Biblíulestur 21. ágúst – Jer 11.15–12.6
Hvað vill ástvinur minn í hús mitt?
Hann hefur svikið mig.
Geta loforð og heilagt fórnarkjöt
bægt frá þér bölinu
svo að þú getir fagnað?
Drottinn kallaði þig ólífutré,
laufgað og fagurt.
Nú kviknar eldur í laufi þess með miklum gný
og eyðir greinum þess.
Drottinn hersveitanna, sem gróðursetti þig, ógnaði þér með ógæfu vegna þeirrar illsku sem kynkvíslir Ísraels og Júda sýndu þegar þær vöktu reiði mína með því að kveikja fórnareld fyrir Baal.
Drottinn skýrði mér frá því svo að ég vissi það. Þú gerðir mér ljóst hvað þeir höfðu fyrir stafni. Sjálfur var ég eins og grunlaust lamb sem er leitt til slátrunar. Ég skildi ekki að þeir brugguðu ráð gegn mér: „Vér skulum eyða trénu í blóma þess. Vér skulum eyða honum úr landi lifenda svo að nafns hans verði ekki minnst framar.“
Drottinn hersveitanna, réttláti dómari,
þú sem rannsakar hjarta og nýru,
sýndu mér hefnd þína á þeim.
Ég fel þér málefni mitt.
Því boðar Drottinn þetta gegn Anatótbúum sem sækjast eftir lífi mínu og segja: „Þú mátt ekki starfa sem spámaður í nafni Drottins, þá muntu deyja fyrir hendi vorri.“ Þess vegna segir Drottinn hersveitanna: Nú dreg ég yður til ábyrgðar. Ungir menn munu falla fyrir sverði, synir þeirra og dætur munu deyja úr hungri. Enginn þeirra verður eftir því að ég sendi ógæfu yfir Anatótbúa árið sem þeir verða dregnir til ábyrgðar.
Þú ert réttlátur, Drottinn, þegar ég deili við þig,
samt vil ég ræða við þig um dóma þína.
Hvers vegna njóta ranglátir velgengni,
af hverju lifa svikarar óhultir?
Þú gróðursettir þá og þeir skjóta rótum,
dafna og bera ávöxt.
Þú ert nálægur vörum þeirra
en fjarlægur huga þeirra.
Drottinn, þú þekkir mig og sérð mig,
þú hefur rannsakað hjarta mitt.
Flokkaðu þá eins og fé til slátrunar,
helgaðu þá aftökudeginum.
Hve lengi á landið að syrgja
og allar jurtir merkurinnar að skrælna?
Búfé og fuglar farast
vegna illsku landsbúa
því að þeir hugsa: „Hann sér ekki afdrif vor.“
Ef þú mæðist af kapphlaupi við fótgangandi menn,
hvernig ætlarðu þá að keppa við hesta?
Ef þú ert aðeins öruggur um þig í friðuðu landi,
hvernig ætlarðu þá að komast af í kjarrinu við Jórdan?
Jafnvel bræður þínir og fjölskylda bregðast þér,
þeir kalla á eftir þér fullum hálsi.
Treystu þeim ekki þótt þeir tali hlýlega við þig.
Biblíulestur – 18. nóvember – 5Mós 30.1–14
Þegar allt þetta, blessunin og bölvunin sem ég hef lagt fyrir þig í dag, er yfir þig komið og þú minnist þeirra orða á meðal allra þeirra þjóða sem Drottinn, [...]
Biblíulestur – 17. nóvember – 5Mós 29.15–28
Þið vitið að við bjuggum í Egyptalandi og hvernig við komumst um lönd þeirra þjóða sem þið fóruð um. Þið sáuð hina viðurstyggilegu hjáguði þeirra og skurðgoð úr tré og [...]
Biblíulestur – 16. nóvember – Matt 25.1–13
Enn sagði Jesús: „Þá er líkt um himnaríki og tíu meyjar sem fóru til móts við brúðgumann með lampa sína. Fimm þeirra voru fávísar en fimm hyggnar. Þær fávísu tóku [...]
Biblíulestur – 15. nóvember – Slm 108.1–14
Ljóð. Davíðssálmur. Hjarta mitt er stöðugt, ó Guð, ég vil syngja og leika. Vakna þú, sál mín, vakna þú, harpa og gígja, ég ætla að vekja morgunroðann. Ég lofa þig [...]
Biblíulestur – 14. nóvember – 5Mós 29.1–14
Móse kallaði saman allan Ísrael og sagði: Þið hafið sjálfir séð allt það sem Drottinn gerði fyrir augum ykkar í Egyptalandi gegn faraó, öllum þjónum hans og öllu ríki hans. [...]
Biblíulestur – 13. nóvember – 5Mós 28.58–69
Ef þú heldur ekki öll ákvæði þessa lögmáls sem skráð eru á þessa bók og breytir eftir þeim, og berð lotningu fyrir hinu dýrlega og ógnvekjandi nafni, nafninu Drottinn, Guð [...]