1Þá svaraði Job og sagði:2Enn sem fyrr munu kveinstafir mínir verða taldir uppreisn, hönd Guðs hvílir þungt á andvörpum mínum.3Ég vildi að ég vissi, hvernig ég ætti að finna hann, hvernig ég gæti komist fram fyrir dómstól hans!4Þá mundi ég útskýra málið fyrir honum og fylla munn minn sönnunum.5Ég mundi fá að vita, hverju hann svaraði mér, og heyra hvað hann segði við mig.6Mundi hann deila við mig í mikilleik máttar síns? Nei, hann mundi veita mér óskipta athygli.7Þá mundi hreinskilinn maður þreyta málsókn við hann, og ég mundi að eilífu losna við dómara minn.8En fari ég í austur, þá er hann þar ekki, og í vestur, þar verð ég hans eigi var.9Þótt hann hafist að í norðri, þá sé ég hann ekki, og sveigi hann á leið til suðurs, fæ ég ekki litið hann.10En hann veit, hvernig breytni mín hefir verið, ef hann prófaði mig, mundi ég reynast sem gull.11Fótur minn hefir þrætt spor hans, ég hefi haldið veg hans og eigi hneigt af leið.12Frá skipun vara hans hefi ég ekki vikið, hefi varðveitt í brjósti mér orð munns hans.13En hann er samur við sig hver aftrar honum? Ef hann girnist eitthvað, gjörir hann það.14Já, hann framkvæmir það, er hann hefir ætlað mér, og mörgu slíku býr hann yfir.15Þess vegna skelfist ég auglit hans. Hugleiði ég það, hræðist ég hann.16Já, Guð hefir gjört mig hugdeigan, og hinn Almáttki skotið mér skelk í bringu.17Því að það er ekki vegna ógæfunnar, að ég stend örþrota, né vegna sjálfs mín, þótt niðdimman hylji mig.

23.3 Finna hann Job 9.11+
23.5 Svar Guðs Job 38-41
23.8-9 Sé ekki Job 9.11+
23.10 Guð þekkir breytni manna Slm 139.1-6 – prófar menn Sak 13.9; Slm 17.3; 1Pét 1.7+ ; sbr Lúk 22.31
23.11 Fylgja vegi Guðs Slm 17.5
23.12 Fylgja boðum Slm 17.4
23.13 Sem honum þóknast Jes 46.10; Slm 115.3; Dan 4.32
23.15 Ég skelfist Slm 119.120; sbr Matt 8.34 og hlst.