Biblíulestur 28. október – Jer 35.1–19
Orðið sem kom til Jeremía frá Drottni þegar Jójakím Jósíason var konungur í Júda:
Farðu í hús Rekabítanna, talaðu við þá og farðu með þá í hús Drottins, í eitthvert herbergið, og gefðu þeim vín að drekka.
Þá sótti ég Jaasanja Jeremíason, Habasinjasonar, bræður hans og alla syni og allan flokk Rekabíta. Ég fór með þá í hús Drottins, í herbergi sona Hanans, sonar guðsmannsins Jigdalja, en það er við hliðina á herbergi höfðingjanna sem er yfir herbergi Maaseja Sallúmssonar þröskuldsvarðar.
Því næst bar ég skálar fullar af víni og bikara fyrir mennina úr flokki Rekabíta og sagði við þá: „Drekkið nú dálítið vín.“ Þeir svöruðu: „Vér drekkum aldrei vín því að Jónadab Rekabsson, ættfaðir vor, skipaði svo fyrir: Þér megið aldrei drekka vín, hvorki þér sjálfir né afkomendur yðar. Þér megið hvorki reisa hús né sá sæði og hvorki gróðursetja né eiga víngarða. Þér skuluð búa í tjöldum alla ævi svo að þér lifið lengi í landinu sem þér dveljið í sem aðkomumenn. Vér höfum hlýtt öllum fyrirmælum Jónadabs Rekabssonar, ættföður vors, sem hann setti oss. Því drekkum vér ekki vín svo lengi sem vér lifum, hvorki vér sjálfir, konur vorar, synir né dætur. Vér reisum ekki hús til að búa í, vér eigum hvorki víngarð, akur né sáðkorn, heldur búum vér í tjöldum. Vér fylgjum í öllu því sem Jónadab, ættfaðir vor, gaf oss fyrirmæli um. En þegar Nebúkadresar konungur í Babýlon gerði innrás í landið sögðum vér: Komið, vér skulum fara til Jerúsalem undan her Kaldea og Aramea. Þess vegna búum vér í Jerúsalem.“
Þá kom orð Drottins til Jeremía:
Svo segir Drottinn hersveitanna, Guð Ísraels: Farðu og segðu við íbúana í Jerúsalem og Júda: Viljið þér ekki hlýða á orð mín og láta yður segjast? segir Drottinn. Boð Jónadabs Rekabssonar hafa verið haldin í heiðri. Hann skyldaði niðja sína til að drekka ekki vín og þeir hafa ekki drukkið það hingað til. Þeir hafa hlýtt boði ættföður síns en ég hef talað til yðar seint og snemma en þér hafið ekki hlýtt mér. Ég hef hvað eftir annað sent yður þjóna mína, spámennina, til að boða: Snúið yður, hver af sínum vonda vegi, og bætið breytni yðar. Eltið ekki aðra guði til að þjóna þeim. Þá munuð þér búa áfram í landinu sem ég gaf feðrum yðar. En þér lögðuð ekki við hlustir og hlýdduð mér ekki. Já, niðjar Jónadabs Rekabssonar hafa haldið í heiðri fyrirmæli ættföður síns, sem hann gaf þeim, en þetta fólk hlustar ekki á mig.
Þess vegna segir Drottinn, Guð hersveitanna, Guð Ísraels: Ég sendi yfir Júda og alla Jerúsalembúa allt það böl sem ég hef hótað. Þeir hlustuðu ekki þegar ég talaði til þeirra og svöruðu ekki þótt ég hrópaði til þeirra.
En Jeremía sagði við flokk Rekabíta: Svo segir Drottinn hersveitanna, Guð Ísraels: Þér hafið hlýtt fyrirmælum Jónadabs, ættföður yðar, virt öll boð hans og framfylgt öllu því sem hann setti yður. Þess vegna segir Drottinn hersveitanna, Guð Ísraels: Aldrei skal skorta afkomanda af ætt Jónadabs Rekabssonar til að þjóna fyrir augliti mínu.
Biblíulestur 2. október – Jak 5.7–20
Þreyið því, systkin, þangað til Drottinn kemur. Sjáið akuryrkjumanninn! Hann bíður eftir hinum dýrmæta ávexti jarðarinnar og þreyir eftir honum þangað til hann hefur fengið haustregn og vorregn. Verið þið [...]
Biblíulestur 1. október – Jak 4.11–5.6
Talið ekki illa hvert um annað, systkin. Sá sem talar illa um bróður sinn eða systur eða dæmir þau, talar illa um lögmálið og dæmir lögmálið. En ef þú dæmir [...]
Biblíulestur 30. september – Jak 3.13–4.10
Hver er vitur og skynsamur á meðal ykkar? Hann sýni það með því að vera hóglátur og vitur í allri breytni sinni. En ef beiskur ofsi og eigingirni býr í [...]
Biblíulestur 29. september – Jak 3.1–12
Verðið eigi mörg kennarar, bræður mínir og systur. Þið vitið að við munum fá þyngri dóm. Öll hrösum við margvíslega. Hrasi einhver ekki í orði þá er hann maður fullkominn, [...]
Biblíulestur 28. september – Jak 2.8–26
Ef þið uppfyllið hið konunglega boðorð Ritningarinnar: „Þú skalt elska náunga þinn eins og sjálfan þig,“ þá gerið þið vel. En ef þið farið í manngreinarálit þá drýgið þið synd [...]
Biblíulestur 27. september – Mrk 9.17–29
En einn úr mannfjöldanum svaraði honum: „Meistari, ég færði til þín son minn sem er haldinn illum anda svo að hann getur ekki talað. Hvar sem andinn grípur hann slengir [...]