Biblíulestur – 17. nóvember – 5Mós 29.15–28
Þið vitið að við bjuggum í Egyptalandi og hvernig við komumst um lönd þeirra þjóða sem þið fóruð um. Þið sáuð hina viðurstyggilegu hjáguði þeirra og skurðgoð úr tré og grjóti, silfri og gulli sem hjá þeim voru. Meðal ykkar sé enginn, karl eða kona, ættbálkur eða ætt, sem í dag snýr frá Drottni, Guði ykkar, og tekur að dýrka Guði þessara þjóða. Meðal ykkar má ekki vera rót sem eiturplanta eða malurt vex upp af, enginn sem blessar sjálfan sig í hjarta sínu þegar hann heyrir ákvæði þessa eiðs og hugsar með sér: „Mér farnast vel þó að ég lifi í þrjósku hjarta míns.“ Það mun leiða til þess að flæðiengi verður afmáð ásamt þurrlendi.
Drottinn mun ekki vilja fyrirgefa honum heldur mun heift Drottins og vandlæting blossa upp gegn þessum manni og öll bölvun, sem skráð er á bók þessa, mun hvíla á honum og Drottinn mun afmá nafn hans undir himninum. Drottinn mun greina hann frá öllum ættkvíslum Ísraels svo að illa fari fyrir honum í samræmi við allar bölvanir sáttmálans sem skráðar eru á þessa lögbók.
Komandi kynslóð, börn ykkar sem á eftir ykkur koma og útlendingar frá fjarlægu landi, munu segja þegar þeir sjá eyðingu landsins, plágur þær og sóttir sem Drottinn hefur látið geisa þar: „Allur jarðvegur þess er orðinn að brennisteini og salti, allt er sviðið. Engu verður þar sáð, ekkert sprettur þar, ekkert grær þar, fremur en í Sódómu og Gómorru, Adma og Sebóím sem Drottinn gereyddi í heift sinni og reiði.“
Þá munu þeir og allar þjóðir spyrja: „Hvers vegna fór Drottinn svona með þetta land? Hvernig stendur á þessu heiftarbáli?“
Og þeim mun svarað: „Af því að þeir yfirgáfu sáttmála Drottins, Guðs feðra sinna, sem hann gerði við þá þegar hann leiddi þá út úr Egyptalandi. Þeir tóku að dýrka aðra guði og sýna þeim lotningu, guði sem þeir höfðu ekki þekkt áður og Drottinn hafði ekki fengið þeim. Þess vegna blossaði heift Drottins upp gegn þessu landi svo að hann lét yfir það koma alla þá bölvun sem skráð er á þessa bók. Drottinn reif þá upp úr sínum eigin jarðvegi í heift og miklum ofsa og þeytti þeim í annað land og er svo enn í dag.“
Það sem leynt er heyrir Drottni til, Guði okkar, en það sem hefur verið opinberað heyrir okkur til og niðjum okkar ævinlega svo að við getum framfylgt öllum ákvæðum þessa lögmáls.
Biblíulestur 17. desember – Jes 56.1–8
Svo segir Drottinn: Varðveitið réttinn og iðkið réttlæti því að hjálpræði mitt er í nánd og réttlæti mitt birtist bráðlega. Sæll er sá maður sem breytir þannig og heldur fast [...]
Biblíulestur 16. desember – Neh 13.15–22
Um þessar mundir sá ég fólk troða vínþrær á hvíldardegi í Júda. Einnig sá ég fólk hirða korn og klyfja asna. Það flutti einnig vín, vínber, fíkjur og alls kyns [...]
Biblíulestur 15. desember – Matt 11.2–10
Þá er Jesús hafði mælt svo fyrir við lærisveina sína tólf hélt hann þaðan að kenna og prédika í borgum þeirra. Jóhannes heyrði í fangelsinu um verk Krists. Þá sendi [...]
Biblíulestur 14. desember – Slm 88.14–19
En ég hrópa til þín, Drottinn, bæn mín berst þér að morgni. Hví útskúfar þú mér, Drottinn, og hylur auglit þitt fyrir mér? Ég var beygður og í dauðans greipum [...]
Biblíulestur 13. desember – 2Mós 31.13–18
Þið skuluð halda hvíldardaga mína því að hvíldardagurinn er tákn milli mín og ykkar frá kyni til kyns svo að þið játið að ég er Drottinn sá sem helgar ykkur. [...]
Biblíulestur 12. desember – Heb 9.15–28
Þess vegna er hann meðalgangari nýs sáttmála. Hann dó og bætti að fullu fyrir afbrotin undir fyrri sáttmálanum til þess að þau sem Guð hafði kallað mættu öðlast hina eilífu [...]