1Ég minni yður, bræður, á fagnaðarerindi það, sem ég boðaði yður, sem þér og veittuð viðtöku og þér einnig standið stöðugir í.2Fyrir það verðið þér og hólpnir ef þér haldið fast við orðið, fagnaðarerindið, sem ég boðaði yður, og hafið ekki ófyrirsynju trúna tekið.3Því það kenndi ég yður fyrst og fremst, sem ég einnig hef meðtekið, að Kristur dó vegna vorra synda samkvæmt ritningunum,4að hann var grafinn, að hann reis upp á þriðja degi samkvæmt ritningunum5og að hann birtist Kefasi, síðan þeim tólf.6Því næst birtist hann meira en fimm hundruð bræðrum í einu, sem flestir eru á lífi allt til þessa, en nokkrir eru sofnaðir.7Síðan birtist hann Jakobi, því næst postulunum öllum.8En síðast allra birtist hann einnig mér, eins og ótímaburði.9Því ég er sístur postulanna og er ekki þess verður að kallast postuli, með því að ég ofsótti söfnuð Guðs.10En af Guðs náð er ég það sem ég er, og náð hans við mig hefur ekki orðið til ónýtis, heldur hef ég erfiðað meira en þeir allir, þó ekki ég, heldur náð Guðs, sem með mér er.11Hvort sem það því er ég eða þeir, þá prédikum vér þannig, og þannig hafið þér trúna tekið.12En ef nú er prédikað, að Kristur sé upprisinn frá dauðum, hvernig geta þá nokkrir yðar sagt, að dauðir rísi ekki upp?13Ef ekki er til upprisa dauðra, þá er Kristur ekki heldur upprisinn.14En ef Kristur er ekki upprisinn, þá er ónýt prédikun vor, ónýt líka trú yðar.15Vér reynumst þá vera ljúgvottar um Guð, þar eð vér höfum vitnað um Guð, að hann hafi uppvakið Krist, sem hann hefur ekki uppvakið, svo framarlega sem dauðir rísa ekki upp.16Því að ef dauðir rísa ekki upp, er Kristur ekki heldur upprisinn.17En ef Kristur er ekki upprisinn, er trú yðar fánýt, þér eruð þá enn í syndum yðar,18og þá eru einnig þeir, sem sofnaðir eru í trú á Krist, glataðir.19Ef von vor til Krists nær aðeins til þessa lífs, þá erum vér aumkunarverðastir allra manna.20En nú er Kristur upprisinn frá dauðum sem frumgróði þeirra, sem sofnaðir eru.21Því að þar eð dauðinn kom fyrir mann, kemur og upprisa dauðra fyrir mann.22Því að eins og allir deyja fyrir samband sitt við Adam, svo munu allir lífgaðir verða fyrir samfélag sitt við Krist.23En sérhver í sinni röð: Kristur sem frumgróðinn, því næst, við komu hans, þeir sem honum tilheyra.24Síðan kemur endirinn, er hann selur ríkið Guði föður í hendur, er hann hefur að engu gjört sérhverja tign, sérhvert veldi og kraft.25Því að honum ber að ríkja, uns hann leggur alla fjendurna undir fætur hans.26Dauðinn er síðasti óvinurinn, sem verður að engu gjörður.27Allt hefur hann lagt undir fætur honum. Þegar stendur, að allt hafi verið lagt undir hann, er augljóst, að sá er undan skilinn, sem lagði allt undir hann.28En þegar allt hefur verið lagt undir hann, þá mun og sonurinn sjálfur leggja sig undir þann, er lagði alla hluti undir hann, til þess að Guð sé allt í öllu.29Til hvers eru menn annars að láta skírast fyrir hina dánu? Ef dauðir menn rísa alls ekki upp, hvers vegna láta menn þá skíra sig fyrir þá?30Hvers vegna erum vér líka að stofna oss í hættu hverja stund?31Svo sannarlega, bræður, sem ég get hrósað mér af yður í Kristi Jesú, Drottni vorum: Á degi hverjum vofir dauðinn yfir mér.32Hafi ég eingöngu að hætti manna barist við villidýr í Efesus, hvaða gagn hefði ég þá af því? Ef dauðir rísa ekki upp, etum þá og drekkum, því að á morgun deyjum vér!33Villist ekki. Vondur félagsskapur spillir góðum siðum.34Vaknið fyrir alvöru og syndgið ekki. Nokkrir hafa enga þekkingu á Guði. Yður til blygðunar segi ég það.35En nú kynni einhver að segja: Hvernig rísa dauðir upp? Hvaða líkama hafa þeir, þegar þeir koma?36Þú óvitri maður! Það sem þú sáir lifnar ekki aftur nema það deyi.37Og er þú sáir, þá er það ekki sú jurt, er vex upp síðar, sem þú sáir, heldur bert frækornið, hvort sem það nú heldur er hveitikorn eða annað fræ.38En Guð gefur því líkama