Biblíulestur 19. ágúst – Mrk 16.9–20
[ Þegar Jesús var upp risinn árla hinn fyrsta dag vikunnar birtist hann fyrst Maríu Magdalenu en út af henni hafði hann rekið sjö illa anda. Hún fór og kunngjörði þetta þeim er með honum höfðu verið og hörmuðu nú og grétu.
Þá er þeir heyrðu að Jesús væri lifandi og hún hefði séð hann trúðu þeir ekki.
Eftir þetta birtist Jesús í annarri mynd tveimur þeirra þar sem þeir voru á göngu á leið út í sveit. Þeir sneru við og kunngjörðu hinum en þeir trúðu þeim ekki heldur.
Seinna birtist Jesús þeim ellefu þegar þeir sátu til borðs og ávítaði þá fyrir vantrú þeirra og þverúð hjartans, að þeir hefðu ekki trúað þeim er sáu hann upp risinn. Jesús sagði við þá: „Farið út um allan heim og prédikið fagnaðarerindið öllu mannkyni. Sá sem trúir og skírist mun hólpinn verða en sá sem trúir ekki mun dæmdur verða. En þessi tákn munu fylgja þeim er trúa: Í mínu nafni munu þeir reka út illa anda, tala nýjum tungum, taka upp höggorma og þó að þeir drekki eitthvað banvænt mun þeim ekki verða meint af. Yfir sjúka munu þeir leggja hendur og þeir verða heilir.“
Þegar nú Drottinn Jesús hafði talað við þá var hann upp numinn til himins og settist til hægri handar Guði. Þeir fóru og prédikuðu hvarvetna og Drottinn var í verki með þeim og staðfesti boðun þeirra með táknum sem henni fylgdu.]
Biblíulestur – 6. nóvember – 2Þess 3.6–18
En ég býð ykkur, systkin, í nafni Drottins vors Jesú Krists að þið sneiðið hjá hverjum þeim í söfnuðinum sem er iðjulaus og breytir ekki eftir þeirri reglu sem hann [...]
Biblíulestur – 5. nóvember – 2Þess 2.13–3.5
En ætíð hlýt ég að þakka Guði fyrir ykkur, bræður og systur, sem Drottinn elskar. Guð útvaldi ykkur til þess að þið yrðuð frumgróði til hjálpræðis. Guð lét andann helga [...]
Biblíulestur – 4. nóvember – 2Þess 2.1–12
En að því er varðar komu Drottins vors Jesú Krists og að við söfnumst til hans bið ég ykkur, bræður og systur, að vera ekki fljót til að komast í [...]
Biblíulestur – 3. nóvember – 2Þess 1.1–12
Páll, Silvanus og Tímóteus heilsa söfnuði Þessaloníkumanna í Guði, föður vorum, og Drottni Jesú Kristi. Náð sé með yður og friður frá Guði föður og Drottni Jesú Kristi. Skylt er [...]
Biblíulestur – 2. nóvember – Matt 22.1–14
Þá tók Jesús enn að segja þeim dæmisögu: „Líkt er um himnaríki og konung einn sem gerði brúðkaup sonar síns. Hann sendi þjóna sína að kalla boðsgestina til brúðkaupsins en [...]
Biblíulestur – 1. nóvember – Slm 107.17–32
Þeir sem sýktust vegna syndugs lífernis, þjáðust vegna misgjörða sinna, þeim bauð við allri fæðu og þeir voru nærri dauðans dyrum. Þá hrópuðu þeir til Drottins í neyð sinni og [...]