1Komið, vér skulum hverfa aftur til Drottins, því að hann hefir sundur rifið og mun lækna oss, hann hefir lostið og mun binda um sár vor.2Hann mun lífga oss eftir tvo daga og reisa oss upp á þriðja degi, til þess að vér lifum fyrir hans augliti.3Vér viljum og þekkja, kosta kapps um að þekkja Drottin hann mun eins áreiðanlega koma eins og morgunroðinn rennur upp svo að hann komi yfir oss eins og regnskúr, eins og vorregn, sem vökvar jörðina.4Hvað skal ég við þig gjöra, Efraím, hvað skal ég við þig gjöra, Júda, þar sem elska yðar er eins hvikul og morgunský, eins og döggin, sem snemma hverfur?5Fyrir því verð ég að vega að þeim fyrir munn spámannanna, bana þeim með orði munns míns, og fyrir því verður dómur minn að birtast eins óbrigðult og dagsljósið rennur upp.6Því að á miskunnsemi hefi ég þóknun, en ekki á sláturfórn, og á guðsþekking fremur en á brennifórnum.7Þeir hafa rofið sáttmálann að manna hætti, þar hafa þeir verið mér ótrúir.8Gíleað er glæpamanna borg, full af blóðferlum,9og prestaflokkurinn er eins og ræningjar, sem veita mönnum fyrirsát. Þeir myrða á veginum til Síkem, já, svívirðing hafa þeir framið.10Í Ísraelsríki hefi ég séð hryllilega hluti, þar hefir Efraím drýgt hór, Ísrael saurgað sig.11Einnig þér, Júda, hefir hann búið uppskeru. Þegar ég sný við högum þjóðar minnar,

6.1 Hverfa aftur Hós 14.2; Hlj 3.40; 5.21
6.2 Tvo … á þriðja Am 1.3; Mík 5.4; Okv 30.15,18,21 …; sbr Lúk 24.7; 1Kor 15.4 – fyrir augliti Drottins Slm 116.9; Lúk 1.75
6.3 Þekkja Drottin Hós 4.1+ ; Fil 3.8 – regn 5Mós 11.14; Slm 72.6; sbr 1Mós 8.22; Jer 33.25; Jl 2.23
6.4 Morgunþoka, dögg Hós 13.3; 14.6; Mík 5.6; Okv 19.12
6.5 Vega þá Jes 49.2; Heb 4.12-13+ ; sbr Jes 11.4; Jer 5.14; 23.29
6.6 Miskunnsemi Hós 4.1+ – fremur en fórnir Jes 1.11-17; Am 5.22-24; Slm 40.7; 51.19; Okv 21.3; Matt 9.13; 12.7
6.7 Rofinn sáttmáli Hós 8.2; Jer 31.32; 34.15-18
6.8 Gíleað Hós 12.12; sbr 2Kon 15.25
6.11 Högum snúið við 5Mós 30.3; Jer 29.14+ ; Esk 16.53; 29.14; 39.25; Am 9.14; Sef 2.7; 3.20; Hlj 2.14