Biblíulestur 24. ágúst – Jer 12.7–17
Ég hef yfirgefið hús mitt,
ég hef hafnað erfðahlut mínum,
ég hef ofurselt ástvin minn fjandmönnum sínum.
Arfleifð mín er orðin eins og ljón í skógi,
hún öskrar gegn mér,
þess vegna hafna ég henni.
Er arfleifð mín orðin að skrautlegum ránfugli
sem umkringdur er öðrum ránfuglum?
Komið, safnist hingað, öll villt dýr, komið og étið.
Fjölmargir hjarðmenn hafa eytt víngarð minn,
fótum troðið akur minn,
þeir hafa gert fagra ekru mína að sviðinni eyðimörk.
Þeir hafa gert hana að dapurlegri eyðimörk,
hún liggur auð frammi fyrir mér,
allt landið er eytt
en enginn skiptir sér af því.
Eyðandi ræningjar hafa ruðst yfir hæðirnar í eyðimörkinni, sverð Drottins gleypir allt endanna á milli, enginn er óhultur.
Þeir sáðu hveiti en skáru upp þyrna, erfiði þeirra var árangurslaust, uppskeran olli þeim vonbrigðum vegna brennandi reiði Drottins.
Svo segir Drottinn: Ég ríf upp alla vonda nágranna mína sem hafa snert erfðahlutinn sem ég fékk lýð mínum, Ísrael. Ég ríf einnig upp ætt Júda sem er mitt á meðal þeirra. En þegar ég hef rifið þá upp mun ég aftur miskunna mig yfir þá og flytja þá heim, sérhvern til síns erfðahlutar og til síns héraðs. Ef þeir þá læra rækilega siði þjóðar minnar og sverja við nafn mitt: „Svo sannarlega sem Drottinn lifir,“ eins og þeir kenndu þjóð minni áður að sverja við Baal verða þeir reistir við meðal þjóðar minnar. En hlýði þeir ekki slít ég þessa þjóð endanlega upp og eyði henni, segir Drottinn.
Biblíulestur – 6. desember – Slm 109.16–20
sakir þess að hann gleymdi að sýna gæsku en ofsótti hinn hrjáða og snauða og hinn ráðþrota til þess að drepa hann. Hann hafði ánægju af bölbænum, þær bitni á [...]
Biblíulestur – 5. desember – Fílm 1.15–25
Vísast hefur hann þess vegna orðið viðskila við þig um stundarsakir, að þú síðan skyldir fá að halda honum eilíflega, ekki lengur eins og þræli heldur þræli fremri, eins og [...]
Biblíulestur – 4. desember – Fílm 1.1–14
Páll, bandingi Krists Jesú, og Tímóteus bróðir okkar heilsa elskuðum vini okkar og samverkamanni, Fílemon, svo og Appíu systur okkar og Arkippusi samherja okkar og söfnuðinum sem kemur saman í [...]
Biblíulestur – 3. desember – 5Mós 34.1–12
Síðan gekk Móse frá Móabssléttu og á Nebófjall, upp á Pisgatind gegnt Jeríkó, og Drottinn sýndi honum allt landið: Gíleað allt til Dan, allt Naftalí, Efraímsland og Manasse, allt land [...]
Biblíulestur – 2. desember – 5Mós 33.22–29
Um Dan sagði hann: Dan er ljónshvolpur sem kemur stökkvandi frá Basan. Um Naftalí sagði hann: Naftalí er saddur af velvild, mettaður af blessun Drottins. Hann skal hljóta vatnið og [...]
Biblíulestur – 1. desember – 5Mós 33.12–21
Um Benjamín sagði hann: Sá sem Drottinn elskar skal vera óhultur hjá honum. Hinn hæsti verndar hann hvern dag, hann býr milli fjallshlíða hans. Um Jósef sagði hann: Land hans [...]