1Orðið sem kom til Jeremía frá Drottni:2Svo segir Drottinn, Ísraels Guð: Skrifa þú öll þau orð, er ég hefi til þín talað, í bók.3Því sjá, þeir dagar munu koma segir Drottinn að ég mun snúa við hag lýðs míns, Ísraels og Júda segir Drottinn og láta þá hverfa aftur til þess lands, sem ég gaf feðrum þeirra, og þeir skulu taka það til eignar.4Þessi eru orðin, sem Drottinn talaði um Ísrael og Júda.5Svo segir Drottinn: Hræðsluóp heyrum vér, ótti er á ferðum, en engin heill!6Spyrjið um og gætið að, hvort karlmaður ali barn! Hvers vegna sé ég þá alla menn með hendur á lendum, líkt og jóðsjúk kona væri, og hvers vegna eru öll andlit orðin nábleik?7Vei, mikill er sá dagur, hann á ekki sinn líka og angistartími er það fyrir Jakob, en hann mun frelsast frá því.8Á þeim degi segir Drottinn allsherjar mun ég sundur brjóta okið af hálsi hans og slíta af honum böndin, og útlendir menn skulu ekki lengur halda honum í þrældómi.9Þeir skulu þjóna Drottni, Guði sínum, og Davíð, konungi sínum, er ég mun uppvekja þeim.10Óttast þú ekki, þjónn minn Jakob segir Drottinn og hræðst þú ekki, Ísrael, því að ég frelsa þig úr fjarlægu landi og leysi niðja þína úr landinu, þar sem þeir eru herleiddir, til þess að Jakob hverfi heim aftur og njóti hvíldar og búi óhultur, án þess nokkur hræði hann.11Ég er með þér segir Drottinn til þess að frelsa þig. Ég vil gjöreyða öllum þeim þjóðum, sem ég hefi tvístrað þér á meðal. Þér einni vil ég ekki gjöreyða, heldur vil ég hirta þig í hófi, en ég vil ekki láta þér með öllu óhegnt.12Svo segir Drottinn: Áverki þinn er illkynjaður, sár þitt ólæknandi.13Enginn tekur að sér málefni þitt, við meininu er engin lækning, engin smyrsl til handa þér.14Allir ástmenn þínir hafa gleymt þér, þeir spyrja ekki eftir þér, af því að ég hefi lostið þig, eins og óvinur lýstur, með grimmilegri hirting, sakir fjölda misgjörða þinna, sakir þess að syndir þínar eru margar.15Hví æpir þú af áverka þínum, af þinni ólæknandi kvöl? Sakir fjölda misgjörða þinna, sakir þess að syndir þínar eru margar, hefi ég gjört þér þetta.16Fyrir því skulu allir þeir, sem þig eta, etnir verða, og allir þeir, sem þér þröngva, herleiddir verða. Og þeir, sem rupla þig, skulu verða öðrum að herfangi, og alla þá, sem þig ræna, mun ég framselja til ráns.17Ég mun láta koma hyldgan á sár þín og lækna þig af áverkum þínum segir Drottinn af því að þeir kalla þig hina brottreknu, Síon, sem enginn spyr eftir.18Svo segir Drottinn: Sjá, ég sný við högum Jakobs tjalda og miskunna mig yfir bústaði hans, til þess að borgin verði aftur reist á hæð sinni og aftur verði búið í höllinni á hennar vanastað.19Og þaðan skal hljóma þakkargjörð og gleðihljóð, og ég læt þeim fjölga og eigi fækka, og ég gjöri þá vegsamlega, svo að þeir séu ekki lengur lítilsvirtir.20Synir hans skulu vera mér sem áður, og söfnuður hans skal vera grundvallaður frammi fyrir mér, en allra kúgara hans mun ég vitja.21Höfðingi hans mun frá honum koma og drottnari hans fram ganga úr flokki hans. Og ég mun láta hann nálgast mig, og hann mun koma til mín, því að hver skyldi af sjálfsdáðum hætta lífi sínu í það að koma til mín? segir Drottinn.22Og þá munuð þér vera mín þjóð, og ég mun vera yðar Guð.23Sjá, stormur Drottins brýst fram reiði og hvirfilbylur hann steypist yfir höfuð hinna óguðlegu.24Hinni brennandi reiði Drottins linnir ekki fyrr en hann hefir framkvæmt fyrirætlanir hjarta síns og komið þeim til vegar. Síðar meir munuð þér skilja það.

30.2 Í bók Jer 36.2; 51.60
30.3 Endurreisn Ísraels Jer 29.14+ ; sbr Jer 3.11-18 – leiða aftur til lansins … Jer 32.27; Sak 10.10; sbr Jer 23.3+
30.5 Angistaróp Jer 8.15
30.6 Spyrjið Jer 18.13 – kona með jóðsótt Jer 4.31+ ; Jóh 16.21
30.7 Dagur Drottins Jl 1.15 – engum öðrum líkur Dan 12.1; Opb 16.18 – þrengingatíð Jer 14.8
30.8 Brjóta ok, slíta hlekki Jer 2.20; 28.11; 3Mós 26.13; Jes 14.25; Esk 34.27; Slm 107.14 – Drottinn endurleysir Jes 10.27; Nah 1.13
30.9 Þjóna Drottni 2Mós 3.12; Lúk 1.74 – Davíð konungur Jer 23.5-6; Esk 37.24; Hós 3.5
30.10-11 sbr Jer 46.27-28
30.10 Óttastu ekki Jes 44.2 – ekki hugfallast Jer 1.17 – bjarga þér Jer 42.11 – óhultur Mík 4.4; Sef 3.13
30.11 Með þér Jer 1.8+ – dreifði Jer 9.15 – ekki eyða Jer 4.27+ – ekki óhengt 2Mós 34.7; 4Mós 14.18
30.12 Ólæknandi Jer 10.19+ ; Nah 3.19
30.13 Engin bót Jer 46.11
30.14 Vinir þínir Jer 4.30+ – gleyma þér Hlj 1.2,18 – Guð sem fjandmaður Job 19.11 – mikil sekt Jer 7.12; 22.22
30.16 Sem gleyptu þig Jer 10.25 – gleyptir verða Jes 20.4; Nah 3.10 – ránsmenn rændir Nah 2.11; sbr Jes 33.1+
30.17 Lækning Jer 33.6
30.18 Sný við högum Jer 29.14+
30.19 Frjósemi Jer 3.16+ ; 3Mós 26.9; Esk 36.11,37; 37.26
30.20 Sem forðum Jes 1.26 – draga kúgara til ábyrgðar Jer 25.12
31.21 Af ætt hans 5Mós 17.15; sbr Sak 10.4 – nálgast Drottin 3Mós 9.5-9; 4Mós 8.19 – hætta lífi sínu 2Mós 33.20; Dóm 6.22-23; 13.22; Jes 6.5
30.22 Mín þjóð, yðar Guð Jer 7.23+
30.23-24 Stormur Jer 23.19-20; 25.32 – síðar Jóh 13.7