Biblíulestur 23. september – Jer 25.30–38
Þú skalt boða þeim allt þetta og segja:
Drottinn öskrar sem ljón frá hæðum,
hann lætur rödd sína gjalla frá sínum heilaga bústað.
Hann þrumar hátt yfir haga sinn,
hrópar fagnandi eins og þeir sem troða vínber.
Háreystin berst til allra íbúa heims,
allt til endimarka jarðar
því að Drottinn höfðar mál gegn þjóðunum,
heldur rétt yfir öllum dauðlegum
og gefur hina guðlausu sverðinu á vald, segir Drottinn.
Svo segir Drottinn hersveitanna:
Ógæfan berst frá þjóð til þjóðar,
voldugur stormur geisar frá endimörkum jarðar.
Þeir sem felldir verða af Drottni munu á þeim degi liggja dreifðir um alla jörðina. Þeir verða hvorki syrgðir né þeim safnað saman og þeir verða ekki grafnir. Þeir verða að áburði fyrir jarðveginn.
Harmið, hirðar, og kveinið,
veltið yður í rykinu, leiðtogar hjarðarinnar.
Því að sá tími er kominn
að yður verði slátrað,
ég mola yður og þér fallið til jarðar
eins og skrautlegt leirker.
Hirðarnir finna ekkert skjól,
leiðtogar hjarðarinnar komast ekki undan.
Hlustið, hirðarnir kveina,
leiðtogar hjarðarinnar harma
því að Drottinn eyðir haglendi þeirra,
hin friðsælu beitilönd eru sviðin
af brennandi reiði Drottins.
Hann kom út úr fylgsni sínu eins og ljón,
land þeirra er lagt í eyði af ógnandi sverði hans
og fyrir hans glóandi heift.
Biblíulestur 9. júní – Heb 11.32–12.3
Hvað á ég að orðlengja framar um þetta? Mig mundi skorta tíma ef ég færi að segja frá Gídeon, Barak, Samson og Jefta og af Davíð, Samúel og spámönnunum. Fyrir [...]
Biblíulestur 8. júní – Heb 11.17–31
Fyrir trú fórnfærði Abraham Ísak er hann var reyndur. Og Abraham, sem fengið hafði fyrirheitin, var reiðubúinn að fórnfæra einkasyni sínum. Við Abraham hafði Guð mælt: „Afkomendur Ísaks munu taldir [...]
Biblíulestur 7. júní – Matt 8.23–27
Nú fór Jesús í bátinn og lærisveinar hans fylgdu honum. Þá gerði svo mikið veður á vatninu að bylgjurnar gengu yfir bátinn. En Jesús svaf. Þeir fara til, vekja hann [...]
Biblíulestur 6. júní – Slm 119.81–96
Sál mín tærist af þrá eftir hjálp þinni, ég bíð eftir orði þínu, augu mín daprast af þrá eftir orði þínu: Hvenær munt þú hugga mig? Ég er orðinn eins [...]
Biblíulestur 5. júní – Heb 11.1–16
Trúin er fullvissa um það sem menn vona, sannfæring um þá hluti sem eigi er auðið að sjá. Fyrir trú hlutu mennirnir fyrr á tíðum velþóknun Guðs. Fyrir trú skiljum [...]
Biblíulestur 4. júní – Heb 10.19–39
Vegna þess að Jesús úthellti blóði sínu megum við nú, systkin, með djörfung ganga inn í hið heilaga. Þangað vígði hann okkur veginn, nýjan veg lífsins inn í gegnum fortjaldið [...]