27.2 Sviptir mig réttinum Job 34.5,12 – beiskja Job 7.11+
27.3 Andi Guðs Job 33.4; 1Mós 2.7; Slm 104.30; sbr Job 4.9; Jes 11.4
27.4 Ósatt Job 6.28-30; 42.7-8; Jes 59.3
27.6 Ver rétt minn Job 13.18; 17.9; sbr Slm 143.2; Róm 3.10
27.8 Von hins óguðlega Lúk 12.20
27.10 Yndi af Guði Job 22.26+
27.13 Hlutskipti óguðlegra Job 20.29+
27.15 Dauðinn grefur Job 18.13; Jer 15.2; Opb 6.8
27.20 Skelfingar Job 6.4+
27.22 Reynir að komast undan Job 33.18; 36.12