Biblíulestur 13. ágúst – Mrk 14.53–72
Nú færðu þeir Jesú til æðsta prestsins. Þar komu saman allir æðstu prestarnir, öldungarnir og fræðimennirnir. Pétur fylgdi honum álengdar, allt inn í garð æðsta prestsins. Þar sat hann hjá þjónunum og vermdi sig við eldinn.
Æðstu prestarnir og allt ráðið leituðu vitnis gegn Jesú til að geta líflátið hann en fundu eigi. Margir báru þó ljúgvitni gegn honum en framburði þeirra bar ekki saman.
Þá stóðu nokkrir upp og báru ljúgvitni gegn Jesú og sögðu: „Við heyrðum hann segja: Ég mun brjóta niður musteri þetta, sem með höndum er gert, og reisa annað á þrem dögum sem ekki er með höndum gert.“ En ekki bar þeim heldur saman um þetta.
Þá stóð æðsti presturinn upp og spurði Jesú: „Svarar þú því engu sem þessir vitna gegn þér?“
En hann þagði og svaraði engu. Enn spurði æðsti presturinn hann: „Ertu Kristur, sonur hins blessaða?“
Jesús sagði: „Ég er sá og þið munuð sjá Mannssoninn sitja til hægri handar Hins almáttuga og koma í skýjum himins.“
Þá reif æðsti presturinn klæði sín og sagði: „Hvað þurfum við nú framar votta við? Þið heyrðuð guðlastið. Hvað líst ykkur?“
Og þeir dæmdu hann allir sekan og dauða verðan.
Þá tóku sumir að hrækja á hann, þeir huldu andlit hans, slógu hann með hnefunum og sögðu við hann: „Þú ert spámaður, hver sló þig?“ Eins börðu þjónarnir hann.
Pétur var niðri í garðinum. Þar kom ein af þernum æðsta prestsins og sá hvar Pétur var að orna sér. Hún horfir á hann og segir: „Þú varst líka með manninum frá Nasaret, þessum Jesú.“
Því neitaði Pétur og sagði: „Ekki veit ég né skil hvað þú ert að fara.“ Og hann gekk út í forgarðinn [en þá gól haninn].
Þar sá þernan hann og fór enn að segja við þá sem hjá stóðu: „Þessi er einn af þeim.“ En hann neitaði sem áður. Litlu síðar sögðu þeir er hjá stóðu enn við Pétur: „Víst ertu einn af þeim enda ertu Galíleumaður.“
En Pétur sór og sárt við lagði: „Ég þekki ekki þennan mann sem þið talið um.“
Um leið gól haninn annað sinn og Pétur minntist þess er Jesús hafði mælt við hann: „Áður en hani galar tvisvar muntu afneita mér þrisvar.“ Þá fór hann að gráta.
Biblíulestur – 1. október – 2Kor 12.11–21
Ég hef hagað mér eins og heimskingi. Þið hafið neytt mig til þess. Það voruð þið sem áttuð að mæla með mér. Því að í engu stóð ég hinum stórmiklu [...]
Biblíulestur – 30. september – 2Kor 12.1–10
Ég verð að halda áfram að hrósa mér þótt það komi að litlu gagni. En ég mun nú snúa mér að vitrunum og opinberunum sem Drottinn hefur birt mér. Ég [...]
Biblíulestur – 29. september – 2Kor 11.12–33
En ég mun ekki bregða út af vana mínum til þess að gefa þeim ekki tilefni sem færis leita til þess að vera jafnokar mínir í því sem þeir stæra [...]
Biblíulestur – 28. september – Matt 6.24–34
Enginn getur þjónað tveimur herrum. Annaðhvort hatar hann annan og elskar hinn eða þýðist annan og afrækir hinn. Þér getið ekki þjónað Guði og mammón. Því segi ég yður: Verið [...]
Biblíulestur – 27. september – Okv 25.14–28
Ský og vindur en engin rigning, svo er sá sem hrósar sér af örlæti en gefur þó ekkert. Með þolinmæði má telja höfðingja hughvarf, mjúk tunga mylur bein. Finnir þú [...]
Biblíulestur – 26. september – 2Kor 11.1–11
Ég vildi að þið umbæruð dálitla fávisku hjá mér. Vissulega gerið þið það. Ég vakti yfir ykkur með afbrýði eins og Guð því að ég hef fastnað ykkur einum manni, [...]