1Sjá, hinn alvaldi, Drottinn allsherjar sviptir Jerúsalem og Júda hverri stoð og styttu, allri stoð brauðs og allri stoð vatns,2hetjum og hermönnum, dómendum og spámönnum, spásagnamönnum og öldungum,3höfuðsmönnum, virðingamönnum, ráðgjöfum, hugvitsmönnum og kunnáttumönnum.4Ég vil fá þeim ungmenni fyrir höfðingja, og smásveinar skulu drottna yfir þeim.5Á meðal fólksins skal maður manni þrengja. Ungmennið mun hrokast upp í móti öldungnum og skrílmennið upp í móti tignarmanninum.6Þegar einhver þrífur í bróður sinn í húsi föður síns og segir: Þú átt yfirhöfn, ver þú stjórnari vor, og þetta fallandi ríki skal vera undir þinni hendi,7þá mun hann á þeim degi hefja upp raust sína og segja: Ég vil ekki vera sáralæknir, og í húsi mínu er hvorki til brauð né klæði. Gjörið mig ekki að þjóðstjóra.8Jerúsalem er að hruni komin og Júda er að falla, af því að tunga þeirra og athæfi var gegn Drottni til þess að storka dýrðaraugum hans.9Andlitssvipur þeirra vitnar í gegn þeim, og þeir gjöra syndir sínar heyrinkunnar, eins og Sódóma, og leyna þeim ekki. Vei þeim, því að þeir hafa bakað sjálfum sér ógæfu.10Heill hinum réttlátu, því að þeim mun vel vegna, því að þeir munu njóta ávaxtar verka sinna.11Vei hinum óguðlega, honum mun illa vegna, því að honum mun goldið verða eftir tilgjörðum hans.12Harðstjóri þjóðar minnar er drengur, og konur drottna yfir henni. Þjóð mín, leiðtogar þínir leiða þig afleiðis og villa fyrir þér veginn.13Drottinn gengur fram til að sækja sökina, hann stendur frammi til að dæma þjóðirnar.14Drottinn gengur fram til dóms í gegn öldungum lýðs síns og höfðingjum hans: Það eruð þér, sem hafið etið upp víngarðinn. Rændir fjármunir fátæklinganna eru í húsum yðar.15Hvernig getið þér fengið af yður að fótum troða lýð minn og merja sundur andlit hinna snauðu, segir hinn alvaldi, Drottinn allsherjar.16Drottinn sagði: Sökum þess að dætur Síonar eru drembilátar og ganga hnakkakerrtar, gjóta út undan sér augunum og tifa í göngunni og láta glamra í ökklaspennunum,17þá mun Drottinn gjöra kláðugan hvirfil Síonar dætra og gjöra bera blygðan þeirra.18Á þeim degi mun Drottinn burt nema skart þeirra: ökklaspennurnar, ennisböndin, hálstinglin,19eyrnaperlurnar, armhringana, andlitsskýlurnar,20motrana, ökklafestarnar, beltin, ilmbaukana, töfraþingin,21fingurgullin, nefhringana,22glitklæðin, nærklæðin, möttlana og pyngjurnar,23speglana, líndúkana, vefjarhettina og slæðurnar.24Koma mun ódaunn fyrir ilm, reiptagl fyrir belti, skalli fyrir hárfléttur, aðstrengdur hærusekkur í stað skrautskikkju, brennimerki í stað fegurðar.25Menn þínir munu fyrir sverði falla og kappar þínir í orustu.26Hlið borgarinnar munu kveina og harma, og hún sjálf mun sitja einmana á jörðinni.

3.1 Drottinn allsherjar Jes 1.24+
3.2 Spásagnamenn 5Mós 18.14; Jós 13.22; 1Sam 6.2; Jes 44.25; Jer 27.9; 29.8; Mík 3.5-7; Sak 10.2 – öldungur 2Mós 3.16,18; 2Sam 5.3; 1Kon 21.8; sbr 5Mós 25.7-9
3.4 Drengir að höfðingjum Préd 10.16
3.5 Bræður munu berjast Dóm 7.22; 1Sam 14.20; Mík 7.6
3.6 Rústir Jer 14.19
3.9 Andlitssvipur þeirra Jer 3.3 – vitnar gegn þeim Jer 14.7; Hós 5.5; 1Tím 5.24
3.11 Endurgjalda Slm 128.2; Okv 12.14; Gal 6.7; sbr Jer 17.10; Okv 1.31
3.12 Afvegaleiða þjóðina Jer 23.13; Hós 4.12; Mík 3.5
3.13 Drottinn dæmir Jer 2.9; Hós 4.1; Mík 6.1; Slm 50.4; sbr Jes 41.1+
3.14 Víngarðurinn Jes 5.1+ – þýfi frá fátækum Am 2.6,8; Mík 2.1-2
3.15 Réttlætið fótum troðið Jes 1.23,26; 5.23; 10.1-2; 3Mós 19.15; Okv 22.22-23
3.16 Stærilátar Esk 16.50; Sef 3.11
3.17 Niðurlæging Jes 47.3; Jer 13.26; Esk 16.37
3.25 Falla fyrir sverði 2Sam 1.12; Hós 14.1
3.26 Hryggðarmynd Jes 24.4; 33.9; Jer 14.2; Hós 4.3; Jl 1.10; Am 1.2; Hlj 1.4; 2.8-9 – yfirgefin Jes 47.1; Job 2.13; Hlj 2.10