eftir vild sinni og hverri sæðistegund sinn líkama.39Ekki eru allir líkamir eins, heldur hafa mennirnir einn, kvikféð annan, fuglarnir einn og fiskarnir annan.40Til eru himneskir líkamir og jarðneskir líkamir. En vegsemd hinna himnesku er eitt og hinna jarðnesku annað.41Eitt er ljómi sólarinnar og annað ljómi tunglsins og annað ljómi stjarnanna, því að stjarna ber af stjörnu í ljóma.42Þannig er og um upprisu dauðra. Sáð er forgengilegu, en upp rís óforgengilegt.43Sáð er í vansæmd, en upp rís í vegsemd. Sáð er í veikleika, en upp rís í styrkleika.44Sáð er jarðneskum líkama, en upp rís andlegur líkami. Ef jarðneskur líkami er til, þá er og til andlegur líkami.45Þannig er og ritað: Hinn fyrsti maður, Adam, varð að lifandi sál, hinn síðari Adam að lífgandi anda.46En hið andlega kemur ekki fyrst, heldur hið jarðneska, því næst hið andlega.47Hinn fyrsti maður er frá jörðu, jarðneskur, hinn annar maður er frá himni.48Eins og hinn jarðneski var, þannig eru og hinir jarðnesku og eins og hinn himneski, þannig eru og hinir himnesku.49Og eins og vér höfum borið mynd hins jarðneska, munum vér einnig bera mynd hins himneska.50En það segi ég, bræður, að hold og blóð getur eigi erft Guðs ríki, eigi erfir heldur hið forgengilega óforgengileikann.51Sjá, ég segi yður leyndardóm: Vér munum ekki allir sofna, en allir munum vér umbreytast52í einni svipan, á einu augabragði, við hinn síðasta lúður. Því lúðurinn mun gjalla og þá munu hinir dauðu upp rísa óforgengilegir, og vér munum umbreytast.53Þetta forgengilega á að íklæðast óforgengileikanum og þetta dauðlega að íklæðast ódauðleikanum.54En þegar hið forgengilega íklæðist óforgengileikanum og hið dauðlega ódauðleikanum, þá mun rætast orð það, sem ritað er: Dauðinn er uppsvelgdur í sigur.55Dauði, hvar er sigur þinn? Dauði, hvar er broddur þinn?56En syndin er broddur dauðans og lögmálið afl syndarinnar.57Guði séu þakkir, sem gefur oss sigurinn fyrir Drottin vorn Jesú Krist!58Þess vegna, mínir elskuðu bræður, verið staðfastir, óbifanlegir, síauðugir í verki Drottins. Þér vitið að erfiði yðar er ekki árangurslaust í Drottni.

15.3 Dó vegna okkar synda Jes 53.8-9
15.4 Reis upp samkvæmt ritningunum Slm 16.10; Post 2.24-32 – á þriðja degi Hós 6.2; Jón 2.1; Matt 12.40
15.5 Kefas 1Kor 1.12+ – birtist Kefasi Lúk 24.34 – birtist þeim tólf Matt 28.16-17; Mrk 16.14; Lúk 24.36; Jóh 20.19
15.7 Postulunum öllum Lúk 24.50
15.8 Birtist Páli Post 9.3-6; 1Kor 9.1
15.9 Sístur postulanna Ef 3.8; 1Tím 1.15; sbr Matt 5.19 – ofsótti söfnuðinn Post 8.3+
15.10 Ekki til ónýtis 2Kor 6.1 – erfiðað 2Kor 11.5,23
15.15 Vottar upprisu Krists Post 2.32; 4.33
15.20 Frumgróði Róm 8.23; 11.16; Kól 1.18
15.21 Dauðinn kom með manni 1Mós 3.17-19; Róm 5.12,18
15.22 Adam og Kristur Róm 5.12-21
15.23 Í sinni röð 1Þess 4.16; Opb 20.5; sbr Dan 12.2; Jóh 5.29; Post 24.15
15.24 Að engu gert … Dan 2.44 – tign, veldi og kraftur Kól 1.16+ ; 2.15; sbr 1Kor 2.6,8
15.25 Uns hann hefur lagt … Slm 110.1; Matt 22.44+
15.26 Síðasti óvinurinn Opb 20.14; 21.4
15.27 Allt lagt undir fætur honum Slm 8.7
15.30 Í hættu hverja stund Róm 8.36
15.31 Dauðinn vofir yfir 2Kor 7.5+
15.32 Etum og drekkum Jes 22.13; 56.12; Lúk 12.19-20
15.34 Vaknið Róm 13.11; Ef 5.14 – ykkur til blygðunar 1Kor 6.5
15.36 Það sem þú sáir Jóh 12.24
15.38 Hverri sinn líkama 1Mós 1.11
15.43 Ummyndun Fil 3.20-21
15.45 Lifandi sál 1Mós 2.7; sbr 1.20 – lífgandi andi Jóh 6.63; 2Kor 3.6,17
15.47 Frá jörðu 1Mós 2.7
15.49 Bera mynd 1Mós 5.3
15.50 Getur eigi erft Guðs ríki 1Kor 6.10
15.51 Leyndardómur Róm 11.25; 1Kor 4.1; Ef 3.3+
15.52 Lúðurinn mun gjalla Matt 24.31; 1Þess 4.15-17; sbr Opb 8.6-11.19
15.53 Breytast 2Kor 5.4
15.54 Dauðinn er uppsvelgdur … Jes 25.8
15.55 Dauði, hvar er sigur þinn? Hós 13.14
15.56 Synd og dauði Róm 7.13,25 – synd og lögmál Róm 6.14
15.58 Verið staðföst 2Kro 15.7 – til ónýtis sbr Opb 14.13